Mosfellingur - 09.01.2020, Síða 36

Mosfellingur - 09.01.2020, Síða 36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Freydís Árnadóttir fæddist 28. maí 2019. Hún var 13 merkur og 50 cm. Foreldar hennar eru Vigdís Sigmars- dóttir og Árni Gunnar Haraldsson. Fyrir eiga þau Eyþór Eld 5 ára. Í eldhúsinu LEGGÐU ÞIG FYRST Ég var þess heiðurs aðnjótandi að fara með stutt tölu á dögunum þegar íþrótt a- menn Aftureldingar voru útnefndir. É g var beðinn um að fara með hvatninga r- orð til ungra íþróttamanna og það var mér ljúft og skylt. Sjálfur hef ég þjálfað ungmenni í handbolta í að verða 20 ár og hef tínt hitt og þetta til sem gæti mögulega nýst þeim á vegferð sinni að frama á vellinum góða. Það sem ég ákvað að kynna fyrir gestum Hlégarðs var það sem ég kalla forgangspíramída íþróttamanns. Þær meginstoðir sem íþróttamenn þurfa að huga að og í hvaða röð. Hann er byggður upp á eftirfarandi hátt: svefn, næring, þjálfun, árangur. Svefn er undirstaða alls sem á eftir kemur. Það er í raun ótrúlegt hvað við sem samfélag tölum lítið um svefn og mikilvægi hans. Svefn er grunnurinn. Þar fer hin raunverulega endurheimt fram, þar æfum við í huganum æfinga r dagsins og byggjum upp líkamlega og andlega þrekið sem þarf til að takast á við þann næsta. Næst kemur næring (andleg og líkamleg) og síðan þjálfun (andleg og líkamleg). Ef þessar þrjár stoðir eru í réttum hlutföllum mun árangur fylgja. Langar þig að verða afreksíþrótta- maður? Æfingarnar eru ekki nema bro t af þeirri vegferð. Það getur hver sem e r hlaðið inn æfingum. Það er ekki æfing a- magnið sem ákvarðar árangur, heldur svefn og næring sem ákvarðar hvaða æfingamagn þú þolir. Lífstíll. Auðvitað skipta hæfileikar máli, en ég er löngu hættur að telja þann ótrúlega fjölda hæfileikaríkra íþróttamann sem ég hef þekkt í gegnum tíðina sem hafa ekki verið tilbúnir til að tileinka sér agann og lífstílinn sem þetta líf krefst. Afreksíþróttir eru ekki heilsurækt. Þæ r eru beinlínis heilsuspillandi, líkamleg a og í sumum tilfellum andlega líka. Til að þola álagið og auknar kröfur þarf lífstíllinn að vera í lagi. Aukaæfing í fyrramálið? Geggjað, legðu þig fyrst og fáðu þér svo næringa r- ríka máltíð. Þórdís og Dagbjartur skora á Gunnar og Bergþóru að deila með okkur næstu uppskrift Þórdís Sveinsdóttir og Dagbjartur Kr. Vilhjálmsson deila að þessu sinni með Mosfellingi uppskrift að vöfflum sem eru mikið bakaðar á þeirra heimili, við öll tækifæri og almenn kósýheit. Innihald: • 375 gr hveiti • 2 msk sykur/stevia. • 1/2 tsk salt • 3 tsk lyftiduft • 2 egg • 100 gr brætt smjör • dass af kardimommudropum • 5-7 dl mjólk (degið þarf að vera smá þykkt) • Súkkulaðispænir (ca 100-150 gr) - hrært saman við í lokin - Alveg punkturinn yfir i-ið! Aðferð: Blanda þurrefnunum saman fyrst, hræra svo eggin saman við og ca. helming af mjólkinni áður en smörið er sett út í, það minnkar líkurnar á kekkjum. Svo hræra restinni af mjólkinni rólega saman við. Passa að deigið verði ekki of þunnt. Við gerum einfalda uppskrift fyrir 5 manna fjölskyldu, ef það eru gestir 1,5x eða 2x.  Verðiykkuraðgóðu. áSGEIR JÓNSSON - Heyrst hefur...36 Heyrst Hefur... ...að Herra Hnetusmjör verði sérstakur gestur á Þorrablóti Aftureldingar sem fram fer að Varmá 25. janúar. ...að Gummi í Wurth hafi farið holu í höggi á Flórída yfir hátíðarnar. ...að World Class í Mosó muni stækka um helming um helgina þegar ný viðbygging verður tekin í notkun. ...að talsverð umræða séu um ofrukk- aða ávexti í eldri deild Varmárskóla og litla skammta í þeirri yngri. ...að Vallý á elliheimilinu sé að fara hætta störfum um næstu mánaðar- mót en þá verður hún sjötug. ...að Helgafellsbændur vilji skipu- leggja Ásana, þar sem keyrt er upp í Mosfellsdal, fyrir byggð. ...að gott betur en smekkfullt hafi verið á fullorðinsbingóum á Barion sem haldin voru um hátíðarnar. ...að leikfélagið ætli að setja upp fjölskyldusöngleikinn Stúart litli með vorinu. ...að íbúar í Leirvogstungu hafi fengið kaldar hátíðarkveðjur frá Sorpu en sorpfnyk lagði yfir hverfið bæði á aðfangadag og gamlársdag. ...að hestamenn hafi glatt Ingimar Sveinsson á dögunum með nýjum búnaði en brotist var inn í hesthúsið hans og höfðu þjófar á brott ýmsan verðmætan búnað. ...að Mosfellsbær leiti sér nú að nýjum lögmanni til starfa. ...að dansarinn Marta Carrasco sé komin aftur inn í þættina Allir geta dansað og dansi framvegis við bardagakappann Jón Viðar. ...að Kalli Lofts hafi verið með þeim fyrstu til að næla sér í bingóbinning á Barion en hann starfaði sem bankastjóri í fjölda ára í húsinu. ...að Stormsveitin haldi sína árlegu Þrettándatónleika í Hlégarði á laugardaginn og verður Stebbi Jak sérstakur gestur. Þeir hafa lofað góðu eftirpartýi. ...að forsalan á Þorrablót Afturelding- ar 2020 fari fram á Barion föstudag- inn 17. janúar kl. 17:00. ...að Mosfellingurinn Gunni Birgis úr Landanum hafi verið tekinn fyrir í Áramótaskaupinu. ...að Listapúkinn hafi málað myndir sem íþróttamenn Aftureldingar 2019 fengu í verðlaun á dögunum. ...að Stjörnu-Sævar verði á bókasafn- inu á Safnanótt þann 7. febrúar. ...að Agnes Wild og Andri eigi von á barni á árinu. ...að UMFUS hafi valið Bjössa sem Topman og Kidda Spinningman á sérstökum aðalfundi í lok árs. ...að Bjöggi málari verði fimmtugur um helgina. ...að búið sé að rífa hið sögufræga kaupfélagsstjórahús í holtinu, sem nefndist Steinar. ...að Stefanía Svavars sé búin að missa 15 kg á ketó. mosfellingur@mosfellingur.is Spóahöfða-vöfflur Hjá þórdÍsi og dag bjarti H á H o lt 1 4 - S . 5 6 6 8 9 8 9 É g æ t l a a ð b j ó ð a 20% a f s l á t t a f k l i p p i n g u ú t f e b r ú a r. E va D í s b j ö r g v i n S d ó t t i r H e f u r S t ö r f á a r i S t ó Sendið okkur myndir af nýjum Mosfellingum ásamt helstu upplýsingum á mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.