Fréttablaðið - 20.06.2020, Page 21

Fréttablaðið - 20.06.2020, Page 21
fyrirtækið Tröppu og hittir tal­ meinafræðing tvisvar í viku í fjar­ þjálfun í gegnum netið og sjúkra­ þjálfunina sækir hún á Ísafjörð. Lyf á þróunarstigi veitir von Hákon Hákonarson, forstöðulæknir er fðarannsók naseturs bar na­ háskólasjúkrahússins í Fíladelfíu í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, er giftur móðursystur Katrínar og lofaði strax að hann myndi gera allt sem í hans valdi stæði til að finna lausn á veikindum hennar. Lyf sem hann mælti með að Katrín tæki vegna slímsöfnunar í lungum reyndist svo hafa góð áhrif á sjúkdóminn og hefur verið í rannsókn undanfarin ár. Hákon segir betur frá þeirri þróun í viðtali á blaðsíðu 20. „Það er verið að vinna að rann­ sókn á lyfinu þessa dagana, en það virðist hafa góð áhrif á sjúkdóminn til að fyrirbyggja þessa tegund heilablæðinga. Enn er ekki hægt að fullyrða um það hvort lyfið minnki líkurnar, en þær niðurstöður sem ég hef fengið að sjá og tengjast mér, gefa mér byr undir báða vængi. Mér finnst það dásamleg tilhugs­ un að veikindi mín og minn ótíma­ Aðspurð hvað læknar segi varð­ andi framtíðarhorfur svarar Katrín: „Ég hef ekki spurt þessarar spurn­ ingar því ég veit að það eru ekki til svör við henni.“ Draumarnir brotlentu Afstaða Katrínar til lífsins og stöðu sinnar er einstök og fagnaði hún því nú um miðjan júní að fimm ár voru liðin frá stóra áfallinu og spurði stórrar spurningar á blogg­ síðu sinni: Hvort hún væri að missa af lífinu eða endurheimta það. Hún kýs að líta svo á að hún hafi endur­ heimt líf sitt þennan dag, því hún vissulega lifði af áfall sem hefði getað dregið hana til dauða. „Þegar ég vaknaði eftir stóra áfallið og gat ekki hreyft neitt nema hægra augað, fór þá lífið fram úr mér, þar sem ég gat ekki fylgt draumum mínum eftir? Mig dreymdi um að fara í háskólanám og klára mastersnám. Mig langaði að halda áfram í söngnámi og jafn­ vel fara í leiklist. Þarna brotlentu þessir draumar og ég gat ekkert gert nema legið hreyfingarlaus. Hugurinn þráði samt enn þá þessa sömu hluti. Endurheimti ég lífið þá þennan dag með því að vakna, eða missti ég það þegar ég gat ekki lengur fylgt draumum mínum og þrám eftir? Ég er viss um að ég hafi endurheimt það. Ég fæ núna tækifæri til þess að blómstra á öðrum sviðum.“ Misstu allt í snjóflóðinu 1995 Árið 1995, þegar snjóflóð féll á Flat­ eyri og kostaði 20 manns lífið, var Katrín aðeins tveggja og hálfs árs gömul. Hún bjó þá í þorpinu ásamt foreldrum sínum og tveimur eldri systrum, í húsi sem faðir hennar, Guðjón Guðmundsson húsasmíða­ meistari, hafði byggt. Fjölskyldan svaf á efri hæð húss­ ins og bjargaðist öll og þó að Katrín muni ekki þennan dag hefur hann markað djúp spor í sálarlíf hennar. „Í f lóðinu misstum við allar verald­ legar eigur, en þær eigur var með tímanum hægt að bæta. Þarna misstum við þó fyrst og fremst fjöl­ skyldu og kæra vini og sú sorg mun alltaf búa með okkur og öllum íbúum Flateyrar. Ég var ótrúlega heppin að komast lífs af og fá að halda nánustu fjölskyldu minni, en eftir þetta skaut einhver kvíði rótum innra með mér, sem hefur fylgt mér alla tíð síðan.“ Katrín segir að sér líði vel á Flat­ eyri, þar sé hennar fólk og allt það sem hún þarf á að halda. „Ég á mörg áhugamál og hugðarefni og fæ aðstoð við að sinna þeim frá kærum vinkonum sem búa á Flateyri. Ég á líka tvær eldri systur sem hafa gert mig svo ríka með fjölskyldum sínum, börnum og mökum. Þær veita mér alveg endalausan styrk og ást og börnin þeirra eru miklir gleðigjafar. Ég er heppin að eiga svona stóra, trygga og samheldna fjölskyldu.“ Slitnaði upp úr sambandinu Þegar Katrín veiktist var hún eins og fyrr segir í sambandi við æskuást sína og stóð hann við hlið hennar í gegnum hvert áfallið á fætur öðru. Upp úr sambandinu slitnaði fyrir um ári og segir Katrín það hafa verið óumf lýjanlegt. „Þegar litið er til baka var þetta það eina rétta í stöðunni og hafði í raun þau áhrif á mig að mér fannst ég ekki lengur þurfa að standast neinar væntingar nema þær sem ég set sjálfri mér.“ Katrín heldur strangri daglegri rútínu og sinnir hugðarefnum sínum sem tengjast skrifum, eins og fyrr segir heldur hún úti bloggsíðu sem vakið hefur athygli, en útilokar ekki að eitthvað muni koma út eftir hana seinna meir. „Ég vakna alltaf klukkan átta og sest þá á skrifstofuna mína og fer að vinna. Svo vaknar öll fjölskyldan og við förum saman niður í eldhús og fáum okkur morgunverð. Klukkan eitt eru svo æfingar, annaðhvort talþjálfun eða sjúkraþjálfun. Þær standa alveg til klukkan þrjú eða fjögur og þá held ég áfram að vinna. Ég hef gaman af því að taka myndir, vinna þær og setja þær til dæmis inn á Instagram eða Insta­ gram Story. Ég hef líka mjög gaman af því að skrifa og finnst það mjög gefandi,“ segir Katrín sem er dugleg að uppfæra Instagram­síðu sína: katrinbjorkgudjons. Agnarsmáir sigrar Katrín hefur lært að fagna litlu sigr­ unum og jafnvel þeim pínulitlu og þeir gefa henni kraft til að halda áfram baráttunni þó að á brattann sé að sækja. „Stærsti litli sigurinn er sigur­ inn sem ég vann þegar ég slapp úr öndunarvélinni, en svo koma fleiri agnarsmáir sigrar. Að ná að kyngja örlitlu munnvatni, hreyfa fingur vinstri handar, gefa frá mér hljóð, fara í viðtal og svara svona persónu­ legum spurningum. Þetta eru allt pínulitlir sigrar sem eru sífellt að vinnast dag frá degi og verða svo að lokum að einum risastórum sigri,“ segir hún að lokum. ÉG VILDI BARA VERÐA EINS OG ÉG VAR FYRIR ÁFALLIÐ, LAUS VIÐ ÞENNAN HJÓLA- STÓL OG STAFASPJALDIÐ. bæri dauðadómur skuli hafa orðið hvati fyrir frænda minn til þess að finna og þróa fyrir mig lyf, sem mun mögulega bjarga mér og von­ andi mörgum öðrum. Lyfið veitir mér von og það breytir miklu að finna að allt það sem ég hef gengið í gegnum hafi, þegar allt kemur til alls, einhvern tilgang,“ segir Katrín. Jafnvægið mesti akkílesarhællinn Á fimm árum hefur ýmislegt gerst og bati Katrínar verið í rétta átt. „Fyrst eftir áfallið gat ég bara hreyft hægra augað. Nú get ég staðið upp með aðstoð og gengið um ef ég hef stuðning. Það er jafnvægið sem er minn mesti akkílesarhæll. Ég finn að mér fer fram og að styrkurinn eykst dag frá degi,“ segir Katrín sem hefur lært að batinn tekur tíma. „Fyrst eftir áfallið hélt ég að batinn yrði hraður eins og eftir fyrri áföllin og að ég myndi vinna hvern sigurinn á fætur öðrum. Svo liðu árin hratt og ég fann að ég varð óþreyjufull. Ég vildi bara verða eins og ég var fyrir áfallið, laus við þennan hjólastól og stafaspjaldið. Mér fannst ég eiga eftir að segja svo margt og fara svo víða. Því var það stór sigur sem ég vann þegar ég ákvað að ég gæti ekki f lýtt bat­ anum. Sigrarnir yrðu að fá að vinn­ ast á sínum tíma, hægt en örugglega, og ég gæti bara fagnað þeim einum af öðrum,“ segir Katrín einlæg. Katrín var aðeins 21 árs og á fullu í undir- búningi fyrir klásuspróf í hjúkrunarfræði þegar hún fékk fyrstu heila- blæðinguna. Katrín segir drauma sína hafa brotlent við veikindin en í dag fái hún þó að blómstra á öðrum sviðum. Katrín var virk í útivist og hreyf- ingu fyrir áföllin og var einmitt nýkomin af æfingu þegar fyrsta áfallið reið yfir. H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21L A U G A R D A G U R 2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.