Fréttablaðið - 20.06.2020, Síða 64

Fréttablaðið - 20.06.2020, Síða 64
Það má matreiða lax á marg­víslegan hátt. Sumum finnst hann bestur soðinn með smjöri á meðan aðrir vilja hann grillaðan eða bakaðan. Áður fyrr var afgangur af soðnum laxi oft settur í majónes með eggjum, tómötum og agúrku. Úr því varð til fínasti réttur. Þá var ekki boðið upp á asískar vörur í verslunum og fólk þekkti ekki lax með núðlum og sojasósu. En nú er öldin önnur og er þá ekki bara gaman að prófa eitthvað nýtt. Hér er lax sem er matreiddur á asískan hátt með hrísgrjóna­ núðlum og grænmeti. Lax með núðlum 6-700 g laxaflak (má nota silung) Salt og pipar Olía til steikingar Hrísgrjónanúðlur Sesamfræ ½ límóna Sósa ¾ dl sæt sojasósa ½–1 rauður chilli-pipar, smátt skorinn 2 tsk. fínrifið engifer 1 stór hvítlaukur, pressaður 1–2 tsk. sesamolía ½ límóna, safinn Pak choi salat 1–2 pak choi, (blaðkál) skorið 1 rauðlaukur, skorinn 1 rauð paprika, í þunnum strimlum 2 gulrætur, í þunnum strimlum 1 epli, skorið í bita Ferskt kóríander Hrærið saman allt sem á að fara í sósuna og bragðbætið með límónusafa. Ef þú færð ekki sæta sojasósu er hægt að bæta hunangi út í venjulega sojasósu. Einnig má skipta út chilli­pipar fyrir sri­ racha­sósu. Skerið laxinn í jafna bita og steikið hann í olíu í 2–3 mínútur á annarri hliðinni á meðalhita. Snúið honum þá við og steikið í smástund í viðbót. Gætið að því að ofelda ekki fiskinn. Látið hann hvíla í nokkrar mínútur áður en hann er borinn fram. Skerið niður grænmetið og steikið á háum hita (á wok­pönnu ef hún er til) í grænmetisolíu. Það má skipta út pak choi fyrir kínakál eða spínat. Í lokin er fersku kóríanderi dreift yfir. Sjóðið núðlurnar eftir leið­ beiningum á pakkanum. Það má skipta út núðlum fyrir hrísgrjón. Berið laxinn fram með grænmeti og núðlum ásamt sósunni. Frábær fiskisúpa Það er alltaf gott að fá holla og góða fiskisúpu. Hafið allt til­ búið fyrir fram áður en byrjað er á súpunni. Fiskurinn er settur út í stuttu áður en gestirnir setjast til borðs. 300 g bláskel 5–600 g lax, þorskur, steinbítur eða hvað sem hugurinn girnist 150 g rækjur 1 laukur 2 hvítlauksrif, smátt skorin 1 rauður chilli-pipar, smátt skorinn 2 dl hvítvín 3 dl rjómi 125 g smjör 1 lítri fiskisoð 250 g sellerírót, skorin smátt 2 gulrætur, skornar smátt 1 blaðlaukur, skorinn smátt 1 fennel, smátt skorið Salt, pipar og ferskar kryddjurtir, til dæmis basilíka, steinselja og graslaukur Byrjið á að undirbúa eldamennsk­ una með því að skera niður allt grænmeti, hreinsa fiskinn og skera hann í 2x2 cm bita. Skolið blá skelina vel í köldu vatni og hreinsið hana ef með þarf. Skelin á að opnast strax við suðu, ef ekki, skal henda henni. Byrjið á að steikja lauk, hvít­ lauk og chilli­pipar í smásmjöri í stórum potti. Þar á eftir kemur hvítvín og bláskel. Setjið lokið á pottinn og sjóðið í 2–3 mínútur eða þar til skelin opnast. Takið skeljarnar frá og setjið í skál á meðan haldið er áfram með súpuna. Kjötið er tekið úr f lestum skeljum en nokkrar skildar eftir til skreytingar. Bætið nú grænmeti, fiskikrafti og rjóma saman við bláskeljasoðið. Látið suðuna koma upp og sjóðið í 2 mínútur. Bætið þá smjörinu saman við. Rétt áður en súpan er borin á borð er fiskurinn settur saman við og allt látið malla í þrjár mínútur. Bætið þá við rækjum, bláskel og ferskum kryddjurtum. Bragðbætið með salti og pipar eftir því sem þarf. Berið súpuna fram með góðu brauði. Vöfflur og lax Vöfflur geta passað vel með kjöti eða reyktum laxi. Hér er uppskrift að grófum vöfflum sem bornar eru fram með laxi. Skemmtilegur smáréttur. 75 g hveiti 75 g heilhveiti 35 g haframjöl ¼ tsk. salt ½ tsk. lyftiduft 3½ dl mjólk ½ dl vatn 2 egg 2 msk. smjör Epla- og fennelsalat 1 fennel, í þunnum strimlum 100 g sellerírót, í þunnum strimlum 1 epli 1 sítróna, börkur og safi 100 g sýrður rjómi 2–3 msk. majónes 1 msk. dijon-sinnep Salt og pipar 200 g reyktur lax Hrærið fyrst saman öllum þurr­ efnum. Síðan er eggjunum bætt saman við og hrært áfram þannig að deigið verði kekkjalaust. Best er að nota hrærivél. Þá er mjólk, vatni og bræddu smjöri bætt við. Bætið við meiri vökva ef deigið er of þykkt eða hveiti ef það er of þunnt. Látið deigið standa í 30 mínútur áður en vöfflurnar eru bakaðar. Uppskriftin ætti að gefa átta vöfflur ef bakað er með vöfflujárni fyrir belgískar vöfflur. Hreinsið grænmeti og skerið niður. Best er að nota mandólín ef það er fyrir hendi. Kreistið smá sítrónusafa yfir grænmetið. Hrærið sýrðum rjóma, majónesi og sinnepi saman og bætið fínt rifnum sítrónuberki út í ásamt salti og pipar. Hrærið saman við grænmetið. Setjið reyktan lax og salat á nýsteikta vöfflu. Góðgæti á borðið með laxi Nýveiddur lax eða silungur er lostæti sem gaman er að matreiða. Heppnir veiðimenn geta sann- arlega slegið upp veislu ef lax er til í húsinu. Það er hægt að gera ýmsar útgáfur með gott hráefni. Lax á asískan hátt með núðlum eða hrísgrjónum eftir vali. MYND/GETTY Fiskisúpa með bláskel og laxi er hreinasta veisla fyrir bragðlaukana. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is ASKJA • Söludeild Honda Fosshálsi 1 • 110 Reykjavík • 590 2910 • askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Honda á Íslandi. Skoðaðu úrvalið á netverslun.honda.is Tæki sem þú getur treyst Gúmmíbátar og utanborðsmótorar í miklu úrvali 8 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RVEIÐIBLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.