Fréttablaðið - 20.06.2020, Page 78
Lestrarhestur vikunnar Þrymur Magnús
Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Bókabeitan efna til sumarlesturs fyrir krakka. Verið velkomin í
bókasafnið í ykkar hverfi og takið þátt í lestrarleiknum. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók að
gjöf og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur.
„Jæja já, tölusúpa,“
sagði Kata og var ekki
par hrifin. „Hvað eigum
við að gera við þessa
tölusúpu?“ Lísaloppa
las leiðbeiningarnar.
„Við eigum að byrja á
bláu tölunni tveir og
með því að fylgja bara
sléttum tölum lóðrétt
og lárétt, finna leiðina
upp á töluna 8 á toppi
teningsins.“ „Sléttar
tölur og oddatölur, það
kann ég nú,“ sagði Kata
hróðug. „Eru annars 2,4,
6 og 8 ekki sléttar tölur?“
„Jú,“ sagði Lísaloppa.
„Vindum okkur þá
í þetta,“ sagði Kata
ákveðin. „Ekki eftir
neinu að bíða.“
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
408
Getur þú fundið leiðina í gegnum talnateninginn
??
?
7 5 3 6 8 1 4 6 4 2 3 5
8 2 4 5 6 9 7 8 5 6 4 2
6 5 2 4 2 5 1 2 4 3 7 8
2 6 5 3 5 3 9 1 8 5 2 3
9 4 7 2 6 8 3 2 4 3 4 2
4 2 5 8 9 4 2 6 5 1 7 8
2 3 2 6 3 5 7 1 3 5 2 4
1 5 4 8 1 2 6 4 1 6 4 3
2 8 9 4 8 4 5 6 2 4 9 2
6 4 2 3 4 7 2 5 3 1 8 6
7 2 1 4 2 6 4 8 4 2 7 2
2 6 2 8 7 3 2 1 7 6 4 6
4 2 8 5 4 2 8 3 4 2 3 6
8 7 6 2 5 4 7 2 7 2 4 2
2 3 1 4 2 6 5 6 2 3 7 6
4 6 2 5 1 3 8 7 8 5 2 4
4 3
8 7
2 4
4 3
2 6
3 9
7 6
8 4
2 3
8 4
5 2
2 6
4 1
8 6
2 3
8 9
2 6
5 2
2 6
9 4
6 2
7 9
2 8
5 6
8 2
9 3
2 4
5 6
3 8
4 2
7 9
8 5
??
„Helstu áhugamálin mín eru fim
leikar,“ segir Hekla aðspurð. „Ég
er að æfa í Gróttu þar sem ég er á
fimmta þrepi í áhaldafimleikum.“
Hvernig eru áhaldafimleikar?
„Áhaldafimleikar eru eiginlega
venjulegir fimleikar en þá er maður
á slá og alls konar þannig og maður
dansar einn á mótum. Í hópfimleik
um dansar maður í hóp og er ekki
á slá og heldur ekki á tvíslá, maður
er þá bara mest í stökki og eitthvað
þannig. Það væri örugglega alveg
gaman að vera í hópfimleikum en
það hentar mér eiginlega bara betur
að vera í áhaldafimleikunum.“
Hekla æfir fimleika fjórum sinn
um í viku en var því miður veik
þegar hópurinn hennar keppti á
móti nýverið. „Stundum er erfitt
að mæta á æfingar fjórum sinnum
í viku en mér finnst samt aldrei
leiðinlegt,“ segir Hekla, enda segist
hún æfa með mjög skemmtilegum
stelpum.
„Ég hef líka áhuga á dansi og hef
verið í samkvæmisdansi í skólanum
og mér finnst það ekki gaman, því
þá þarf maður að dansa við stráka.
En í ágúst ætla ég að fara á dans
námskeið með vinkonu minni.“
Hekla er í þriðja bekk í Ísaksskóla
en þar byrjaði hún þegar hún var
fimm ára. „Það er gaman í Ísaks
skóla og besta vinkona mín heitir
Valva. Nú í sumar þurfum við ekki
að vinna heimavinnu, heldur eigum
við bara að lesa til að halda okkur
við.“
Þegar Hekla er spurð hvað hana
langi að verða þegar hún verður stór
hugsar hún sig um og svarar svo: „Ég
er ekki alveg viss en ég held ég ætli
að verða gullsmiður og búa til skart
gripi.“
Hekla á hund sem heitir Hollý og
er augljóst að Hollý er í miklu uppá
haldi.
„Hollý er fiðrildahundur, papill
on. Þeir eru með risastór eyru. Ég
er kannski ekki mikið að sjá um
hana, en ég fer stundum með hana
út að labba og ég á fullt af myndum
af henni. Hún er svolítið hávær og
algjör frekja.“
Hekla á ekki bara hund, hún á
líka lítinn bróður. „Hann heitir
Víkingur Bjarkar og er nýorðinn
eins árs. Hann er mjög sætur og
skemmtilegur en stundum smá
frekja inn á milli.“
Það má heyra á Heklu að henni
finnist bæði gaman að eiga hund
og lítinn bróður, þó að hún segi að
það sé ólíkt. Hver ætli sé þó helsti
munurinn á þessu tvennu? „Aðal
munurinn er að Víkingur er barn
og Hollý, hún er hundur.“ Þar hafið
þið það!
Fimleikastelpa
sem langar að
læra gullsmíði
Hekla Karlsdóttir er átta ára – að verða
níu ára, nemandi við Ísaksskóla, sem æfir
áhaldafimleika fjórum sinnum í viku, sem
getur verið erfitt – en er sjaldnast leiðinlegt.
Hekla á háværan fiðrildahund sem heitir Hollý. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
ÉG ER KANNSKI EKKI
MIKIÐ AÐ SJÁ UM
HANA, EN ÉG FER STUNDUM
MEÐ HANA ÚT AÐ LABBA OG ÉG
Á FULLT AF MYNDUM AF HENNI.
ÉG LES OFT SYRPUR.
ÉG LAS LÍKA SKRÍMSL-
IÐ LITLA SYSTIR MÍN OG NÖNNU
NORN.
Hvernig bækur þykja þér
skemmtilegastar? Myndasögur
og bækur eftir Ævar vísinda-
mann.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún? Syrpu, ég les oft
Syrpur. Ég las líka Skrímslið litla
systir mín og Nönnu norn.
Hvaða bók ætlarðu að lesa
næst? Syrpu.
Ef þú myndir skrifa bók, um
hvað væri hún? Vampírur sem
bíta alla, líka börn.
Ef þú mættir velja þér persónu
úr bók til að ferðast um Ísland
með, hver væri hún? Hábeinn
heppni.
Hvernig munduð þið ferðast?
Með flugvél til Akureyrar.
Manstu eftir fyrstu bókinni
sem var í uppáhaldi hjá þér?
Man það ekki en mamma segir
Barbapabbi.
Ferðu oft á bókasafnið? Já, einu
sinni eða tvisvar í viku.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Vera í tölvunni og lesa bækur.
Í hvaða skóla ertu? Árbæjar-
skóla.
2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR