Fréttablaðið - 20.06.2020, Síða 66
Við afi fórum mikið saman að veiða í öllum fríum þegar ég var strákur. Við veiddum
ýmist vatnakarpa, geddu eða
steinbít í hinum ýmsu vötnum
og ám í Póllandi. Einnig fór ég
oft að veiða með móður minni
og bróður áður en ég f lutti til
Íslands,“ segir Roman, sem hefur
starfað sem bílstjóri hjá Strætó
í tvö ár. Áður keyrði hann rútu
fyrir eitt af ferðaþjónustufyrir-
tækjunum í Reykjavík.
Roman f lutti til Íslands árið
2007 með konu sinni og eftir að
hafa búið hér í eitt ár byrjaði
veiðiþráin að láta kræla á sér.
Veiðiáhuginn hefur í raun aldrei
dvínað hjá Roman, enda segir
hann þetta áhugamál veita sér
ró og frið. „Veiðin gerir mér kleift
að vera í snertingu við náttúruna
og upplifa hana á ævintýralegan
máta. Ég get skilið öll vandamál
eftir og unað áhyggjulaus við
vatnsniðinn.“
Roman fer mikið að veiða í frí-
stundum. „Ég reyni að nýta hvert
tækifæri sem gefst, en að sjálf-
sögðu er konan með í ráðum, og ef
hún hefur eitthvað annað í huga
þá að sjálfsögðu gerum við eitt-
hvað saman.
Ég hef mest gaman af því að
veiða urriða, lax, sjóbirting og
bleikju. Þá veiði ég reglulega í
Þingvallavatni enda er það uppá-
haldsveiðistaðurinn minn, en
ég hef líka skellt mér í laxveiði í
Rangá og á f leiri stöðum kringum
Hann var um metri
að lengd og hvorki
meira né minna en níu
kíló.
Fékk heldur
óvæntan gest
á öngulinn
Roman Wodowski var ungur þegar
hann fór í fyrstu veiðina með afa sín-
um. Þá var hann bara fimm ára gutti í
Póllandi, en áhuginn kviknaði strax.
Roman heldur hér á glæsilegum laxi úr Rangá.
landið, bæði í vötnum, ám og við
ströndina. Markmiðið er ekki að
veiða til matar. Ég er mestmegnis
í því að veiða fiskinn og sleppa
honum svo.“ Stærsti fiskurinn sem
Roman hefur veitt á Íslandi var
urriði úr Þingvallavatni. „Hann var
um metri að lengd og hvorki meira
né minna en níu kíló.“
Óvæntur gestur
Eitt sinn var Roman að veiða við
ströndina ekki langt frá Selfossi
og fékk heldur óvæntan gest á
öngulinn: „Ég var á höttunum eftir
þorski og ýsu. Það beit á öngulinn
og ég dró inn. Kemur þá ekki upp
úr kafinu vígalegur hákarl. Hann
hefur verið um 5-6 kíló og um
metri að lengd. Ég sleppti honum
að sjálfsögðu aftur eftir að hafa
smellt af einni mynd á símann. Því
miður á ég ekki myndina lengur
því þessi sími eyðilagðist. Þetta
var í fyrsta og eina sinn sem ég hef
nokkurn tíma veitt hákarl.“
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Fylgstu með á
á Hringbraut
FRÉTTAUMRÆÐA, MENNING, HEILSA,
LÍFSREYNSLA OG NÁTTÚRA
Íslenskt sjónvarpsefni í 5 ár
21
frétta- og umræðuþáttur með áherslu á
pólitík, þjóðmál, menningu og lífsreynslu.
Bærinn minn
Þáttaröð um þá töfra sem bæjarfélögin
á Íslandi hafa upp á að bjóða.
Bílalíf
Fjörlegur og fjölbreyttur þáttur um
bílana okkar í leik og starfi.
Fasteignir og heimili
Upplýsandi og fróðlegur þáttur um
fasteignir, heimili og húsráð af öllu
tagi.
Helgarviðtalið
Björk Eiðsdóttir, ritstjóri helgarblaðs
Fréttablaðsins, fer dýpra í efnistök
blaðsins.
Mannamál
Einn sígildasti viðtalsþátturinn í
íslensku sjónvarpi, opinskár og
hispurslaus.
Suðurnesjamagasín
Skoðar mannlífið, atvinnulífið og
íþróttirnar suður með sjó.
Undir yfirborðið
Varpar ljósi á allt það sérstæða í lífinu
sem stundum er falið og fordæmt.
Kynntu þér alla dagskrána á hringbraut.is
10 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RVEIÐIBLAÐIÐ