Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 10
Mosfellingum gafst kostur á að
tilnefna þá sem þeim þóttu verðugir
að hljóta nafnbótina Mosfellingur
ársins. Fjöldi tilnefninga barst
í gegnum heimasíðu blaðsins
Mosfellingur.is. Mörg skemmtileg
ummæli fylgdu með, eins og sjá má
hér til hliðar.
Valgerður Magnúsdóttir -
Yfirmaður á Eirhömrum. Alltaf
tilbúin að gera allt fyrir alla, heldur
betur góð kona þarna á ferð.
Aron Sigurvins - Þvílíkur
dugnaður og kraftur. Þarf að
koma sér í lag eftir bílslysið og
ganga í gegnum krabbameinsmeð-
ferð á sama tíma. Algjör hetja.
GDRN - Framúrskarandi og
flott tónlistarkona sem á
nafnbótina sannarlega skilið.
Simmi Vill - Fyrir að opna stað
sem var klárlega vöntun á
í frábæra bæinn okkar – Magnaður.
Birta Abiba - Fallegust
allra - flott fyrirmynd og
öflugur talsmaður fyrir Ísland í Miss
Universe.
Maggi Már - Einn efnilegasti
þjálfari landsins, með öflugra
Aftureldingarhjarta. Auk þess stýrir
hann miðlinum fotbolti.net.
Þengill Oddsson - Farsæll
læknir Mosfellinga um
áratugaskeið. Virtur toppmaður í
alla staði.
Vibeke Þorbjörnsdóttir - Hún
hefur unnið hjá Mosfellsbæ og
sinnt starfi sínu í þágu fatlaðra af
einstakri natni.
Halla Karen - Frábær
fyrirmynd þegar kemur að því
að huga að andlegri og líkamlegri
heilsu. Síðast en ekki síst að koma
af stað hreyfingu eldri borgara.
Starfsfólk Varmárskóla
- Mikið hefur mætt á frábæru
starfsfólki skólans sem á allt gott
skilið og gott hrós.
Berta Þórhalladóttir - Já-
kvæðnin og útgeislunin smitar
alla sem að henni koma. Farsæll
kennari og líkamsræktarfrömuður.
Gunna Stína - Hefur séð um
blakdeildina eins og hetja.
Björgunarsveitin Kyndill
- Fyrir óeigingjarnt starf, taka
mikinn þátt í samfélagi Mosfellinga
sem og auðvitað sinna útköllum.
- Mosfellingur ársins10
2010 Steinþór Hróar Steinþórsson
Steindi Jr. slær í gegn með Steindanum
okkar og á vinsælasta lag landsins.
2009 Embla Ágústsdóttir
Lætur fötlun ekki stöðva sig í að lifa
lífinu. Miðlar af reynslu sinni og lífssýn.
2008 Albert Rútsson
Athafnamaður sem opnaði glæsilegt
hótel í Mosfellsbæ, Hótel Laxnes.
2007 Jóhann Ingi Guðbergsson
Sundlaugarvörður í Lágafellslaug
sem bjargar lífi tveggja ára stúlku.
2006 Hjalti Úrsus Árnason
Kraftakarl sem frumsýndi heimildar-
myndina um Jón Pál Sigmarsson.
2005 Sigsteinn Pálsson
Stórbóndi á Blikastöðum sem
fagnaði 100 ára afmæli sínu á árinu.
2012 Greta Salóme Stefánsdóttir
Ævintýralegt ár hjá söngkonunni sem
m.a. keppti fyrir Ísland í Eurovision.
2011 Hanna Símonardóttir
Sjálboðaliði hjá Aftureldingu í 14 ár
og aðal driffjöðurin í starfi félagsins.
2014 Jóhanna Elísa Engelhartsd.
Snéri við blaðinu og varð fyrsti
sigurvegari Biggest Loser á Íslandi.
2013 Hljómsveitin Kaleo
Skaust upp á stjörnuhimininn eftir
sína fyrstu plötu og Vor í Vaglaskógi.
2016 Guðni Valur Guðnason
Kringlukastari og Ólympíufari sem
náði miklum árangri á stuttum tíma.
2015 Sigrún Þ. Geirsdóttir
Vann þrekvirki að verða fyrst íslenskra
kvenna til að synda yfir Ermarsundið.
2018 Óskar Vídalín Kristjánsson
Einn af stofnendum Minningarsjóðs
Einars Darra eftir fráfall sonar hans.
2017 Jón Kalman Stefánsson
Einn fremsti rithöfundur þjóðarinnar
til fjölda ára. Orðaður við Nóbelinn.
Hilmar Elísson er Mosfellingur ársins • Bjargaði manni frá drukknun
„Ég var bara einn hlekkur í
keðju sem vann gott verk“
margar tilnefningar til mosfellings ársins 2019
Mosfellingur ársins 2019 er Hilmar Elísson. Hilmar
sem er húsasmíðameistari og rekur fyrirtækið H-verk
er meðlimur í karlaþrekinu í World Class og fastagestur
í Lágafellslaug.
Þann 28. janúar 2019 ákvað Hilmar að fá sér sund-
sprett eftir æfingu. Það má segja að hann hafi verið
réttur maður á réttum stað því hann bjargaði sund-
laugargesti frá drukknun sem hafði verið við köfun í
lauginni.
Sá strax að þarna var ekki allt með felldu
„Þegar ég var að synda eftir æfinguna sá ég mann
liggja á botninum, þetta var í dýpri enda laugarinnar
og ég sá strax að þarna var ekki allt með felldu. Ég kaf-
aði eftir manninum, það tókst ekki í fyrstu tilraun en
í annari tilraun náði ég til hans. Ég náði svo að kalla á
hjálp við að koma manninum upp á bakkann,“ segir
Hilmar.
„Það var heppilegt að á staðnum var maður sem
starfað hefur sem slökkviliðsmaður í fjöldamörg ár og
kunni vel til verka í svona aðstæðum. Okkur tókst að
koma manninum upp á bakkann og þá hófust strax
lífgunartilraunir.“
Sjokkið kom ekki fyrr en eftir á
„Það var strax farið að hnoða hann en það leið
allavega mínúta þar til hann fór að sýna smá lífsmark.
Sjúkraflutningamennirnir voru fljótir á staðinn enda
gott að vita af þeim í nágrenninu.
Það er mjög skrítið að lenda í svona aðstæðum,
maður framkvæmir bara ósjálfrátt eftir bestu getu en
fær svo svolítið sjokk á eftir þegar maður áttar sig á
hvað hefur gerst. Þetta er ekki skemmtileg upplifun en
það var gott að allt fór vel en allir aðilar sem komu að
þessu, starfsmenn og aðrir, stóðu sig með prýði. Ég var
bara einn hlekkur í keðju sem vann gott verk,“ segir
Hilmar að lokum og þakkar þann heiður sem honum
er sýndur með nafnbótinni Mosfellingur ársins.
hilmar elísson tekur við viðurkenn-
ingunni úr höndum hilmars gunn-
arssonar ritstjóra mosfellings
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS
ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
Í tilefni af þriggja ára afmæli Jeep® umboðsins á Íslandi bjóðum við
Jeep® Compass Limited hlaðna lúxusbúnaði á ótrúlegu tilboðsverði
• Leðurinnrétting með rafdrifnum sætum
• Leðurklætt aðgerðarstýri
•
• Hiti í stýri og framsætum
•
• 8,4” upplýsinga- og snertiskjár
•
• Sjálfvirk tveggja svæða miðstöð með loftkælingu
• Aðfellanlegir og upphitaðir hliðarspeglar
• Bluetooth til að streyma tónlist og síma
• Svart þak
• 140 hö. diesel, 9 gíra sjálfskipting
• Select-Terrain fjórhjóladrif með 4 drifstillingum
• Bakkmyndavél
• Fjarlægðarskynjarar að framan og aftan
• Árekstrarvari
• LED dagljós og LED afturljós
• 18” álfelgur
• Blindhorns- og akreinavari
• Fjarlægðarstillur hraðastillir
• Leggur sjálfur í stæði
JEEP® COMPASS LIMITED
jeep.is
FULLT VERÐ MEÐ AUKAHLUTUM: 7.424.000 KR. - TILBOÐ: 5.990.000 KR.
TAKMARKA
Ð MAGN
5.990.000
kr.