Víkurfréttir - 28.05.2020, Page 65
Árin mín í Kölku voru ánægjulegur tími. Eftir að hafa starfað þar sem
framkvæmdastjóri á níunda ár, lauk ég störfum í byrjun október 2019
þegar nýr framkvæmdastjóri kom til starfa. Á aðalfundi Kölku nýlega
kom fram í ársreikningi 2019 góð afkoma fyrirtækisins enn eitt árið.
Hagnaður ársins var liðlega 70 milljónir króna og eigið fé orðið rúmar
400 milljónir króna.
Þegar ný stjórn tók til starfa í Kölku
árið 2010 var staða fyrirtækisins
erfið, miklar skuldir og eigið fé nei-
kvætt um 600 milljónir króna. Þegar
stjórnin auglýsti eftir framkvæmda-
stjóra árið 2011 var ég alls ekki með
það í huga að ætla að ráða mig í fasta
vinnu en ég hafði þá nokkrum árum
áður selt fyrirtæki mitt, Skipaaf-
greiðslu Suðurnesja, til Eimskips.
Tveir sveitarstjórnarmenn úr sitt
hvoru bæjarfélaginu höfðu samband
við mig og hvöttu mig til að sækja
um starfið. Þeir höfðu væntanlega
trú á því að ég gæti lagt eitthvað að
mörkum til að snúa mjög erfiðu
rekstrarástandi fyrirtækisins til betri
vegar.
Í dag er ég þessum aðilum mjög
þakklátur og einnig stjórninni sem
réð mig til starfa því að eftirá að
hyggja hefði ég sannarlega ekki viljað
missa af tækifærinu að takast á við
þau verkefni sem biðu úrlausnar.
Þegar ég tók við sem framkvæmda-
stjóri var í mörg horn að líta. Helstu
verkefnin voru tvímælalaust að laga
slæma fjárhagsstöðu, lækka skuldir,
laga eiginfjárstöðu úr miklum mínus
í góðan plús, taka umhverfismálin
fastari tökum, leysa áralangan vanda
sem varðaði ráðstöfun uppsafnaðrar
flugösku og einnig að koma bot-
nöskunni í réttan ráðstöfunarfarveg.
Mörg fleiri verkefni biðu úrlausnar
svo sem átak í viðhaldsmálum, breyt-
ingar í starfsmannamálum og fleira
og fleira.
Með mjög góðu og öflugu sam-
starfi við góða og samtaka stjórnar-
menn, duglega og samviskusama
starfsmenn og alla stærstu við-
kiptavini, sem meðal annars sýndu
nauðsynlegum breytingum á ýmsum
sviðum góðan skilning, tókst bæri-
lega vel til við að leysa öll helstu
vandamálin.
Þó að oft sé erfitt að nefna einstaka
aðila þegar samstaðan er góð þá vil
ég engu að síður nefna þá sem unnu
hvað mest með mér og oft af miklu
harðfylgi. Þetta voru stjórnarfor-
mennirnir Ríkharður Ibsen og Birgir
Már Bragason, og af starfsmönnum
vil ég sérstaklega nefna Ingþór Karls-
son, rekstrarstjóra brennslunnar, og
þá Jóhann Kjærbo og Kára Húnfjörð.
Það þarf góða og samtaka heild
til að bæta eiginfjárstöðu um meira
en einn milljarð króna (eitt þúsund
milljónir) á tiltölulega stuttum tíma
í ekki stærra fyrirtæki en Kalka er.
Öllu mínu góða samstarfsfólki
í Kölku vil ég færa mínar bestu
þakkir og góðar kveðjur fyrir ein-
staka samheldni og frábært samstarf
við úrlausn á erfiðum verkefnum.
Ég þakka sveitarstjórnarfólki fyrir
mjög gott samstarf og svo vil ég aftur
þakka fyrir tækifærið að fá að taka
þátt í miklu uppbyggingarverkefni
hjá fyrirtækinu. Að endingu vil ég
óska þess að Kalka sorpeyðingar-
stöð sf. og við, íbúar og eigendur
þess, munum framvegis njóta góðs
af því endurskipulagningarferli sem
ráðist var í og skilaði þeirri góðu
niðurstöðu sem raun ber vitni.
Bestu þakkir og kveðjur,
Jón Norðfjörð,
fyrrverandi framkvæmdastjóri.
Þakklátur fyrir árin í Kölku
Fimmtudagur 28. maí 2020 // 22. tbl. // 41. árg.
VíKuRFRÉTTIR á SuÐuRNESJuM í 40 áR // 65