Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Blaðsíða 25
Menning & viðburðir06. mars 2020 KYNNINGARBLAÐ
SKÓGARSAFN:
Munir frá landnámsöld og
margt fleira í Skógasafni
Það er gaman að koma í Skógasafn sem er að finna í nágrenni við Skógafoss.
Safnið er fjölbreytt, spannar mjög
vítt svið og má teljast til einna af
áhugaverðustu menningarperlum
okkar Íslendinga. „Við erum með
muni allt frá Landnámsöld til
dagsins í dag. Þá erum við með
muni frá gamla bændasamfélaginu
sem og yngri muni frá tækniöld.
Þróun tímans gengur í gegnum allt
safnið og samhengið í sýningunni er
mjög gott. Við uppfærum reglulega
sýningarnar, lagfærum og setjum
upp nýja og spennandi gripi, enda
bætist sífellt við safnkostinn. Það er
því alltaf eitthvað nýtt og spennandi
að skoða í hvert sinn sem maður
kíkir við í Skógasafn,“ segir Andri
Guðmundsson, forstöðumaður
safnsins.
Skógasafn er eitt elsta safn
landsins en safnið var fyrst gert
aðgengilegt almenningi 1. desember
árið 1949 í Skógaskóla. Einn af
frumkvöðlum að stofnun safnsins
var Þórður Tómasson, fyrrum
safnstjóri, og hefur hann átt veg
og vanda af velferð safnsins allt
frá upphafi. Árið 1955 flutti safnið
í eigið húsnæði og hefur æ síðan
vaxið fiskur um hrygg. Skógasafn
samanstendur nú af byggðasafni,
húsasafni og samgöngusafni á
sýningarsvæði sem telur um 2.500
fermetra.
Gripur vikunnar
Skógasafn heldur úti metnaðarfullri
facebooksíðu: Skógarsafn þar sem
í hverri viku er kynntur nýr gripur
úr safnkostinum „Þessi liður hefur
vakið mikla athygli fylgjenda okkar
og það er um að gera fylgja okkur
á facebook til þess að missa ekki af
grip vikunnar.“
Samgöngusafnið
Samgöngusafnið var opnað árið
2002 og sýnir sögu samgangna og
tækniþróunar á Íslandi frá lokum
19. aldar og allt til dagsins í dag. Á
meðal safngripa má finna Citroën
Kégresse snjóbíl frá 1930 sem er
heillegasta eintak sinnar tegundar
í heiminum, „Skaftið“ hans Ómars
Ragnarssonar sem hann flaug um
á ótrúlegustu staði og Willis Jeppa
þáverandi þjóðminjavarðar og síðar
forseta Íslands.
„Í Samgöngusafninu erum
við einnig með sýningu frá
Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.
Sýningin var uppfærð í ársbyrjun
2019. Þar má líta ýmis ökutæki
og snjóbíla sem hafa verið notaðir
við björgunarstörf. Við erum
með Dodge Weapon Carrier sem
notaður var sem stjórnstöð hjá
Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík og
nýjasti sýningargripurinn er snjóbíll
frá Björgunarsveitinni Víkverja sem
var gefinn safninu 2018 og fór á
sýningu í fyrra.
Allt frá stofnun
Samgöngusafnsins höfum við
verið í samstarfi við Vegagerðina
og sýnum muni frá Vegagerðinni á
200 fermetra svæði. Svo erum við
í samstafi við Þjóðminjasafnið og
sýnum töluvert af ökutækjum frá
þeim hér á safninu. Einnig erum við
með tækni- og fjarskiptasýningu frá
Sigurði Harðarsyni og litla sýningu
frá Landhelgisgæslunni þar sem má
meðal annars líta togvíraklippur úr
Þorskastríðinu.“
Styður við fornleifauppgröft
Þess má geta að Skógasafn hefur
stutt við fornleifauppgröft við
Arfabót á Mýrdalssandi í Álftaveri,
Vestur-Skaftafellssýslu, en bærinn
fór líklega í eyði á 15. öld í kjölfar
Kötlugosa. Uppgröfturinn er undir
stjórn Bjarna F. Einarssonar hjá
Fornleifafræðistofunni og mun veita
aukna innsýn í sögu síðmiðalda og
auka vitneskju um miðaldabæinn og
áhrif Kötlugosa á byggð svæðisins
alls.
Endurbætur á húsasafninu
„Undanfarið höfum við verið
í viðhaldsframkvæmdum á
torfbæjunum sem prýða húsasafnið
okkar. Torfbæirnir okkar koma
víða að úr Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu og þurfa
reglubundið viðhald líkt og önnur
hús. Í fyrra var ráðist í endurbætur
á fyrstu torfbyggingunni sem færð
var á safnasvæðið, skemmu frá
Varmahlíð undir Eyjafjöllum frá
árinu 1830. Stafverk var komið á
skjön og mænisásinn brotinn á
tveimur stöðum. Þurfti að rétta
bygginguna af og laga mænisásinn.
Viðhaldsframkvæmdirnar gengu
eins og í sögu og erum við vongóð
að skemman standi um ókomin ár
áfram hjá okkur.“
70 ára safn
Þann 15. september síðastliðinn hélt
Skógasafn upp á 70 ára afmælið
með pompi og prakt í Skógaskóla.
„Afmælishátíðin var sett af Sigurði
Inga Jóhannssyni samgöngu- og
sveitastjórnarráðherra og mættu
um 200 manns til þess að fagna
með okkur. Í tilefni þess var opnuð
ný ljósmyndasýning um 70 ára
sögu safnsins og hún er ennþá til
sýnis fyrir þá sem komust ekki til
okkar á afmælishátíðina.“ Safnið
rekur metnaðarfulla gjafavörubúð
þar sem finna má bækur,
íslenskt handverk og ullarvörur,
póstkort og margt fleira. Inni á
Samgöngusafninu er svo að finna
veitingastaðinn Skógakaffi þar sem
boðið er uppá úrval veitinga eins og
súpu dagsins með nýbökuðu brauði,
samlokur, kökur, sætabrauð, kaffi og
fleira.
Það er víst að á Skógasafni kennir
ýmissa grasa og flestir geta fundið
sér eitthvað við hæfi til þess að
fræðast um og skoða. „Skógasafn er
vinsæll viðkomustaður ferðamanna
bæði innlendra og erlendra og
erum við stolt að geta boðið upp á
faglegar og skemmtilegar leiðsagnir
fyrir hópa um safnið á mörgum
tungumálum. Þá tökum við reglulega
á móti fólki í vinnustaðaferðum sem
og fjölskyldum í dagsferðum“.
Skógasafn, Skógum, 861 Hvolsvelli.
Safnið er opið allan ársins hring og
út maí verður opnunartíminn frá
10–17.00.
Nánari upplýsingar um opnunartíma
og annað má nálgast á vefsíðu
Skógasafns, skogasafn.is
Sími: 487-8845
Tölvupóstur: booking@skogasafn.is
Instagram: @skogarmuseum
Facebook: Skógasafn
Áttæringurinn Pétursey í Byggðasafninu.
Citroën Kégresse-snjóbíll.
Snjóbíllinn frá Víkverja.
Ný og glæsileg móttaka var tekin í gagnið fyrir stuttu.