Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Blaðsíða 35
PRESSAN 356. mars 2020 landi er ekki hægt að skilgreina á einn hátt en birtingarmynd­ ir þeirra eru margvíslegar. Það er þjóðerni, kynþáttur eða uppruni sem sker úr um hvers virði fólk er,“ segir í nýlegri skýrslu Verfass­ ungsschutz sem telur að um 12.700 Þjóðverjar séu reiðubúnir til að grípa til ofbeldis í nafni öfgahægrimálsstaðar en 60.000 eru taldir taka þátt í uppákom­ um öfgahægrisamtaka, til dæmis tónleikum eða mótmælum. Fyrir áramót ákvað Horst Seehofer innanríkisráðherra að ein deild leyniþjónustunnar eigi að ein­ beita sér að öfgahægrimönnum. Christine Lambrecht dómsmála­ ráðherra sagði í kjölfar hryðju­ verksins í Hanau að raunveruleg hætta sé á hryðjuverkaárásum öfgahægrimanna. En það er víðar sem yfirvöld óttast öfgahægrimenn. Í nóvem­ ber á síðasta ári lét ítalska lög­ reglan til skarar skríða gegn hópi sem lengi hafði verið fylgst með. Hann skilgreindi sjálfan sig sem þjóðernissinnaðan verkamanna­ flokk og var í nánum tengslum við hægrihreyfingar víða í Evrópu, þar á meðal Nova Ordem Social í Portúgal. Margir þeirra sem voru handteknir í aðgerðinni höfðu skotvopn og sprengjuefni í fórum sínum. Meðlimir hópsins notuðu hið leynilega samskiptaforrit Mil­ itia til að eiga samskipti. Norðurlöndin Í hættumati frá sænsku öryggis­ lögreglunni Säpo frá því á síðasta ári kemur fram að hún óttast að hryðjuverk öfgahægrimanna víða um heiminn auk aukins áróð­ urs á þeim væng stjórnmálanna geti orðið sænskum öfgahægri­ mönnum hvatning til að fremja hryðjuverk í Svíþjóð. Säpo segir að líklegt megi teljast að fólk, sem tengist þeim hópi sem trú­ ir á yfirburði hvítra, muni fremja hryðjuverk. Í heildina telur Säpo þó að aðsteðjandi hætta sé „lítil“. Hvað varðar öfgavinstrimenn tel­ ur Säpo að engin hryðjuverkaógn stafi þaðan en hins vegar sé fólk á þeim væng reiðubúið til að beita ofbeldi. Í Danmörku fylgist leyniþjón­ ustan vel með öfgahægrimönn­ um og íslamistum. Hætta er talin stafa af báðum hópunum en þó meiri af íslamistum enn sem komið er. Þar, eins og í Noregi og Svíþjóð, virðist starfsemi öfga­ hægrimanna hafa farið vaxandi á undanförnum misserum og hafa samtök öfgahægrimanna verið meira áberandi en oft áður. Ekki hefur þó enn sem komið er komið til þess að öfgahægrimenn fremji hryðjuverk. Norska leyniþjónustan birti nýlega áhættumat sitt fyrir 2020. Þar kemur meðal annars fram að hættan á hryðjuverkaárás­ um, byggðum á grunni öfga­ hægriskoðana, sé meðal mestu ógnanna. Margir Norðmenn eru sagðir styðja hryðjuverk öfga­ hægrimanna. Leyniþjónustan telur að jafn miklar líkur séu á að öfgahægrimenn og öfgasinnað­ ir íslamistar fremji hryðjuverk í Noregi. Telur leyniþjónustan að líklegt sé að öfgahægrimenn reyni að fremja hryðjuverk á þessu ári, annaðhvort með skotvopnum, sprengiefni eða bíl. Auknum sjón­ um var beint að öfgahægrimönn­ um í kjölfar hryðjuverks Breivik 2011 en þrátt fyrir það slapp hinn 21 árs Philip Manshaus fram­ hjá eftirlitinu. Hann réðst inn í mosku í útjaðri Ósló í ágúst á síð­ asta ári og hugðist fremja hryðju­ verk þar. Hann var þó yfirbugað­ ur af gestum moskunnar áður en hann náði að valda þeim skaða. Áður en hann lagði upp í þessa för hafði hann myrt 17 ára, ætt­ leidda systur sína á heimili þeirra. Hann skaut hana þar sem hún lá í rúmi sínu. Hún var ættleidd og var gul á hörund. Talið er að upp­ runi hennar og hörundslitur hafi verið ástæða þess að Manshaus skaut hana. Þegar hann kom fyrir dómara heilsaði hann að nasista­ sið. Manshaus er talinn hafa ver­ ið undir áhrifum af árás Brentons Tarrant á mosku í Nýja­Sjálandi á síðasta ári en þar varð hann 52 að bana. Tarrant var undir áhrif­ um frá Breivik. Því er ljóst að öfgahægriskoðanir eiga sér engin landamæri. Hér á landi er það greiningar­ deild Ríkislögreglustjóra sem annast mat á hættunni á hryðju­ verkum. Nýjasta beina mat deildarinnar á hættunni er frá 2017. Þar kemur fram að hættu­ stigið sé í meðallagi en það þýð­ ir að ekki sé hægt að útiloka hættu á hryðjuverkum vegna ástands innanlands eða í heims­ málum. Einnig segir að Vestur­ löndum stafi mikil og viðvarandi ógn af hryðjuverkasamtökum og einstaklingum og hópum sem þeim tengjast. Í skýrslunni er að­ allega rætt um þá ógn sem kunni að stafa frá íslömskum öfga­ mönnum og stöðunni á Norður­ löndum en öfgahægrimenn eru ekki nefndir. „Lögreglu er ekki kunnugt um að á Íslandi hafi myndast hópar eða samfélög sem aðhyllast her­ skáan íslamisma eða annars kon­ ar ofbeldisfulla öfgahyggju. Sú hætta er fyrir hendi á Íslandi sem annars staðar að áróðursmenn hryðjuverkasamtaka reyni að fá fólk til liðs við þau og hvetji til óhæfuverka. Í því samhengi skal bent á að greiningardeild hef­ ur í fyrri skýrslum um mögulega hryðjuverkaógn hér á landi frem­ ur horft til einstaklinga sem sækja innblástur til öfgasamtaka en til skipulagðra hópa.“ Ekki er skilgreint nánar hvaða öfgasamtök geti átt í hlut en væntanlega er ekki hægt að úti­ loka að um öfgahægrisamtök geti verið að ræða til jafns við herskáa íslamista. n „Sú hætta er fyrir hendi á Íslandi sem annars staðar að áróðurs- menn hryðjuverka- samtaka reyni að fá fólk til liðs við þau og hvetji til óhæfuverka Öfgahægri- maður Tobias banaði níu manns, skaut móður sína og loks sig sjálfan. Hafði áhrif Hryðju- verk Breivik í Noregi árið 2011 eru enn í fersku minni. Hættustig í meðallagi Íslendingar þurfa ekki að óttast hópa öfgahægrimanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.