Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Blaðsíða 2
2 6. mars 2020FRÉTTIR
mannskæðustu faraldrarnir
Spænska veikin
Spænska veikin var inflúensu
faraldur, mannskæðasta farsótt
sem heimildir herma. Hún gekk
yfir á árunum 1918 til 1919 og dró
allt að hundrað milljónir manns
til dauða, þar af tæplega fimm
hundruð á Íslandi. Um var að
ræða veirustofninn H1N1 innan
inflúensu af Astofni.
HIV-veiran
Eyðni eða alnæmi greindist
fyrst árið 1981 í Bandaríkj
unum, þótt sjúkdómurinn
eigi rætur að rekja lengra
aftur. Í framhaldinu geisaði
alnæmisfaraldur og hafa um
þrjátíu milljónir manna dáið
vegna smits af HIVveirunni til
dagsins í dag.
Jústinía-plágan
Jústiníaplágan geisaði í
austrómverska keisara
dæminu á árunum 541 og
542 og olli sama bakterían
plágunni og olli svartadauða
mörgum öldum síðar. Sumir
sagnfræðingar telja þessa
plágu þá mannskæðustu og
að 25 til 50 milljónir manns
hafi látið lífið, 13 til 26 prósent
íbúa heimsins. Aðrir segja
þessar tölur ýktar.
Svartidauði
Svartidauði gekk yfir Evrópu á
árunum 1331 til 1353. Svartidauði
var oft kallaður pest eða plága
og þurrkaði út á bilinu tuttugu til
sextíu prósent íbúa í Evrópu, 20 til
200 milljónir manns.
Stóra drepsóttin
Dularfulli sjúkdómurinn „cocol
iztli“ dró allt að 17 milljónir íbúa
þess landsvæðis sem í dag heitir
Mexíkó til dauða á árunum 1545
til 1548 og 1576. Um var að ræða
sjúkdóm sem einkenndist af
háum hita og blæðingum. Allt að
80 prósent íbúa landsvæðisins
þurrkuðust út í faraldrinum.
Á þessum degi,
6. mars
1619 – Franski skylmingamaðurinn
og leikskáldið Cyrano de Bergerac
fæddist.
1853 – Óperan La Traviata eftir
Giuseppe Verdi var frumsýnd í Vínar
borg.
1957 – VesturAfríkuríkið Gana lýsti
yfir sjálfstæði frá Bretlandi.
1989 – Frjálsíþróttafélag ÍBV var
stofnað í Vestmannaeyjum.
1996 – Íslenska tímaritið Séð og
heyrt kom út í fyrsta sinn.
Fleyg orð
„Fólk getur gleymt því sem
þú segir, en það gleymir því
seint hvernig þú lætur því
líða.“
– Maya Angelou
Veiran setur veislu-
hald úr skorðum
n Þessi fyrirtæki fóru að ráðum Landlæknis n Ekkert skrall hjá Samorku
F
ari svo að COVID-19 smit fari að berast manna
á milli hér á landi kemur til greina, samkvæmt
Landlækni, að grípa til víðtækari ráðstafana á
borð við samkomubann. Tilfellum hefur farið
ört fjölgandi og hafa ýmis fyrirtæki og stofnanir tek-
ið sjálf af skarið með því að aflýsa stórum samkom-
um.
Árshátíðir fyrirtækja eru gjarnan algengar í kring-
um þennan tíma og hafa margir, íslenskir vinnu-
staðir hætt við sínar samkomur eða frestað þeim
fram að hausti. Eftirfarandi fyrirtæki eru þeirra á
meðal þeirra sem hafa nú afbókað sína sali.
Lengri og ítarlegri úttekt á fyrir-
tækjum verður að finna á DV.is um
helgina.
Samorka
Í tilkynningu frá Samorku segir að í ljósi þess að
hættustigi almannavarna hafi verið lýst yfir vegna
veirunnar hafi verið ákveðið að skjóta fyrrnefnd-
um ársfundi á frest. Þar að auki verði sýningu á veg-
um fyrirtækisins í Laugardalshöll á hreinorkufarar-
tækjum og lausnum tengdum orkuskiptum einnig
frestað, en til hafði staðið að hún færi fram samhliða
ársfundinum, dagana 12.–15. mars. Sýningin hefur
verið færð til októbermánaðar.
Pósturinn
Árs hátíð Pósts ins, sem fara átti fram 21. mars, var
einnig frestað í ótilgreindan tíma. Forstjóri Íslands-
pósts hefur fullyrt að enginn starfsmaður sé þar
sýktur en óskynsamlegt væri að stefna fólki alls stað-
ar að af land inu saman í sal, sem gæti aukið líkur á
útbreiðslu.
Össur
Stoðtækjaframleiðslufyrirtækið Össur frestaði
sinni árshátíð fram á haust og fyrirtækið gaf út til-
kynningu þar að lútandi Það þótti skynsamlegt því
starfs menn fyr ir tæk is ins ferðast til útlanda vegna
vinnu sinn ar. „Starfs fólk hef ur sýnt þessu skiln ing
en fyr ir tækið starfar á heil brigðis sviði og inn an þess
geira hef ur að und an förnu verið gripið til auk inna
varúðarráðstaf ana vegna kór óna veirunn ar,“ seg ir í
til kynn ing unni.
Önnur fyrirtæki sem hafa
slegið sínum viðburðum á frest
vegna COVID-19
Byko
Orka Náttúrunnar
Samskip
Verk og Vit
Læknafélag Íslands