Víkurfréttir - 26.03.2020, Síða 40
40 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg.
„Ég veit auðvitað ekki hvernig þessari óvissuferð lýkur en
það er óhætt að segja að það sé sérstök upplifun að vera
fastur á skemmtiferðaskipi hinum megin á hnettinum
á sextíu ára afmælinu. Við vonum það besta og erum í
sambandi við borgaraþjónustu Utanríkisráðuneytisins,“
segir Keflvíkingurinn Hallur Metusalem Hallsson, lög-
reglumaður en COVID-19 hefur svo sannarlega haft
áhrif á afmælisferðina hans.
Draumaferð á
sextugsafmæli
„Við hjónin lögðum af stað 3. mars í
60 ára afmælisferðina mína til Buenos
Aires í Argentínu. Þar dvöldum við í
þrjár nætur áður en við fórum um borð
í skemmtiferðaskipið ms Zaandam.
7. mars og létum síðan úr höfn síð-
degis 8. mars á 60 ára afmælisdeginum
mínum. Siglingin átti að vara í fjórtán
nætur, sigla suður fyrir syðsta odda
S-Ameríku, Argentínu, Uruguay, Falk-
landseyjar og síðan að enda í Santiago í
Chile. Allt gekk eins og í sögu þar til við
vorum lögð af stað frá Punta Arenas,
syðstu borgar Chile við Magellan sund
(siglt var um Magellan sund fyrir tíma
Panamaskurðarins) áleiðis til Ushhuaia
syðsta bæjar Argentínu, sem er jafn-
framt syðsti bær heims“.
Allir af skipinu
„Þegar við vöknuðum 15. mars
vorum við komin aftur til Punta Are-
nas en ekki Ushusia. Þarna varð vendi-
punktur í ferðinni, skipstjórinn sagði
að allir yrðu að fara af skipinu í Punta
Arenas. Var þá farið í að finna flugmiða
heim sem var ekki hægðarleikur. Það
tókst þó með dyggri aðstoð Guðmundar
Halls sonar míns. Við pökkuðum niður
og áttum að fljúga til Santiago í Chile
og þaðan til London og heim með
viðkomu í Brasilíu. En farþegar fengu
ekki að fara í land, sagt var að til þess
yrðu að líða fjórtán dagar. Skipstjórinn
ákvað þá að sigla skipinu til norðurs.
Skipið reyndist hvergi mega koma að
landi í S-Ameríku og ákveðið var að
taka stefnuna til Ft. Lauderdale í Flo-
rída og til vara Mexico eða San Diego,“
segir Hallur.
Rekin í klefa
Hallur segir að allt hafi leikið í lyndi
í heila viku um borð í skipinu eða þar
til sunnudaginn 22. mars daginn eftir
að skipið fór frá Valparaiso í Chile þar
sem vistir og olía voru sett í skipið við
erfiðar aðstæður á sjó utan við höfnina.
„Við vorum úti á dekki í sólbaði þegar
skipstjórinn skipaði öllum að fara í
klefa sína og dvelja þar um óákveðinn
tíma, þar sem 29 úr áhöfn og 13 far-
þegar væru orðnir veikir, með flensu-
einkenni. Núna, 24. mars, er staðan sú
að við erum í einangrun/sóttkví í innri
klefa. Fáum morgunmat, hádegismat
og kvöldmat sem er settur utan við
klefadyrnar. Síðustu fréttir eru þær
að stefnt er á Panamaskurðinn og eiga
þar stefnumót við systurskip Zaandam
sem heitir Rotterdam og er á siglingu
sérstaklega án farþega frá Acapulco,
Mexico. Kemur það til aðstoðar með
lyf og starfsfólk, ekki hefur annað verið
gefið upp um ástæðu þessa sérstaka
stefnumóts. Vonandi að það skip sé
með það sem til þarf til að ganga úr
skugga um hvort kórónavírusinn sé í
Zaandam, eins að fá grímur/maska, því
við fáum ekki að fara út að viðra okkur
þar sem ekki er til nóg af grímum. Það
er frekar þrúgandi að vera innilokaður
og vita ekki hve lengi. Við erum samt
hress miðað við aðstæður, draumur
að hafa internetð þó veikt sé,“ segir
okkar maður að lokum en skipið sem
hann er á mun mæta systurskipi sínu,
Rotterdam, 26. mars.
-Hallur Hallsson, lögreglumaður úr Keflavík sem er í 60 ára afmælisferð með konu sinni
veit ekki hvernig óvissuferðinni lýkur. Eru föst í einangrun í klefa á skipinu á siglingu.
Fastur á skemmtiferðaskipi
á hinum enda hnattarins
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Skip kom með mat
og fleira í „lokað“
skemmtiferðaskip.
Hallur á skipinu með sundlaugina í baksýn. Eini Íslendingurinn um borð. „Kemur skemmtilega á óvart hversu margir
farþegar þekkja til Íslands og hafa komið þangað, tala einnig fallega um það,“ segir Hallur.
Hallur heilsaði upp á Maradona.
Þeir eru jafngamlir.
Hallur og kona
hans, Margarita
Hallsson á
góðri stundu í
óvissuferð.