Mosfellingur - 09.01.2020, Side 14

Mosfellingur - 09.01.2020, Side 14
Útnefning á íþróttakarli og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2019 Arna Ösp átti frábært ár í heimi kraftlyftinga. Hún varð í þriðja sæti í stigakeppni kvenna á Reykjavíkurleik- unum og setti þar 4 Íslandsmet. Arna varð síðan bikarmeistari í kraftlyftingum á Akureyri. Arna keppti næst á Vestur- Evrópumótinu sem haldið var á Ítalíu, þar setti hún 6 Íslandsmet og varð í 6. sæti. Þá var komið að Íslandsmótinu í klassískum kraftlyftingum þar sem Arna sigraði og varð auk þess stigahæst kvenna. Endaði árið með því að keppa á Evrópumeistaramótinu í kraftlyftingum í Litháen. Þar setti Arna Íslandsmet í hnébeygju 140 kg og nýtt Íslandsmet í réttstöðulyftu 177,5 kg og bætti þar með líka Íslandsmetið í samanlögðu, 400 kg í 63 kg flokki. Arna er stigahæst Íslendinga í klassískum kraftlyftingum. Arna Ösp Gunnarsdóttir kraftlyftingar Cecilía Rán er 16 ára Mosfellingur sem spilaði með Fylki í Pepsi Max deildinni sl. sumar þar sem hún vakti verð- skuldaða athygli. Hún var valin besti markmaður Pepsi Max deildarinnar og í lið ársins ásamt því að vera valin efnilegasti leikmaður Fylkis. Cecilía hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands síðustu árin og árið 2019 spilaði hún með U16, U17 og U19 ára landsliðum Íslands ásamt því að vera valin í A-landsliðið þá nýorðin 16 ára og tók þátt með því í undankeppni EM 2021 í haust. Cecilía Rán er mjög metnaðargjörn og vinnusöm og leggur mikið á sig til að ná árangri. Hún stendur sig sömuleiðis vel í námi og er frábær fyrirmynd fyrir unga iðkendur. Cecilía Rán Rúnarsdóttir knattspyrna Erna er 19 ára kúluvarpari. Erna hóf nám á fullum skólastyrk í Rice-háskól- anum í Houston í Bandaríkjunum í ágúst 2018 þar sem hún æfir 6 daga í viku. Helstu afrek á árinu: 3. sæti á EM U20, Íslandsmeistari U22 í kúluvarpi, kringlukasti og spjótkasti. Íslands- meistari fullorðinna í kúluvarpi og setti mótsmet. Í bikarkeppni 2019 setti hún mótsmet þegar hún kastaði kúlunni 15,85 metra en hún vann kúluvarpið með yfirburðum. Íslenska landsliðið varð Evrópubikarmeistari í 3.deild, komst upp í 2. deild, Erna fékk silfur. Norðurlandameistari í kúluvarpi á Norðurlandamóti 19 ára og yngri, kast- aði 15,85 metra og setti nýtt mótsmet. Besta kast Ernu til þessa er 16,13 metrar á móti í Houston í Texas í apríl. Erna Sóley Gunnarsdóttir frjálsar Kristina er blakkona Aftureldingar 2019, fædd árið 1994. Kristina hefur verið með liðinu frá byrjun (2011). Kristina er metnaðarfull fyrir sína hönd og liðsins. Hún hefur orðið Íslands, -deildar og bikarmeistari með Aftureldingu 12 sinn- um. Á síðasta ári var Kristina mikilvæg- ur hlekkur í uppbyggingu liðsins þegar liðið treysti á unga leikmenn og náði samt bronsverðlaunasæti í Íslandsmót- inu. Kristina hefur tekið þátt í lands- liðsverkefnum með íslenska landsliðinu síðan hún var unglingur og hefur hún tekið þátt í öllum landsliðsverkefnum sem íslenska landsliðið hefur tekið þátt í á árinu. Kristina var valin í lið ársins eftir leiktíðina 2018-2019 og einnig eftir fyrri hluta leiktíðarinnar 2019-2020. Kristina Apostolova blak Hafrún lék allt tímabilið 2019 með meistaraflokki Aftureldingar og hefur æft knattspyrnu með Aftureldingu frá 5 ára aldri. Í Lengjubikar var hún markahæst í riðli Aftureldingar með 5 mörk. Í Mjólkurbikar var hún markahæst ásamt 2 öðrum með 5 mörk. Í Íslands- mótinu/Inkasso-deildinni lék hún 17 leiki og skoraði í þeim 5 mörk. Hafrún Rakel var valin í Inkasso-lið ársins. Spilaði 5 landsleiki með U17 landsliðinu á árinu og skoraði eitt mark og 6 leiki með U19 landsliðinu eða samtals 11 landsleiki á árinu 2019. Hafrún spilaði með oftast hægri kant Aftureldingu, með landsliðunum spilar hún ýmist hægri bakvörð eða hægri kant. Góð fyrirmynd yngri iðkenda. Hafrún Rakel Halldórsdóttir knattspyrna Elsa Björg hlýtur nafnbótina frjáls- íþróttakona ársins. Elsa Björg hefur stundað frjálsar íþróttir af alúð mörg undanfarin ár og sýnt frábært fordæmi sem íþróttamaður. Elsa Björg hefur keppt á mörgum mótum fyrir hönd Aftureldingar sl. ár og náð góðum árangri. Helst er að nefna 2. sæti í hástökki á Meistaramóti Íslands, 2. sæti í hástökki á Stórmóti ÍR, 2. sæti í þrístökki á Unglingalandsmótinu, 2. sæti í hástökki á Silfurleikum ÍR og 3. sæti í hástökki á Unglingalandsmótinu. Elsa Björg hefur sýnt elju við æfingar og er góð fyrirmynd ungra og upprennandi íþróttastúlkna. Elsa Björg Pálsóttir frjálsar Aðalheiður Anna er fædd 1989 og búin að vera í hestamannafélaginu Herði alla tíð. Árið 2019 var mjög gott hjá henni, hún varð í 2. sæti í einstakl- ingskeppni Meistaradeildar Cintamani, varð Íslandsmeistari í samanlögðum fjórgangsgreinum ásamt því að fá reiðmennskuverðlaunin Fjöður FT fyrir góða reiðmennsku. Aðalheiður Anna var tilnefnd á upp- skeruhátíð hestamanna til íþróttaknapa og knapa ársins, var í landsliði Íslands, sýndi 20 hross í 1. verðlaun á árinu auk þess að vera alltaf í toppsætum á öllum þeim mótum sem hún keppti á í ár. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir hestaíþróttir Amalía gerði sér lítið fyrir og varð stigahæst kvenna á Íslandsmótinu í ólympískum lyftingum sem haldið var í Mosfellsbæ í febrúar. Þar snaraði hún 66 kg og jafnhenti 91 kg. Samanlagt lyfti hún því 157 kg og sigraði þar með í sínum þyngdarflokki sem er -64 kg. Amalía keppti einnig á Norðurlanda- mótinu þar sem hún bætti sig í saman- lögðum árangri og varð í 6. sæti. Hún lauk síðan árinu með frábærum árangri á jólamóti ÍSÍ þar sem hún snar- aði 76 kg og jafnhenti 96 kg, samanlagt 172 kg. Amalía er gríðarlega efnileg og á eftir að verða í fremstu röð íslenskra íþróttamanna. Amalía Ósk Sigurðardóttir kraftlyftingar

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.