Fréttablaðið - 20.06.2020, Side 12

Fréttablaðið - 20.06.2020, Side 12
Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Nei, í öllum fjölbreyti- leika sínum er jörðin sameigin- legur vett- vangur alls mannkyns. Jón Þórisson jon@frettabladid.is Um eitt prósent mannkyns er á stöð-ugum flótta. Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna dregur þetta fram. Um áttatíu milljónir manna hafa hrakist frá heim-kynnum sínum af ýmsum ástæðum í leit að betra lífi. Í Fréttablaðinu sagði að af þessum fjölda væru 34 milljónir barna á flótta, fleiri en íbúar allra Norðurlandanna samanlagt. Í skýrslunni er bent á að síðasta áratuginn hafi þessi hópur tvöfaldast að stærð. Fram kemur að líkur fólks á að komast úr óþolandi aðstæðum hafi minnkað að mun. Á tíunda áratugnum hafi að meðaltali ein og hálf milljón flóttamanna snúið heim á hverju ári. En nú sé svo komið að fjöldi þeirra sé nærri 385.000 árlega. Vegalausum einstaklingum fjölgar því mun hraðar en lausnum sem þeim standa til boða. Stríðsátök eru meginorsök þess að fólk leitar betra lífs. Ítrekað virðist sem sú staðreynd komi okkur á óvart. Þegar stríð brýst út ætti fyrsta viðbragð ríkja að vera undirbúningur móttöku flóttafólks, en ekki að bíða eins og þurs. Á meðan verður vandinn óyfirstíganlegur og verkefnið vex ár frá ári. Sumt þessa fólks hefur verið á vergangi um langa hríð – jafnvel á meðan við fjösum yfir því að geta ekki komist á bílum okkar að dyrum allsnægta- verslana sem hér eru við hvert fótmál. Þó ofmælt sé að smjör drjúpi af hverju strái eru lífs- gæði hér að meðaltali með þeim mestu sem þekkjast og svo sannarlega gætum við veitt fleirum skjól en hér búa. Er ekki nær að við njótum þess í friði og látum öðrum eftir að leysa vandamál af þessu tagi? Nei, í öllum fjölbreytileika sínum er jörðin sameigin- legur vettvangur alls mannkyns. Við getum ekki sett kíkinn fyrir blinda augað. Þessi ógnarþróun er faraldri líkust. Þau svæði heims sem aflögufærust eru, hafa á síðari tímum reist enn frekari skorður við aðfluttu fólki. Jafnvel ríki eins og Bandaríkin, sem byggð eru að bróðurparti upp af aðfluttu fólki, sem leitaði þangað forðum í leit sinni að betra lífi. Þrátt fyrir bægsla- ganginn er Trump kominn af innflytjendum, eins og langflestir þarlendir. Innan Evrópu hafa menn einnig hert sömu skrúfur. Fólk í neyð sinni er hrakið fram og til baka og endar oft í verri aðstæðum en það flúði. Og þegjandi tökum við Íslendingar þátt í þessu. Auðvitað er það þannig að einhverjir reyna að hag- nýta sér aðstæður umfram þörf. En það getur ekki ráðið úrslitum. Allir menn verða að gera sitt til að létta undir með þessu ástandi á skynsamlegan og ábyrgan hátt. Íslensk stjórnvöld þar á meðal. Kvóti flóttamanna er spor í rétta átt. En það er vanmáttugt. Farsælast væri að enginn þyrfti að flýja heimaland sitt, en reynslan kennir að það er verðugt markmið, en fjarlægt. Þangað til verður að leysa úr vanda flóttafólks af festu og ábyrgð. Þó að Ísland geti ekki leyst nema lítið brot þessa hóps úr lífshættulegum aðstæðum, ber okkur ekki aðeins skylda til að gera það. Það er mann- vonska að gera það ekki. Þegar öllu er á botninn hvolft eru þjóðir heims á flótta undan vandanum. Og við líka. Á flótta GÓÐA FERÐ INNANLANDS   TAX FREE* af förðunarvörum, ilmvötnum og völdum húðvörum *19,35% verðlækkun Gildir 15. júní - 27. júlí 2020 í verslunum og í netverslun Ly Bylting á sér stað um gervöll Vesturlönd. Konur, sem margar hafa klæðst mjúkum jogging-fötum í heima-sóttkví síðustu mánaða, lýsa því nú yfir í hrönnum á samfélagsmiðlum að þær hyggist ekki fara aftur í þröngar gallabuxur og brjóstahaldara þegar þær stíga út í hinn nýja veruleika sem bíður okkar eftir COVID-einangrunina. Kórónaveiran hefur svipt hulunni af óþægi- legum sannleik: Gallabuxur og brjóstahaldarar eru ekkert annað en sjálfshýðing í boði tískuiðnaðarins. Óþægindi umrædds fatnaðar eru þó ekki eini huldi fáránleiki veraldarinnar eins og hún var fyrir COVID- 19 sem veiran afhjúpar nú um stundir. Viðskiptavinur eða varningur? Uppi á vegg heima hjá mér hangir breskt áróðurs- plakat úr síðari heimsstyrjöld. Um er að ræða teikn- ingu af föngulegri ungri konu í hnésíðum köflóttum kjól. Sveipuð pastellituðum fortíðarljóma gramsar hún í fataskáp. Hún heldur á nælonsokk sem hún skoðar af yfirvegun. Á plakatinu stendur: „Make-do and mend.“ Sýndu nægjusemi og bættu það sem þú átt. Plakatið er eitt af mörgum sem bresk stjórnvöld létu útbúa á styrjaldarárunum í þeim tilgangi að hvetja almenning á heimavígstöðvunum til að leggja sitt af mörkum til stríðsrekstursins: „Ræktaðu eigin mat.“ „Hermennina okkar vantar sokka: allir að prjóna.“ „Konur Bretlands, komið að vinna í verk- smiðjunum.“ Hér í Bretlandi þar sem ég bý, er baráttunni við kórónaveirufaraldurinn ítrekað líkt við heimsstyrj- öldina síðari. Í vikunni barst frá stjórnvöldum heróp til almennings, í anda þeirra sem heyrðust á stríðsár- unum og var ætlað að höfða til skyldurækni, fórnfýsi og ættjarðarástar Breta. Í lok mars var öllum verslunum öðrum en þeim sem seldu nauðsynjar á borð við mat og lyf, gert að loka dyrum sínum vegna kórónaveirunnar. Verslanir „sem selja óþarfa“ opnuðu aftur nú í vikunni. Boris Johnson forsætisráðherra sendi af því tilefni tilfinn- ingaþrungið ákall til bresks almennings. „Fólki ber að versla – og versla af dirfsku,“ sagði hann við þjóðina, þar sem hann stóð í einni stærstu verslunarmiðstöð Evrópu, Westfield í London. En rétt eins og brotthvarf gallabuxna og brjóstahaldara í sóttkvínni, afhjúpaði óskin óþægilegan sannleik þeirrar fölsku heims- myndar sem við bjuggum við fyrir COVID. Við búum við markaðsbúskap, hagkerfi sem sagt er tryggja okkur með skilvirkum hætti vörur og þjónustu sem okkur vantar eftir ótvíræðum lög- málum um framboð og eftirspurn. En ekki er allt sem sýnist. Forsætisráðherra Breta sagði þegnum sínum að gera skyldu sína og fara út að versla. Og hvað átti fólk að kaupa? Það skipti ekki máli. Bara eitthvað. Gríman er fallin og hið rétta andlit efnahags- kerfisins blasir við. Það felst í orðinu: Ónauðsynjar. Neyslan var aldrei leið að markmiði, heldur mark- miðið sjálft. Við vorum aldrei viðskiptavinirnir sem kerfið þjónaði af auðmýkt, heldur þvert á móti sjálfur varningurinn. Við vorum náttúruauðlind sem átti að nýta, virkja og vinna í þágu hagkerfisins. Við vorum lömb í markaðsbúskapnum, leidd til slátrunar, svo fæða mætti sísvangt efnahagslíf með mannslífum og tryggja heilagan, krónískan hagvöxt, að eilífu, amen. Ráðamenn á borð við Boris Johnson kunna að telja hamslausa neyslu móralska dáð, á pari við að prjóna sokka til að ráða niðurlögum fasismans. Sá fjöldi fólks sem fundið hefur frelsi í neysluleysi síðustu mánaða kann að vera ósammála. Neysluhagkerfið er eins og brjóstahaldari: óþægileg spennitreyja sem dregur úr lífsgæðum en sögð er veita okkur mikilvægan stuðning. En rétt eins og þær konur vita sem lögðu brjóstahöldurunum í kórónakvínni, er engin leið að hverfa aftur til fyrri hátta þegar frelsið er fundið. Hagkerfið er brjóstahaldari 2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.