Fréttablaðið - 20.06.2020, Page 30
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Það er ekki einungis súr-deigsgerð og reiðhjólaæði sem gripið hefur landann
á undanförnum mánuðum, því
mikill áhugi og ásókn hefur verið í
allt sem snertir veiði.
„Það er alveg sama í hvaða horn
er litið,“ segir Jóhann Sigurður Þor-
björnsson, eða Jói eins og flestir
kalla hann. „Það virðist vera mikil
vakning í öllu veiðitengdu.“
Fluguhnýtingafár
Jói er verslunarstjóri hjá Flugu-
búllunni og hefur verið frá haust-
mánuðum 2019. Jói er vel þekktur
meðal veiðimanna, enda hefur
hann verið viðloðandi veiði-
mennsku frá barnsaldri og hefur
síðastliðin 18 ár unnið í hinum
ýmsu verslunum borgarinnar
sem tengjast sölu á veiðitengdum
vörum.
Jói er þekktur fyrir að vera einn
besti og lærðasti f lugukastari
landsins. Hann hefur, í samstarfi
við Flugubúlluna, haldið fjölmörg
kastnámskeið frá því í byrjun
maí, ásamt Hilmari Jónssyni, eða
Himma Jóns, sem er FFI-vottaður
flugukastkennari og hefur margra
ára reynslu í kennslu í f lugu-
köstum. Uppselt hefur verið á öll
námskeiðin og er ekki ólíklegt að
fleiri námskeið verði haldin síðar.
„Mikil vakning virðist vera í
f luguhnýtingum því veturinn var
virkilega annasamur hjá okkur í
afgreiðslu á f luguhnýtingaefni af
öllu tagi. Í fyrra hófum við sölu
á f luguhnýtingaefni frá bresku
fyrirtæki sem heitir Turrall, en það
býður upp á breiða og skemmtilega
línu af f luguhnýtingaefni á virki-
lega hagstæði verði. Flugubúllan
er einnig umboðsaðili UMPQUA
frá Bandaríkjunum en þeir eru
með stærri merkjum þegar kemur
að öllu sem tengist f lugum og
fluguhnýtingaefni, en frá þeim
hófum við að selja ýmis tól og tæki
til f luguhnýtinga. Veturinn var
vonum framar, virkilega góður, og
það var mikið að gera dag hvern,“
segir Jói.
„Flugubúllan hóf rekstur sinn í
raun með sölu á f lugum, áður en
fyrirtækið var stofnað undir því
nafni sem það ber í dag, og hefur
síðan þá stóraukið úrvalið sem
boðið er upp á, hvort sem um er
að ræða fyrir silungsveiði eða lax-
veiði, og eru flugubarinn okkar án
efa einn af þeim stærri og flottari á
landinu. Við bjóðum upp á flugur
sem að langstærstum hluta eru
hnýttar hjá stórfyrirtækjunum
UMPQUA og Fulling Mill, en þar
fyrir utan er Flugubúllan söluaðili
fyrir fyrirtækin Fario Fly í Skot-
landi og Aqua Flies í Bandaríkjun-
um, en við erum einnig með eigið
teymi í Kenía sem hnýtir f lugur
fyrir okkur allt árið um kring.“
Konurnar ekkert síðri
Jói segir að greina megi mikla
fjölgun kvenna í veiðinni. Það
sé afar ánægjulegt enda gefi þær
körlunum ekkert eftir. „Okkar við-
skiptavinur er hinn hefðbundni
veiðimaður, hvort sem um er að
ræða silungsveiðimann eða lax-
veiðimann. Og það ánægjulega er
að það hefur orðið stóraukning
á konum í veiði og þær gera ekki
síður kröfur en karlarnir, enda
margar virkilega góðir veiðimenn.“
Konur sækist í gæði og ekki sé
verra að vörurnar séu fallegar.
„Vandaðar og góðar græjur er það
sem þær leita eftir, auk þess að vilja
líta vel út á bakkanum, en við hjá
Flugubúllunni seljum vöðlur og
fleira í kvensniðum frá bandaríska
stórfyrirtækinu Patagonia,“ segir
Jói. „Í fatnaði frá Patagonia eru þær
sérlega glæsilegar á bakkanum.“
Vönduð og virt merki
Í Flugubúllunni er allt sem við-
kemur flugu- og stangveiði.
„Flugubúllan sérhæfir sig í
f luguveiði og við bjóðum ótrú-
legt úrval af f lugum, flugulínum,
flugustöngum, fatnaði og öllu því
Halldór Gunn-
arsson, eigandi
Flugubúllunnar,
á góðri stundu
í Alaska. Veiði-
búllan býður
upp á ævintýra-
legar veiðiferðir
til Alaska.
Vöðlurnar fást í Flugubúllunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það er mikið
úrval listilega
hnýttra flugna á
flugubar Flugu-
búllunnar.
sem þarf til stangveiða frá heims-
þekktum framleiðendum, svo sem
Guideline, Wychwood, UMPQUA,
ALFA og Fulling Mill svo eitthvað
sé upp talið.“
Óhætt er að fullyrða að Flugu-
búllan sé sér á báti hér á landi
hvað úrval vandaðra veiðivara
varðar og þótt víðar væri leitað.
„Þess má einnig geta að Flugu-
búllan fékk stimpilinn Guideline
Pro Shop frá Guideline núna í
vetur, enda hefur Flugubúllan frá
upphafi verið stór söluaðili fyrir
þá hér á landi. Einungis fáeinar
Guideline-verslanir í Evrópu fá
þennan stimpil og er þetta því
mikill heiður. Það má því með
sanni segja að Flugubúllan sé
Guideline-búð allra landsmanna,
enda sendum við vörur sem
keyptar eru á vef okkar, f lugu-
bullan.is, hvert á land sem er,
kaupanda að kostnaðarlausu,“
skýrir Jói frá.
„Flugubúllan er einnig stærsti
söluaðili Wychwood Game í Evr-
ópu utan Bretlands, en Wychwood
er gamalgróið og virt merki frá
Bretlandi.“
Það er eitthvað fyrir alla í Flugu-
búllunni. „Og þó svo Flugubúllan
sérhæfi sig í f luguveiði, er einn-
ig ýmislegt á boðstólum fyrir
þá sem vilja til dæmis bara nota
hefðbundna kaststöng og spún.
Það fæst f lest til veiða hjá okkur í
Flugubúllunni.“
Nýjar og spennandi vörur
Þá nefnir Jói fjölda nýrra spenn-
andi vara sem nú eru á boðstólum.
„Það er margt nýtt þetta árið hjá
okkur í vöruúrvalinu. Þar má
fyrst nefna nýja línu f luguhjóla
frá finnska fyrirtækinu ALFA Fish-
ing en Flugubúllan hefur verið
umboðsaðili ALFA undanfarin tvö
ár og má með sanni segja að f lestir
séu farnir að kannast við þessi
stórglæsilegu f luguhjól, sem koma
í miklu litrófi. Þetta eru hjól sem
vekja eftirtekt á bakkanum.“
Jói segir mikla eftirvæntingu
hafa ríkt eftir nýju ARCTIC
línunni sem væntanleg er hvað
úr hverju. „Nýja línan af ALFA-
hjólunum sem ber nafnið ARCTIC
tafðist töluvert í framleiðslu vegna
COVID-faraldursins. Þau eru
loksins að koma til okkar, en það
eru margir orðnir óþreyjufullir
yfir biðinni, en fjölmargir hafa nú
þegar tryggt sér eintak úr fyrstu
sendingunum.“
Nýja ARCTIC línan kemur
í nýjum litum og fjölmörgum
stærðum og hentar fyrir allt frá
léttum silungsveiðistöngum að
tvíhendum.
„Svo má nefna RS línuna frá
Wychwood en þeir voru að koma
með arftaka Wychwood RS f lugu-
stanganna sem hafa farið sigurför
frá árinu 2016. Nýja línan sem
einfaldlega ber nafnið RS2 er að
margra mati orðin enn betri en
forverinn og er líklegt að þessar
stangir eigi eftir að fara svipaða
sigurför, enda gæðavara á virki-
lega hagstæðu verði. Wychwood
bætti einnig við glæsilegu nýju
f luguhjóli til að fullkomna RS
línuna og er það einfaldlega
kallað RS2 líka og kemur í þremur
stærðum sem henta á allar stærðir
RS2 stanganna,“ upplýsir Jói.
„Elevation stangalínan frá Gui-
deline kom einnig fram á sjónar-
sviðið þetta árið, en um er að ræða
ofurléttar, miðlungshraðar stangir
fyrir veiðimenn á öllum stigum.
Notast er við sjálf bært fram-
leiðsluferli og umhverfisvæna
hluti við framleiðslu á þessum
byltingarkenndu flugustöngum.“
Vöðlurnar fást líka í Flugu-
búllunni. „Patagonia er einnig að
koma með nýja línu af vöðlum
þetta árið og hefur sala á þeim
farið virkilega vel af stað enda um
sérlega glæsilegar og góðar vöðlur
að ræða. Um er að ræða SwiftCur-
rent Expedition vöðlulínuna,
sem bæði kemur með rennilás að
framan sem og án renniláss. Þessi
lína verður einnig í boði í kven-
sniði á næsta ári og hlökkum við
mikið til þess.“
Ævintýri í óbyggðum
Á síðasta ári hófu Flugubúllan og
bandaríska fyrirtækið Anglers
Alibi samstarf um veiði í Alaska.
„Anglers Alibi rekur einstaklega
flottar veiðibúðir í óbyggðum
Alaska þar sem veiðimenn eru lík-
legri til að mæta bjarndýri en öðru
fólki þegar það er við veiðar. Og
veiðin þarna er svo ótrúleg að það
er lyginni líkast.“
Svæðið sem veitt er á er stór-
brotið og lífríkið með ólíkindum.
„Veitt er í ánni Alagnak sem er
í Suðvestur-Alaska en þangað
gengur lax í magni sem hvergi ann-
ars staðar í heiminum er hægt að
sjá. Þetta eru ótrúlegar ævintýra-
ferðir sem láta engan ósnortinn,“
segir Jói dreyminn.
„Þónokkrir voru á leið til Alaska
í sumar í gegnum Flugubúlluna, en
COVID-faraldurinn hefur vissu-
lega sett strik í reikninginn fyrir
þá, því miður, en Anglers Alibi
hefur komið til móts við alla sína
viðskiptavini og bíður eftir þeim
sem ekki komast á þessu ári, á
næsta ári.“
Kynning verður á veiði í Alaska
í apríl á næsta ári, en þá munu
forsvarsmenn Anglers Alibi mæta
á staðinn og vera með flotta kynn-
ingu fyrir landann.
Við bjóðum ótrú-
legt úrval af f lug-
um, flugulínum, flugu-
stöngum, fatnaði og öllu
því sem þarf til stang-
veiða frá heimsþekktum
framleiðendum.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RVEIÐIBLAÐIÐ