Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Blaðsíða 21
Menning & viðburðir 06. mars 2020 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is Í heimi rytmískrar tónlistar á Íslandi skipar Stórsveit Reykjavíkur svipaðan sess og Sinfóníuhljómsveit Íslands gerir í klassískri tónlist. Stórsveitin er fjölmennasti tónlistarhópur landsins á þessu sviði og samnefnari þeirra sem leggja með alvarlegum hætti stund á aðra tónlist en klassíska. Stórsveit Reykjavíkur er með fast æfingaaðsetur í Hörpu að sögn Sigurðar Flosasonar, saxófónleikara og formanns stjórnar hljómsveitarinnar. Stórveitin telur allajafna 17 hljóðfæraleikara sem allir eru vel menntaðir atvinnutónlistarmenn, þar af eru nokkrir af fremstu djasstónlistarmönnum þjóðarinnar. „Við höldum að jafnaði 6–8 átta tónleika á hverju starfsári. Þetta er þéttur hópur og endurnýjun er hæg. Þá er þetta hæfileikaríkt og eftirsótt fólk sem tekur þátt í fjölda verkefna utan Stórsveitarinnar. Því er sjaldgæft að við komum öll fram á tónleikum. Þegar svo ber undir fáum við inn staðgengla til þess að hlaupa í skarðið. Því samanstendur hljómsveitin af mun stærri hóp en sautján manns.“ Hljómsveitin var stofnuð í febrúarmánuði 1992. Helsti hvatamaður að stofnun hennar var Sæbjörn Jónsson en hann var aðalstjórnandi hljómsveitarinnar frá upphafi og til ársins 1999. Þá urðu þáttaskil í rekstri sveitarinnar og síðan þá hefur einkum verið unnið með virtum erlendum gestastjórnendum eða leiðandi fólki í íslensku djasslífi. „Lengi vel voru bara karlar í Stórsveitinni, en við hljómsveitina hefur bæst kona og erum við því um 16 karlar og ein kona. Við værum mjög til í að hafa þær fleiri. Ástæðan fyrir þessu er líklega sú að það hefur verið þannig að fáar konur hafa farið út í þessi hefðbundnu stórsveitarhljóðfæri og þessa músík, en við sjáum að þetta er að breytast og erum spennt fyrir framhaldinu.“ Stórsveit Reykjavíkur hefur á undanförnum árum haldið á fjórða hundrað tónleika víða í Reykjavík sem og á ýmsum stöðum á landsbyggðinni. Þá hefur sveitin gefið út átta geisladiska. Stórsveitin leggur sig eftir breiðum stíl tónlistarlega séð; flytur nýja og framsækna íslenska og erlenda tónlist, en leikur einnig vinsæl eldri verk með vinsælustu söngvurum þjóðarinnar. „Við viljum flytja eins fjölbreytta tónlist og hægt er fyrir alla aldurshópa. Þá hafa jólatónleikarnir okkar t.a.m. verið sérsniðnir fyrir unga áhorfendur. Það spanna fáir tónlistarhópar álíka breidd og Stórsveit Reykjavíkur, frá hinu nýjasta og sértækasta til hins alþýðlegasta.“ Stórsveitarmaraþon „Við eigum eftir að halda tvenna tónleika það sem af er þessu starfsári. Þann 22. mars næstkomandi verðum við með Stórsveitarmaraþon í Hörpu. Þá bjóðum við stórsveitum landsins að koma og spila með okkur á maraþontónleikum. Þetta eru hátt í tíu bönd víðsvegar að af landinu, þá spila skólasveitir, áhugamannasveitir og ýmsir aðrir. Stórsveit Reykjavíkur byrjar að spila í hálftíma og svo tekur næsta band við og spilar í jafnlangan tíma. Svona gengur það koll af kolli. Með þessu viljum við efla stórsveitarstarfið í landinu.“ Glæný íslensk tónlist „Þann 24. maí munum við halda árlega tónleika okkar, Ný íslensk tónlist, þar sem Stórsveitin flytur glænýtt íslenskt efni. Hægt er að nálgast miða á miðasöluvef Hörpu, harpa.is.“ Fjölmargir innlendir og erlendir gestir hafa komið fram með hljómsveitinni á liðnum árum sem einleikarar, einsöngvarar og gestastjórnendur. Þeirra á meðal má nefna Bandaríkjamennina Bob Mintzer, Frank Foster, Dick Oatts, Tim Hagans, Bill Homan, John Fedchock, Greg Hopkins, Andrew D’Angelo og Travis Sullivan. „Við unnum með Mariu Schneider fyrir ekki svo löngu og það var alveg sérlega eftirminnilegt.“ Einnig má nefna lykilmenn í djassheimi Norðurlanda svo sem Ole Kock Hansen, Eero Koivistonen, Lars Jansson, Geir Lysne, Helge Sunde, Fredrik Norrén, Jesper Riis, Nikolaj Bentzon, Ulf Adåker, Lasse Lindgren, Daniel Nolgård og Pétur Östlund. Þá hefur Þjóðverjinn Ansgar Stripens einnig unnið með sveitinni. „Nú nýlega héldum við tónleika með Mariu Babtist þar sem hennar tónlist var leikin. Tókust þeir tónleikar með eindæmum vel.“ Innlendir stjórnendur hafa m.a. verið Sigurður Flosason, Samúel J. Samúelsson, Þórir Baldursson, Stefán S. Stefánsson, Hilmar Jensson, Össur Geirsson og Kjartan Valdemarsson. Fjölmargir íslenskir söngvarar hafa komið fram með sveitinni í gegnum árin. Þeirra á meðal eru meðal annars Ragnar Bjarnason, Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjánsdóttir, KK, Jón Jónsson, Elly Vilhjálms, Egill Ólafsson, Friðrik Dór, Kristjana Stefánsdóttir og Ragnheiður Gröndal. „Það hefur í það heila verið alveg frábært að vinna með öllu þessu hæfileikaríka fólki víðsvegar að úr heiminum. Það er ómetanlegt að verða fyrir svo fjölbreyttum straumum frá öllum þessum ólíku listamönnum frá öllum heimshornum.“ Mynd: Anna Stark. Mynd: Anna Stark.Mynd: Mummi Lú. Stórsveit Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.