Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Síða 21
Menning & viðburðir
06. mars 2020
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Í heimi rytmískrar tónlistar á Íslandi skipar Stórsveit Reykjavíkur svipaðan sess og Sinfóníuhljómsveit Íslands
gerir í klassískri tónlist. Stórsveitin er
fjölmennasti tónlistarhópur landsins á
þessu sviði og samnefnari þeirra sem
leggja með alvarlegum hætti stund
á aðra tónlist en klassíska. Stórsveit
Reykjavíkur er með fast æfingaaðsetur
í Hörpu að sögn Sigurðar Flosasonar,
saxófónleikara og formanns stjórnar
hljómsveitarinnar.
Stórveitin telur allajafna 17
hljóðfæraleikara sem allir eru vel
menntaðir atvinnutónlistarmenn,
þar af eru nokkrir af fremstu
djasstónlistarmönnum þjóðarinnar.
„Við höldum að jafnaði 6–8 átta
tónleika á hverju starfsári. Þetta
er þéttur hópur og endurnýjun er
hæg. Þá er þetta hæfileikaríkt og
eftirsótt fólk sem tekur þátt í fjölda
verkefna utan Stórsveitarinnar. Því
er sjaldgæft að við komum öll fram
á tónleikum. Þegar svo ber undir
fáum við inn staðgengla til þess að
hlaupa í skarðið. Því samanstendur
hljómsveitin af mun stærri hóp en
sautján manns.“
Hljómsveitin var stofnuð í
febrúarmánuði 1992. Helsti
hvatamaður að stofnun hennar
var Sæbjörn Jónsson en hann var
aðalstjórnandi hljómsveitarinnar frá
upphafi og til ársins 1999. Þá urðu
þáttaskil í rekstri sveitarinnar og síðan
þá hefur einkum verið unnið með
virtum erlendum gestastjórnendum
eða leiðandi fólki í íslensku djasslífi.
„Lengi vel voru bara karlar í
Stórsveitinni, en við hljómsveitina
hefur bæst kona og erum við því um
16 karlar og ein kona. Við værum mjög
til í að hafa þær fleiri. Ástæðan fyrir
þessu er líklega sú að það hefur verið
þannig að fáar konur hafa farið út í
þessi hefðbundnu stórsveitarhljóðfæri
og þessa músík, en við sjáum að þetta
er að breytast og erum spennt fyrir
framhaldinu.“
Stórsveit Reykjavíkur hefur á
undanförnum árum haldið á fjórða
hundrað tónleika víða í Reykjavík sem
og á ýmsum stöðum á landsbyggðinni.
Þá hefur sveitin gefið út átta
geisladiska. Stórsveitin leggur sig
eftir breiðum stíl tónlistarlega séð;
flytur nýja og framsækna íslenska og
erlenda tónlist, en leikur einnig vinsæl
eldri verk með vinsælustu söngvurum
þjóðarinnar. „Við viljum flytja eins
fjölbreytta tónlist og hægt er fyrir alla
aldurshópa. Þá hafa jólatónleikarnir
okkar t.a.m. verið sérsniðnir fyrir
unga áhorfendur. Það spanna
fáir tónlistarhópar álíka breidd og
Stórsveit Reykjavíkur, frá hinu nýjasta
og sértækasta til hins alþýðlegasta.“
Stórsveitarmaraþon
„Við eigum eftir að halda tvenna
tónleika það sem af er þessu starfsári.
Þann 22. mars næstkomandi verðum
við með Stórsveitarmaraþon í Hörpu.
Þá bjóðum við stórsveitum landsins
að koma og spila með okkur á
maraþontónleikum. Þetta eru hátt í
tíu bönd víðsvegar að af landinu, þá
spila skólasveitir, áhugamannasveitir
og ýmsir aðrir. Stórsveit Reykjavíkur
byrjar að spila í hálftíma og svo
tekur næsta band við og spilar í
jafnlangan tíma. Svona gengur það
koll af kolli. Með þessu viljum við efla
stórsveitarstarfið í landinu.“
Glæný íslensk tónlist
„Þann 24. maí munum við halda
árlega tónleika okkar, Ný íslensk tónlist,
þar sem Stórsveitin flytur glænýtt
íslenskt efni. Hægt er að nálgast miða
á miðasöluvef Hörpu, harpa.is.“
Fjölmargir innlendir og erlendir
gestir hafa komið fram með
hljómsveitinni á liðnum árum
sem einleikarar, einsöngvarar og
gestastjórnendur. Þeirra á meðal
má nefna Bandaríkjamennina Bob
Mintzer, Frank Foster, Dick Oatts, Tim
Hagans, Bill Homan, John Fedchock,
Greg Hopkins, Andrew D’Angelo og
Travis Sullivan. „Við unnum með Mariu
Schneider fyrir ekki svo löngu og það
var alveg sérlega eftirminnilegt.“
Einnig má nefna lykilmenn í
djassheimi Norðurlanda svo sem
Ole Kock Hansen, Eero Koivistonen,
Lars Jansson, Geir Lysne, Helge
Sunde, Fredrik Norrén, Jesper Riis,
Nikolaj Bentzon, Ulf Adåker, Lasse
Lindgren, Daniel Nolgård og Pétur
Östlund. Þá hefur Þjóðverjinn Ansgar
Stripens einnig unnið með sveitinni.
„Nú nýlega héldum við tónleika með
Mariu Babtist þar sem hennar tónlist
var leikin. Tókust þeir tónleikar með
eindæmum vel.“
Innlendir stjórnendur hafa m.a.
verið Sigurður Flosason, Samúel J.
Samúelsson, Þórir Baldursson, Stefán
S. Stefánsson, Hilmar Jensson, Össur
Geirsson og Kjartan Valdemarsson.
Fjölmargir íslenskir söngvarar hafa
komið fram með sveitinni í gegnum
árin. Þeirra á meðal eru meðal annars
Ragnar Bjarnason, Andrea Gylfadóttir,
Ellen Kristjánsdóttir, KK, Jón Jónsson,
Elly Vilhjálms, Egill Ólafsson, Friðrik
Dór, Kristjana Stefánsdóttir og
Ragnheiður Gröndal. „Það hefur í
það heila verið alveg frábært að
vinna með öllu þessu hæfileikaríka
fólki víðsvegar að úr heiminum. Það
er ómetanlegt að verða fyrir svo
fjölbreyttum straumum frá öllum
þessum ólíku listamönnum frá öllum
heimshornum.“
Mynd: Anna Stark. Mynd: Anna Stark.Mynd: Mummi Lú.
Stórsveit Reykjavíkur