Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.05.2020, Blaðsíða 65

Víkurfréttir - 28.05.2020, Blaðsíða 65
Árin mín í Kölku voru ánægjulegur tími. Eftir að hafa starfað þar sem framkvæmdastjóri á níunda ár, lauk ég störfum í byrjun október 2019 þegar nýr framkvæmdastjóri kom til starfa. Á aðalfundi Kölku nýlega kom fram í ársreikningi 2019 góð afkoma fyrirtækisins enn eitt árið. Hagnaður ársins var liðlega 70 milljónir króna og eigið fé orðið rúmar 400 milljónir króna. Þegar ný stjórn tók til starfa í Kölku árið 2010 var staða fyrirtækisins erfið, miklar skuldir og eigið fé nei- kvætt um 600 milljónir króna. Þegar stjórnin auglýsti eftir framkvæmda- stjóra árið 2011 var ég alls ekki með það í huga að ætla að ráða mig í fasta vinnu en ég hafði þá nokkrum árum áður selt fyrirtæki mitt, Skipaaf- greiðslu Suðurnesja, til Eimskips. Tveir sveitarstjórnarmenn úr sitt hvoru bæjarfélaginu höfðu samband við mig og hvöttu mig til að sækja um starfið. Þeir höfðu væntanlega trú á því að ég gæti lagt eitthvað að mörkum til að snúa mjög erfiðu rekstrarástandi fyrirtækisins til betri vegar. Í dag er ég þessum aðilum mjög þakklátur og einnig stjórninni sem réð mig til starfa því að eftirá að hyggja hefði ég sannarlega ekki viljað missa af tækifærinu að takast á við þau verkefni sem biðu úrlausnar. Þegar ég tók við sem framkvæmda- stjóri var í mörg horn að líta. Helstu verkefnin voru tvímælalaust að laga slæma fjárhagsstöðu, lækka skuldir, laga eiginfjárstöðu úr miklum mínus í góðan plús, taka umhverfismálin fastari tökum, leysa áralangan vanda sem varðaði ráðstöfun uppsafnaðrar flugösku og einnig að koma bot- nöskunni í réttan ráðstöfunarfarveg. Mörg fleiri verkefni biðu úrlausnar svo sem átak í viðhaldsmálum, breyt- ingar í starfsmannamálum og fleira og fleira. Með mjög góðu og öflugu sam- starfi við góða og samtaka stjórnar- menn, duglega og samviskusama starfsmenn og alla stærstu við- kiptavini, sem meðal annars sýndu nauðsynlegum breytingum á ýmsum sviðum góðan skilning, tókst bæri- lega vel til við að leysa öll helstu vandamálin. Þó að oft sé erfitt að nefna einstaka aðila þegar samstaðan er góð þá vil ég engu að síður nefna þá sem unnu hvað mest með mér og oft af miklu harðfylgi. Þetta voru stjórnarfor- mennirnir Ríkharður Ibsen og Birgir Már Bragason, og af starfsmönnum vil ég sérstaklega nefna Ingþór Karls- son, rekstrarstjóra brennslunnar, og þá Jóhann Kjærbo og Kára Húnfjörð. Það þarf góða og samtaka heild til að bæta eiginfjárstöðu um meira en einn milljarð króna (eitt þúsund milljónir) á tiltölulega stuttum tíma í ekki stærra fyrirtæki en Kalka er. Öllu mínu góða samstarfsfólki í Kölku vil ég færa mínar bestu þakkir og góðar kveðjur fyrir ein- staka samheldni og frábært samstarf við úrlausn á erfiðum verkefnum. Ég þakka sveitarstjórnarfólki fyrir mjög gott samstarf og svo vil ég aftur þakka fyrir tækifærið að fá að taka þátt í miklu uppbyggingarverkefni hjá fyrirtækinu. Að endingu vil ég óska þess að Kalka sorpeyðingar- stöð sf. og við, íbúar og eigendur þess, munum framvegis njóta góðs af því endurskipulagningarferli sem ráðist var í og skilaði þeirri góðu niðurstöðu sem raun ber vitni. Bestu þakkir og kveðjur, Jón Norðfjörð, fyrrverandi framkvæmdastjóri. Þakklátur fyrir árin í Kölku Fimmtudagur 28. maí 2020 // 22. tbl. // 41. árg. VíKuRFRÉTTIR á SuÐuRNESJuM í 40 áR // 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.