Mosfellingur - 09.01.2020, Síða 26
- Mosfellingurinn Sigurbjörn Grétar Eggertsson26
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Blaksamband Íslands var stofnað árið 1972 og á næsta áratug þró-aðist blakið umtalsvert nær þeirri
mynd sem við þekkjum í dag. Í kjölfar
stofnunar sambandsins var landslið sett
á laggirnar og voru fyrstu landsleikirnir
spilaðir árið 1974, við Norðmenn.
Mosfellingurinn Sigurbjörn Grétar
Eggertsson tók við formennsku Blaksam-
bandsins sl. vor. Hann ásamt fjölda kraft-
mikilla einstaklinga eru að kortleggja
stöðuna til að sinna þeim fjölda verkefna
sem fram undan eru til að efla íþróttina
og ná sem bestum árangri.
Sigurbjörn Grétar eða Grétar eins og
hann er ávallt kallaður er fæddur í Reykja-
vík 19. september 1967. Foreldrar hans eru
þau Sigurlaug Þorleifsdóttir sjúkraliði og
Eggert Karlsson bifvélavirki.
Grétar á tvö systkini, Þorleif Karl f.1965
og Sesselju Kristínu f.1968.
Fljótur að aðlagast nýjum heimkynnum
„Fyrstu árin bjó ég á Eyrarbakka en
fjölskylda mín fluttist síðan á Hjallholt á
Vatnsnesi þar sem foreldar mínir tóku við
búi afa míns. Ég fór í heimavist í Laugar-
bakkaskóla í Miðfirði og hugsa með hlýjum
hug til þeirra ára.
Þegar ég var 10 ára fluttum við inn á
Hvammstanga og ég var töluvert fljótur
að aðlagast nýjum heimkynnum. Ég gekk í
grunnskólann og uppáhaldsfögin mín voru
íslenska, tungumál og saga. Ég var mikið í
íþróttum og æfði margar íþróttagreinar,
fótbolta, körfubolta, frjálsar íþróttir og
hlaup. Ég var líka í leikhússtarfinu svo það
var alltaf nóg að gera.
13 ára var ég farinn að taka að mér þjálf-
un yngri barna í fótbolta og svo starfaði ég í
málningarvinnu hjá Erni Guðjónssyni.“
Hafði aldrei farið til útlanda
Grétar var 15 ára þegar hann var valinn af
Lionshreyfingunni á Íslandi til að fara utan
í mánuð á þeirra vegum. Hann átti að búa
með 90 öðrum unglingum frá 30 löndum
í tvær vikur og vera síðan hjá
fjölskyldu eftir það. Hann gat
valið úr mörgum löndum og
valdi Ítalíu.
„Sveitastrákurinn ég hafði
aldrei farið til útlanda og hvað þá í flugvél
svo það reyndi á að fara einn. Þessi ferð
mótaði mig mikið og var gott veganesti út
í lífið. Ég kynntist ungmennum frá ólíkum
menningarheimum og fékk innsýn í þeirra
líf sem var gaman.“
Langaði að prófa eitthvað nýtt
Árið 1983 hóf Grétar nám við Mennta-
skólann á Egilsstöðum en skólafélagar hans
héldu í aðrar áttir. „Ég valdi þennan skóla
því mig langaði að prófa eitthvað nýtt, ég
hafði til dæmis aldrei komið til Egilsstaða.
Tíminn á heimavistinni var mjög skemmti-
legur, ég tók þátt í flestum lið-
um í íþróttum, uppsetningum
á leikritum og var um tíma
formaður nemendafélagsins.
Samhliða náminu starfaði ég á Vonarlandi,
þjónustumiðstöð fyrir þroskahamlaða.
Eftir tveggja ára dvöl fyrir austan fór ég
að æfa knattspyrnu með Hetti.“
Gefandi að vera innan um börnin
„Ein jólin þegar ég kom heim í frí þá var
ég svo heppinn að fá vinnu á leikskólanum.
Það þótti alveg nýtt að karlmaður tæki að
sér starf þar en það var mjög gefandi að
vera innan um börnin.
Eftir útskrift úr ME hélt ég á heimaslóðir
og fór að vinna aftur við að mála ásamt því
að vera í boltanum. Ég fékk síðan símtal þar
sem mér var boðin íþróttakennarastaða í
Laugarbakkaskóla sem ég þáði. Þaðan fór
ég á Skagaströnd og kenndi þar fjóra daga
í viku sem þýddi að þá voru langar helgar
fram undan. Við félagarnir vorum því dug-
legir að fara til Reykjavíkur til að skemmta
okkur. Í einni slíkri ferð hitti ég Guðrúnu
Elvu Sveinsdóttur hárgreiðslumeistara.
Guðrún er frá Egilsstöðum og við vissum
hvort af öðru þar. Við eigum saman tvær
dætur, Thelmu Dögg f.1997 og Daníelu f.
2002.“
Fluttu til Egilsstaða
„Ég flutti suður og hóf störf hjá Lækja-
rási, dagvistun fyrir þroskahamlaða. Síðan
fór ég yfir til Hrafnistu og fór að huga að
öldruðum ásamt því að þjálfa yngri flokka
í knattspyrnu. Ég hef lært mikið á því að
vinna með börnum, þroskahömluðum og
öldruðum.
Árið 1993 fengum við Guðrún boð um að
flytjast til Egilsstaða sem við þáðum. Ég fór
að spila með Hetti og Guðrún sinnti hár-
greiðslustörfunum. Við fluttum svo aftur
suður og keyptum okkur íbúð í Árbænum
og síðar í Grafarvogi. Ég starfaði við sölu
og þjónustu hjá Málningu, Harðviðarvali
og TVG Zimsen en frá árinu 2000 hef ég
starfað sem ráðgjafi hjá Motus.
Ég skellti mér í fjarnám í viðskiptafræði
og lauk því námi árið 2005 frá Háskólanum
á Akureyri.“
Heppinn að fá að taka þátt í þessu
„Við fjölskyldan fluttum í Mosfellsbæ árið
2002 og hér líkar okkur vel að vera. Guðrún
fór að taka þátt í blakinu hjá Aftureldingu
og Thelma dóttir okkar líka. Ég hélt mig við
fótboltann og spilaði með Umfus í dágóðan
tíma.
Fljótlega fór ég svo að sinna yngri flokka
starfinu í blakdeildinni. Þá var búið að
ákveða að setja á fót meistaraflokk kvenna
til að keppa í efstu deild. Ég var svo hepp-
inn að fá að taka þátt í þessu verkefni ásamt
fleirum.
Ég var í stjórn meistaraflokksins í um
fimm ár og þetta var áhugaverður og krefj-
andi tími. Blakið var á þessum tíma að ná
góðum árangri og hefur verið ein af sterkum
stoðum Aftureldingar. Í gegnum árin hafa
margir góðir einstaklingar unnið frábært
starf í deildinni en það er óhætt að segja
að Guðrún Kristín formaður deildarinnar
hafi borið hitann og þungann af þessu frá
upphafi og gert það með glæsibrag.“
Við eigum eftir að gera svo margt
Grétar ákvað að hætta í stjórn blakdeildar
Aftureldingar vorið 2018 en um haustið var
haft samband við hann og hann spurður að
því hvort hann væri tilbúinn til að bjóða sig
fram til formanns Blaksambands Íslands.
Hann tók sér góðan umhugsunarfrest, sló
til og var kosinn formaður á ársþingi BLÍ
þann 30. mars 2019 til tveggja ára.
„Það eru mörg verkefni og áskoranir
fram undan því blakið á svo mikið inni
en það er einmitt meginástæða þess að ég
tók þetta starf að mér. Við höfum verið að
kortleggja núverandi stöðu og eigum eftir
að gera margt til að efla íþróttina, keppnis-
lega, útbreiðslulega og ekki síst kynna hana
mun betur fyrir fólki
Í hreyfingunni er fjöldi kraftmikilla ein-
staklinga sem eru tilbúnir að lyfta blakinu
hærra og ná meiri árangri svo það eru bara
spennandi tímar fram undan,“ segir Grétar
brosandi er við kveðjumst.
Sveitastrákurinn ég hafði
aldrei farið til útlanda og
hvað þá í flugvél svo það reyndi
á að fara einn. Þessi ferð mótaði
mig mikið og var gott veganesti
út í lífið.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
HIN HLIÐIN
Fallegasti staður á Íslandi?
Hvítserkur á Vatnsnesi.
Hvað er það fyndnasta sem þú
hefur lent í? Þegar ég sendi út boð á
ýmsar uppákomur til fjölskyldu minnar úr
símanum mínum án þess að vita af því.
Þar á meðal á jazztónleika í Berlín sem
voru haldnir sama kvöld og boðið fór út.
Uppáhaldsrakspírinn? YOU frá Armani.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Íþróttakennari.
Bestu kaup sem þú hefur gert?
Kaupin á Hulduhlíð 4.
Hvað færðu þér á pylsu?
Allt nema hráan lauk.
Ef þú mættir taka með þér leynigest
í matarboð, hver yrði fyrir valinu?
Ég hefði áhuga á taka Jurgen Klopp
með í slíkt matarboð. Gæti verið mjög
áhugavert að fá að kynnast persónunni
og þeim aðferðum sem hann beitir.
Hvað getur þú sjaldnast staðist?
Að fara með góðum vinum í veiði, hvort
sem það er stangveiði eða skotveiði.
Fjölskyldan: Grétar, Thelma Dögg, Daníela, Guðrún.
á fermingardaginn
Blakið á svo mikið inni
Sigurbjörn Grétar Eggertsson ráðgjafi og formaður Blaksambandsins segir mörg verkefni fram undan til að efla íþróttina
á góðum degi
fjölskylda á fjöllum
spilað með hetti
HAPPY HOUR FRÁ KL. 21-23
PÖBB QUIS MEÐ
HJÁLMARI OG HELGA
HJÖBB
QUIZ
STÓRSKEMMTILEGT FÓTBOLTA-
QUIZ HJÖRVARS HAFLIÐA
FIM. 23. JAN FÖS. 31. JAN
FIM. 30. JAN
KL. 21:00
FIM. 16. JAN
BOLTATILBOÐ Í GANGI Á ÖLLUM LEIKJUM Í BEINNI
12” PIZZA MEÐ TVEIMUR ÁLEGGJUM 1.990 KR. EÐLAN MEÐ NACHOS 1.890 KR. BONELESS WINGS 10-12 STK. (FER EFTIR STÆRÐ) 2.490 KR. KJÚKLINGAVÆNGIR 20 STK. KRISPÝ EÐA HEFÐBUNDNIR 2.490 KR. STÓR Á KRANA 990 KR. GOS MEÐ ÁFYLLINGU 290 KR.
BREKKUSÖNGUR
HA
PP
Y
HO
UR
2
1-
23
Á
B
AR
NU
M
RÚ
TA
Í
BÆ
IN
N
BIGGI SÆVARS
FRÁ KL. 22 TIL 00
PÖBB QUIZ
HAPPY HOUR FRÁ KL. 21-23
NEI. HÆTTU
NÚ ALVEG
VILLI NAGLBÍTUR
ALLTAF NÓG UM AÐ VERA Á SPORTBARNUM
FYLGSTU MEÐ DAGSKRÁNNI Á FACEBOOK.COM/KEILUHOLLIN
FIM. 9. JANÚAR
F U LL OR ÐI NS
McGREGOR
LAU. 18. JAN
HVAR VERÐUR ÞÚ?
Pantaðu borð : keiluhollin@keiluhollin.is
C O W B O Y
vs.
HAPPY HOUR FRÁ KL. 21-23
HAPPY HOUR FRÁ KL. 21-23
Happy Hour á barnum
frá kl. 21 fram að bardaga
50% afsláttur í keilu
frá kl. 23 fram að bardaga
Eldhúsið opið fram að bardaga
Tilboð á kjúklingavængjum
og pizzu með 2 áleggjum