Fréttablaðið - 20.06.2020, Side 43

Fréttablaðið - 20.06.2020, Side 43
Vilt þú móta íslenskt samfélag? Nánari upplýsingar um störfin ásamt menntunar- og hæfniskröfum er að finna á www.intellecta.is. Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem í stuttu máli er gerð er grein fyrir hæfni umsækjenda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, af öllum kynjum og aldri, eru hvattir til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Framkvæmdasýsla ríkisins leitar að öflugum liðsmönnum til að taka þátt í spennandi verkefnum á sviði framkvæmda-, leigu- og eignamála ríkisins, skv. nýju skipuriti sem tekur gildi 1. september 2020. Um er að ræða ný og krefjandi störf hjá þekkingarstofnun í hraðri framþróun. Framkvæmdasýsla ríkisins (FSR) er leiðandi afl á sviði opinberra framkvæmda og húsnæðisöflunar. Markmið okkar er að auka skilvirkni, hagkvæmni, gæði og samfélagslegan ávinning við framkvæmdir og húsnæðisöflun á vegum ríkisins. FSR er í fararbroddi við að innleiða vistvænar vinnuaðferðir og upplýsingalíkön mannvirkja (BIM) í byggingariðnaði á Íslandi. Meðal verkefna sem FSR vinnur að um þessar mundir eru undirbúningur uppbyggingar hjúkrunarheimila víða um land, Hús íslenskunnnar, ný skrifstofubygging Alþingis, gestastofur í þjóðgörðum, viðbygging við stjórnarráðshúsið, þróun stjórnarráðsreits og ofanflóðaverkefni víða um land, auk fjölbreyttra húsnæðisöflunarverkefna þar sem unnið er markvisst að innleiðingu nýjunga í skipulagi vinnuumhverfis. Lögð er áhersla á að starfsfólk sýni frumkvæði, fagmennsku og þjónustulund, njóti sín í starfi og hafi möguleika á að auka þekkingu sína og reynslu með markvissum hætti. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar má finna á: www.fsr.is Sviðsstjóri verkhönnunar og framkvæmda • Verkefnastjórn framkvæmdaverkefna á stigi verkhönnunar og framkvæmda • Eftirfylgni leiguverkefna á stigi verkhönnunar og framkvæmda • Útboð verkhönnunar, verklegra framkvæmda og eftirlitsþátta • Rekstur verksamninga • Framþróun umhverfis-, öryggis- og réttindamála í opinberum framkvæmdum • Þróun og eftirfylgni afhendinga, virkni- og viðtökuprófana • Þátttaka í framþróun forsagna og tæknilausna í opinberum húsnæðisverkefnum • Þátttaka í framþróun útboðs- og samningsforma vegna opinberra framkvæmda Helstu verkefni sviðsins verða: Sviðsstjóri fjárfestingaáætlana og greiningar • Þróun og vinnsla langtímaáætlana fyrir fjárfestinga- og eignamál ríkisins • Fjárhags- og gagnagreiningar vegna verkefna á vegum FSR • Skráning ríkiseigna • Uppbygging gagnagrunna fjárfestinga- og eignamála • Frum- og áhættumat framkvæmda- og leiguverkefna • Stuðningur við áætlanagerð annarra fagsviða FSR • Vinnsla verkefnaáætlana fyrir stærri framkvæmda- og leiguverkefni • Utanumhald kostnaðarbanka Helstu verkefni sviðsins verða: Lögfræðingur á skrifstofu forstjóra • Umsjón samninga vegna opinberra framkvæmda og tengdra ráðgjafar- og eftirlitsþátta • Umsjón samninga vegna leiguverkefna • Lögfræðileg ráðgjöf til forstjóra, framkvæmdastjórnar og fagsviða FSR • Hlutverk verkkaupa gagnvart aðkeyptri lögfræðiráðgjöf • Gerð umsagna og svör við fyrirspurnum • Þátttaka í þróun regluverks á sviði framkvæmda- og eignamála ríkisins • Þátttaka í framþróun réttindamála í verklegum framkvæmdum • Þátttaka í framþróun útboðs- og samningsforma vegna opinberra framkvæmda og leiguverkefna Helstu verkefni: Verkefnastjóri á sviði þróunar eigna og aðstöðu • Verkefnastjórnun framkvæmda- og leiguverkefna á stigi frumathugunar og frumhönnunar • Vinnsla forathugana og frumáætlana sbr. verklagsreglna um opinberar framkvæmdir • Vinnsla þarfagreininga og notendaráðgjöf því tengd • Vinnsla útboðsgagna og eftirfylgni vegna innkaupa á ráðgjöf • Þátttaka í vinnslu forsagna og undirbúningi leiguverkefna • Fjölbreytt ráðgjöf til viðskiptavina FSR um húsnæðis- og aðstöðumál • Þátttaka í frumkvæðisverkefnum innan FSR Helstu verkefni: Leitað er að öflugum og reynslumiklum stjórnanda með framúrskarandi getu til að byggja upp öflugt teymi. Leitað er að öflugum og reynslumiklum stjórnanda með framúrskarandi getu til að byggja upp öflugt teymi. Lögfræðingur mun starfa á skrifstofu forstjóra og koma að fjölbreyttum úrlausnarefnum á sviði eigna-, leigu- og framkvæmdamála hins opinbera. Leitað er að öflugum verkefnastjóra með haldbæra reynslu af framkvæmdaverkefnum á undirbúnings- og þróunarstigi. Nánari upplýsingar: Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2020 Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.