Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Blaðsíða 54
54 FÓKUS 6. mars 2020
YFIRHEYRSLAN
Ingi Hrafn
Hilmarsson
Upphífingakeppni
við Skúla Mogensen
Ingi Hrafn Hilmarsson, leikari, leikstjóri og náttúrusinni, lauk
nýverið tökum á amerískri bíómynd sem er norræn útgáfa af Beauty
and the Beast þar sem Ingi Hrafn fór með hlutverk Dýrsins. Hann hef-
ur starfað við allar hliðar leiklistar, allt frá því að framleiða barnaefni,
leikstýra menntskælingum og leika sjálfur í kvikmyndum og auglýs-
ingum. Ingi Hrafn er í yfirheyrslu helgarinnar.
Hvar líður þér best?
Í faðmi fjölskyldunnar.
Hvað óttastu mest?
Hvað lífið líður hratt.
Hvert er þitt mesta afrek?
Að eignast börnin mín þótt ég hafi ekki þurft
að gera mikið meðan á fæðingunni stóð.
Furðulegasta starf sem þú hefur
tekið að þér?
Leiklistin býður upp á mörg furðuleg störf. Ég
var einu sinni ráðinn til þess að leika klaufa-
legan þjón á jólahlaðborði WOW air. Til að
gera langa sögu stutta endaði ég í keppni í
upphífingum við Skúla Mogensen. Í kjölfarið
var ég ráðinn sem flugþjónn hjá félaginu og
vann þar næstu fjögur árin. Í þeirri vinnu lenti
ég svo í ýmsu skemmtilegu og á sama tíma
furðulegu.
Hvernig væri bjórinn Ingi Hrafn?
Hann lítur vel út í glasi, er léttur, samt bragð-
góður og á vel við öll tilefni.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
Ekki vera hræddur við að gera mistök. Þau
gera allir. Þess vegna er strokleður á öllum
blýöntum.
Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Það er klárlega að brjóta saman þvott.
Besta bíómynd allra tíma?
Það eru svo margar bíómyndir sem koma til
greina. Ég hef alltaf haft gaman af ævintýra-
myndum eins og Lord of the Rings. Svo finnst
mér líka franskar kvikmyndir oft frábærar
eins og Intouchables, Le Petit Nicolas og
Amelie.
Hvaða hæfileika myndir þú
vilja búa yfir?
Mig hefur alltaf langað til að vera góður í
fimleikum. Hversu magnað er að geta gert
þrefalt heljarstökk með skrúfu. Gengið svo
pollrólegur í burtu eins og það hafi ekkert
gerst. Plús það að þú ert alltaf í geggjuðu
líkamlegu formi og það er bara eitthvað
ofurhetjulegt við fimleika.
Hver er mesta áhætta sem þú
hefur tekið?
Mér finnst ég alltaf vera að taka
skemmtilega áhættu þegar ég bý til og
set upp leiksýningar. Margt sem þarf að
hugsa um og hvort verkefnið gangi upp.
Sem það gerir nú samt oftast.
Hvaða frasi eða orð fer mest í
taugarnar á þér?
Hann Einar, frændi minn.
Hvað geturðu sjaldnast staðist
eða ert góður í að réttlæta að
veita þér?
Að borða skyndibita. Ég er alltaf á leiðinni
í ræktina og að taka mataræðið í gegn,
en það gengur hægt.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Ég er að leikstýra söngleiknum Grease
sem Leikfélag Borgarholtsskóla er að
sýna um þessar mundir, en þetta er
búið að vera mjög skemmtilegt ferli og
frábærir krakkar. Þess á milli nýt ég
þess að vera heima með tíu mánaða
snáðann minn.
M
Y
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is