Fréttablaðið - 20.06.2020, Page 84
ÞETTA KEMUR Á
EINSTAKLEGA GÓÐUM
TÍMAPUNKTI ÞAR SEM ÉG ER,
EINS OG AÐRIR TÓNLISTAR-
MENN, BÚINN AÐ VERA AT-
VINNULAUS Í ÞRJÁ MÁNUÐI.
Benedikt Kristjánsson
Sóley Stefánsdóttir, söng-kona og tónskáld, og Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari, hlutu árleg verðlaun úr Minningar-sjóði Kristjáns Eldjárns
gítarleikara. Athöfnin fór fram í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar.
Hlaut hvort þeirra eina milljón
króna úr sjóðnum.
Sóley hefur gefið út plötur og
unnið að tónlist fyrir leikhús, kvik-
myndir, dansverk og stuttmyndir.
Hún hefur f lutt tónlist sína víða
um heim og á dyggan aðdáenda-
hóp. Benedikt hefur komið fram
í tónleikahúsum og óperuhúsum
víðs vegar um heim og unnið með
virtum stjórnendum.
Vinnur að nýrri plötu
„Ég er óskaplega þakklát og það er
mikill heiður að vera valin,“ segir
Sóley. „Þessi viðurkenning kemur
sér gríðarlega vel. Mín helsta inn-
koma er af tónleikaferðum en þeim
hefur nánast alfarið verið aflýst út
árið.“
Þessa dagana er hún að leggja
lokahönd á fjórðu breiðskífu sína.
„Tónlistin á plötunni er elegía til
móður okkar allra, jarðarinnar, og
fjallar um það hvernig við erum
hægt og bítandi að eyðileggja hana.
Þetta gæti til að mynda verið tónlist
sem maður setur á fóninn síðasta
daginn fyrir endalokin,“ segir Sóley.
Hún segist þegar vera farin að
leggja drög að næstu plötu. „Ég ætla
að nýta þennan styrk til að hefjast
strax handa við næstu plötu, en hún
er hugmyndalega séð beint fram-
hald af þessari sem ég er að ljúka við
núna.“ Hún segir að á þeirri plötu
verði eingöngu leikin tónlist, þar
séu engir textar. „Kannski fjallar
sú plata um daginn eftir að allt er
búið. Ætli ég leiki mér ekki þar að
hugmyndinni um tímann og blandi
hljóðheimi jarðarinnar við hljóð-
heiminn minn.“
Fastur í Berlín
Benedikt Kristjánsson er fastur i
Berlín vegna COVID-19 og faðir
hans Kristján Valur Ingólfsson tók
við verðlaununum fyrir hönd sonar
síns. Blaðamaður sló á þráðinn til
Berlínar og ræddi við þakklátan
verðlaunahafa.
„Þetta gríðarlega mikill heiður
því þetta er ekki styrkur sem maður
sækir um heldur er maður valinn,“
segir Benedikt og bætir við: „Þetta
kemur á einstaklega góðum tíma-
punkti þar sem ég er, eins og aðrir
tónlistarmenn, búinn að vera
atvinnulaus í þrjá mánuði.“
Spurður hvort ástandið sé ekki
verulega slæmt fyrir söngvara um
þessar mundir segir hann: „Þetta er
skelfingarástand fyrir söngvara og
fullt af sjálfstætt starfandi tónlistar-
mönnum sem sjá jafnvel ekki fram
á að geta haldið þessu starfi áfram.“
Hann segir að fyrst núna séu ein-
hver hjól byrjuð að snúast varðandi
hann sjálfan. „Ég átti að syngja
Jóhannesarpassíu Bachs í Köthen
en ekki verður af því, í staðinn
verður verkið tekið upp í kirkju og
sett á vídeó. Í byrjun ágúst syng ég
í óperunni Cosi fan tutte eftir Moz-
art sem sett verður upp í COVID-19
fjarlægð í stórum sal í Berlín. Þar
verður strengjasveit og söngvar-
arnir verða eins og brúður sem
hreyfa sig ekki.“
Þakklátir og glaðir verðlaunahafar
Sóley Stefánsdóttir og Benedikt Kristjánsson hlutu verðlaun úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns
gítarleikara. Sóley vinnur að nýrri plötu og Benedikts bíða verkefni eftir verkefnalaust COVID-tímabil.
„Ég er óskaplega þakklát,“ segir Sóley. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Þetta er gríðarlega mikill heiður,“ segir Benedikt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UPPBYGGJANDI
RITMENNSKA
AÐ SKRIFA SIG ÚR SKUGGANUM Í LJÓSIÐ
Innifalið:
Gisting í þrjár nætur, ljúffengur og hollur matur,
aðgangur að sundlaugum, baðhúsinu
Kjarnalundi og líkamsrækt, hóptímar, fræðsla
og slökun.
Umsjón:
Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur.
Verð með gistingu frá fimmtudegi til
sunnudags er 59.000 kr. pr. einstakling.
Berum ábyrgð á eigin heilsu www.heilsustofnun.is
Námskeið frá mmtudegi til sunnudags, 9.-12. júlí 2020
Steinunn Sigurðardóttir leiðbeinir þátttakendum við að nota ritmennsku
til þess að byggja sig upp
Unnið verður með texta sem þátttakendur skrifa í
dvölinni. Leitað verður skapandi skriflegra leiða til
þess að tjá erfiðar tilfinningar. Reynt verður að
skoða þessa líðan utan frá með textann sem kíki.
Ritmennskuaðferðin, með hópeflinu, er notuð
sem tæki til þess að stuðla að betri líðan og skapa
uppbyggjandi kraft fyrir þá sem glíma við óyndi,
áhyggjur, kvíða.
Á seinni stigum námskeiðs verður áherslan á að
þjálfa þátttakendur í að tjá skriflega jákvæðar og
uppbyggjandi tilfinningar.
Skráning í síma 4830300
eða heilsa@heilsustofnun.is
Kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér réttinn á glæpa-
sögunni Tíbrá eftir Ármann Jak-
obsson, sem út kom hjá Bjarti á
dögunum. Tíbrá er þriðja glæpasaga
Ármanns og hefur hún hlotið góðar
viðtökur, setið á metsölulistanum í
Eymundsson frá fyrsta degi og fékk
fjórar stjörnur í Fréttablaðinu fyrir
skemmstu.
Fjórir ungir menn fara saman
á veiðar – misjafnlega vanir skot-
vopnum. Hvað gæti farið úrskeiðis?
Eina andvökunóttina sér níræð
kona, sannkallað hörkutól, mann
með derhúfu bogra yfir stóru röri í
nágrenni íbúðar hennar í úthverfi
Reykjavíkur. Þegar hún lítur þar við
á göngu síðar, sér hún lík.
Hér fæst rannsóknarteymið, sem
lesendur þekkja úr fyrri bókum
Ármanns, við afar sérstakt sakamál:
nestorinn Bjarni, Kristín, arftaki
hans, hin formfasta Margrét Krabbe
og fallegi kvennabósinn Njáll.
Sigurjón tryggir sér Tíbrá
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Ármann Jakobsson getur verið
kampakátur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Á tónleikum sumarjazztón-leikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækja-
götu, í dag, 20. júní, kemur fram
Latínband kontrabassaleikarans
Tómasar R. Einarssonar. Óskar Guð-
jónsson leikur á saxófón, Kjartan
Hákonarson á trompet, Samúel Jón
Samúelsson á básúnu, Ómar Guð-
jónsson á gítar og Matthías Hem-
stock á trommur og slagverk. Á efn-
isskrá verður úrval af Latíntónlist
hljómsveitarstjórans. Tónleikarnir
fara fram utandyra á Jómfrúar-
torginu. Þeir eru ókeypis og hefjast
klukkan 15 og standa til klukkan 17.
Latínband á Jómfrúnni
Tómas R. verður á veitingastaðnum
Jómfrúnni í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING