Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Side 54
54 FÓKUS 6. mars 2020 YFIRHEYRSLAN Ingi Hrafn Hilmarsson Upphífingakeppni við Skúla Mogensen Ingi Hrafn Hilmarsson, leikari, leikstjóri og náttúrusinni, lauk nýverið tökum á amerískri bíómynd sem er norræn útgáfa af Beauty and the Beast þar sem Ingi Hrafn fór með hlutverk Dýrsins. Hann hef- ur starfað við allar hliðar leiklistar, allt frá því að framleiða barnaefni, leikstýra menntskælingum og leika sjálfur í kvikmyndum og auglýs- ingum. Ingi Hrafn er í yfirheyrslu helgarinnar. Hvar líður þér best? Í faðmi fjölskyldunnar. Hvað óttastu mest? Hvað lífið líður hratt. Hvert er þitt mesta afrek? Að eignast börnin mín þótt ég hafi ekki þurft að gera mikið meðan á fæðingunni stóð. Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér? Leiklistin býður upp á mörg furðuleg störf. Ég var einu sinni ráðinn til þess að leika klaufa- legan þjón á jólahlaðborði WOW air. Til að gera langa sögu stutta endaði ég í keppni í upphífingum við Skúla Mogensen. Í kjölfarið var ég ráðinn sem flugþjónn hjá félaginu og vann þar næstu fjögur árin. Í þeirri vinnu lenti ég svo í ýmsu skemmtilegu og á sama tíma furðulegu. Hvernig væri bjórinn Ingi Hrafn? Hann lítur vel út í glasi, er léttur, samt bragð- góður og á vel við öll tilefni. Besta ráð sem þú hefur fengið? Ekki vera hræddur við að gera mistök. Þau gera allir. Þess vegna er strokleður á öllum blýöntum. Hvert er leiðinlegasta húsverkið? Það er klárlega að brjóta saman þvott. Besta bíómynd allra tíma? Það eru svo margar bíómyndir sem koma til greina. Ég hef alltaf haft gaman af ævintýra- myndum eins og Lord of the Rings. Svo finnst mér líka franskar kvikmyndir oft frábærar eins og Intouchables, Le Petit Nicolas og Amelie. Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir? Mig hefur alltaf langað til að vera góður í fimleikum. Hversu magnað er að geta gert þrefalt heljarstökk með skrúfu. Gengið svo pollrólegur í burtu eins og það hafi ekkert gerst. Plús það að þú ert alltaf í geggjuðu líkamlegu formi og það er bara eitthvað ofurhetjulegt við fimleika. Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið? Mér finnst ég alltaf vera að taka skemmtilega áhættu þegar ég bý til og set upp leiksýningar. Margt sem þarf að hugsa um og hvort verkefnið gangi upp. Sem það gerir nú samt oftast. Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér? Hann Einar, frændi minn. Hvað geturðu sjaldnast staðist eða ert góður í að réttlæta að veita þér? Að borða skyndibita. Ég er alltaf á leiðinni í ræktina og að taka mataræðið í gegn, en það gengur hægt. Hvað er á döfinni hjá þér? Ég er að leikstýra söngleiknum Grease sem Leikfélag Borgarholtsskóla er að sýna um þessar mundir, en þetta er búið að vera mjög skemmtilegt ferli og frábærir krakkar. Þess á milli nýt ég þess að vera heima með tíu mánaða snáðann minn. M Y N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N Íris Hauksdóttir iris@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.