Mosfellingur - 09.01.2020, Side 8

Mosfellingur - 09.01.2020, Side 8
Risa þorrablót fram undan í íþróttahúsinu Hið árlega þorrablót Aftureldingar fer fram í íþróttahúsinu að Varmá laugardaginn 25. janúar. Miðasala og borðaúthlutun fer fram föstudag- inn 17. janúar kl. 17 á Barion. Líkt og fyrr er aðeins hægt að taka frá sæti gegn keyptum miða. En hægt er að festa sér svokölluð VIP borð fyrir fram. VIP borðin eru 10 manna hringborð fyrir miðju salarins og með þeim fylgja fljótandi veigar og fleiri forréttindi. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði en sem fyrr mun Geiri í Kjötbúðinni sjá um veislumatinn. Boðið verður upp á hefðbundinn þorramat og eitthvað girnilegt fyrir þá sem ekki þora í þorrann. Kynnir kvöldsins er Þor- steinn Hallgrímsson og tríóið Kókos sér um söng og almenna gleði. Mos- cow Mule barinn verður á sínum stað og hið vinsæla lukkuhjól. Fyrir dansi spilar svo hljómsveit Tomma Tomm og munu þau Erna Hrönn, Matti Matt og Stefán Hilmarsson stíga á stokk auk Hr. Hnetusmjörs sem mun taka nokkur lög á ballinu. Blótið er stærsta fjáröflun barna- og unglingastarfs handbolta- og knattspyrnudeildar Aftureldingar. Allir Mosfellingar eru hvattir til að láta sjá sig og eiga skemmtilega stund með sveitungum. Mest lesnu fréttirnar á Mosfellingur.is árið 2019 Jafnrétti í íþróttum aðsend grein | [...] Það er þó eitt sem situr í mér á árinu 2019. Hvernig er jafnréttinu háttað í íþróttum barnanna okkar? Er það jafnrétti að á sama fótboltamóti í sama bæjarfélagi sjá stelpurnar sjálfar um skemmtiatriðin með hæfileikakeppni meðan strákarnir fara í skrúðgöngu og fá skemmtiatriði frá skemmtikrafti? Eða Á sambærilegum fótboltamótum er stelpum 9–10 ára boðið upp á Tímon og Púmba sem hentar kannski á leikskóla og strákarnir hlusta á Jón Jónsson skemmta... Breyta banka í bar frétt | Miklar framkvæmdir standa yfir í húsinu sem áður hýsti Arion banka í miðbæ Mosfells- bæjar. Félagarnir Sigmar Vilhjálmsson og Vilhelm Einarsson ætla að breyta Arion í Barion. „Hér mun opna sportbar, hverfisbar, veitingastaður eða hvernig sem við viljum orða það. Við erum að búa til félagsheimili fullorðna fólksins. Þetta verður ekki beint mathöll en alla vega tveir matsölustaðir á einum stað og Hlölli hluti af því. Við munum bjóða upp á steikur, salöt, rif, borgara og almennt góðan mat ... Sameiginleg forsjá hefur mjög lítið gildi Viðtal | Eva Björk Sveinsdóttir verkefnastjóri hjá KPMG lætur sig málefni fráskildra foreldra varða. Barn getur aðeins átt eitt lögheimili og það telst eiga fasta búsetu þar sem það á lögheimili. Það getur því oft reynst erfið ákvörðun fyrir foreldra sem standa í skilnaði hvar skuli skrá barnið eða börnin. Oftar en ekki eru foreldrar hvattir af fulltrúum sýslumanns að fara út í sameiginlega forsjá ... Á www.mosfellingur.is eru birtar helstu fréttir úr blaðinu 13. janúar 4. júlí 3. október 3 2 1 FaMos með námskeið um Mosfellsheiði Félag aldraðra í Mosfellsbæ (FaMos) heldur námskeið um Mosfellsheiði í janúar og febrúar. Kennt verður á Eirhömrum á þriðjudögum kl. 17-19, í fyrsta skipti 14. janúar. Kennari er Bjarki Bjarnason, einn af höfundum Árbókar Ferðafélags Íslands 2019 sem fjallar um heiðina. Mosfellsheiði lætur ekki mikið yfir sér við fyrstu sýn, þar er þó býsna fjölbreytt náttúra og landslag og margs konar mannvistarleifar. Þar gefur að líta seljarústir, fjöldann allan af vörðum, gamlar þjóðleiðir, fjárréttir, skotbyrgi og sæluhúsa- rústir. Heiðin var fjölfarin á fyrri tíð, um hana fóru m.a. bændur í kaup- staðarferð, vermenn á leið á vertíð við Faxaflóa, fólk á leið á Alþingi á Þingvöllum og Danakonungar sem sóttu íslenska þegna sína heim við ysta haf. Á námskeiðinu mun Bjarki fjalla um heiðina frá öllum sjónarhornum og styðjast við ljósmyndir og ritaðar heimildir í umfjöllun sinni. Næsta vor verður farið í skemmtiferð umhverfis Mosfellsheiði. Þátttaka í námskeiðinu tilkynnist til Benedikts Steingrímssonar, netfang hans er bs@isor.is og sími 8649409. Þátttökugjald er 8.000 krónur. Skrifstofa félagsstarfsins er opin alla virka daga kl. 13–16. Sími félags- starfsins er 586-8014. Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, s: 698-0090. Skrifstofa FaMos á Eirhömrum er opin alla fimmtudaga frá 15–16. Ingólfur Hrólfsson formaður s. 855 2085 ihhj@simnet.is Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður s. 896 5700 bruarholl@simnet.is Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri s. 863 3359 margretjako@gmail.is Snjólaug Sigurðardóttir ritari s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi s. 898 3947 krist2910@gmail.is Halldór Sigurðsson 1. varamaður s. 893 2707 dori007@simnet.is Jóhanna B. Magnúsdóttir 2. varamaður s. 899 0378 hanna@smart.is StJÓrn FaMoS FélaG aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni famos@famos.is www.famos.is Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fraM undan í starfinu opið hús/menningarkvöld Opið hús/menningarkvöld verður mánu- daginn 13. janúar í Hlégarði kl. 20:00. Jóhannes Kristjánsson skemmtikraftur mun gleðja okkur með eftirhermum og öðrum skemmtileg- heitum eins og hon- um er einum lagið. Kaffinefndin verður svo með sitt rómaða kaffihlaðborð að venju. Aðgangseyrir er kr. 1.000 (posi er ekki á staðnum). Menningar- og skemmtinefnd FaMos Vatnsleikfimi jan-maí Byrjar 13. janúar. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl.11:20. Þátttökugjald: Einu sinni í viku - kr. 3.500. Tvisvar í viku - kr. 7.000, þrisvar í viku - kr. 10.500. Munið skráningu í fyrstu tímum og greiðslu þátttökugjalds. Vinsamlegast komið með félagsskírteini - posi ekki á staðnum. Íþróttanefnd FaMos. tréútskurðarnámskeið Hefst miðvikudaginn 8. jan kl. 19:00 í kjallara Eirhamra, nokkur laus pláss. Þeir sem hafa áhuga á að bætast í hópinn láti vita á elvab@mos.is eða í sími 586- 8014/698-0090. Kennari Stefán Haukur. Gler og leirnámskeið Fríðu Laust á gler og leirnámskeið hjá Fríðu fimmtud. og föstud. Þeir sem vilja bætast í hópinn láti vita á elvab@mos.is eða í síma 586-8014/698-0090. lEIKFIMI EldrI BorGara Byrjar fimmtudaginn 9. jan. Kennari er Karin Mattson og verða tveir hópar. Hópur 1 kl. 10:45 / Hópur 2 kl. 11:15. Leikfimin er gjaldfrjáls og er liður í því að búa í Heilsueflandi samfélagi Mosfellsbæ. Kennt er í leikfimisalnum á Eirhömrum. Öllum velkomið að mæta og vonum við svo sannarlega að fólk nýti sér leikfimina. Endurminningaleikhús Þann 22. janúar hefst nýtt námskeið í Endurminningaleikhúsi. Andrea Katrín Guðmundsdóttir leikkona og leikstjóri stóð fyrir samskonar námskeiði í lok árs 2019 sem hlaut jákvæðar undirtektir. Staður: Íþróttasalurinn Eirhömrum. Stund: Miðvikud. og föstud. kl. 13–14.30. 12 skipti samtals. Þátttökugjald er 8.000 kr. fyrir námskeiðið. Á námskeiðinu munu þátttakendur rifja upp gamlar minningar með því að spjalla saman, hlusta á tónlist, gera leiklistaræfingar og margt fleira skemmtilegt. Markmið námskeiðsins er fyrst og fremst að hafa gaman í góðum félagsskap og að fá tækifæri til að rifja upp gamla tíma. Námskeiðinu lýkur svo með leiksýningu, þar sem þátttakendur deila endurminningum sínum með áhorfendum. Hægt er að skrá sig í þjónustumiðstöðinni, hringja í síma 698- 0090 og 568-8014 eða senda tölvupóst á netfangið: elvab@mos.is. GÖnGUHÓPUrInn 60+ Auglýsingin okkar um nýjan gönguhóp vakti frábær viðbrögð og greinilegt er að það er fullt af fólki sem langar í rösklegar göngur og því fögnum við mjög. Ætlum við að hafa fyrsta fund okkar sem verður fundur ekki ganga kl. 14:00 þriðjudaginn 14. janúar í Vallarhúsinu að Varmá (hvíta húsið við bílaplanið). Þar munum við ræða tímasetningar og hvernig við sjáum þetta fyrir okkur. Sérstakur gestur hjá okk- ur verður Guðjón Svanson heilsuþjálfari. Við viljum danS Okkur langar að kanna áhuga ykkar á dansi fyrir eldri borgara sem yrði einu sinni í viku í íþróttahúsinu, áætlað að byrja í febrúar. Mjög líklega á miðvikudegi eftir hádegi. Auður Harpa danskennari hefur stjórnað með sinni frábæru útgeislun dansi í Hafnarfirði, Garðabæ og Reykjavík og er loksins tilbúin að koma til okkar í Mosó. Dansarnir eru auðveldir og skemmtilegir og henta jafn konum sem körlum og tónlistin er frábær. Þið sem hafa áhuga á að vera með skráið ykkur. ÝMISlEGt Félagsvistin byrjar aftur 10. janúar kl. 13:00. Brigde á þriðjudögum kl. 13:00 og KanaSta kl. 13:15 á fimmtudögum. GaMan SaMan byrjar 23. janúar. listmálunarnámskeið Hefst 28. janúar kl. 12:30-15:30. Boðið verður upp á 7 skipta námskeið í málun með akríl/olíulitum. Námskeiðið er ætlað byrjendum en líka þeim sem hafa málað eitthvað. Fólk mætir með sína striga, liti (olíu- eða akríl) og pensla, en trönur og litir til að bjarga sér eru á staðnum. Leiðbeinandi er Hannes Valgeirsson kennari, myndlistarmaður og málari. Skráningar krafist. - Fréttir úr bæjarlífinu8 Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is Bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar leita að öflugum lögmanni til starfa Lögmaður Mosfellsbæjar Sálfræðingur sinnir sálfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla bæjarins Sálfræðingur óskast til starfa

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.