Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Blaðsíða 22
Menning & viðburðir 06. mars 2020KYNNINGARBLAÐ ÚT VIÐ HIMINBLÁU SUNDIN: Tímaferðalag í gegnum tónlist í Salnum 14. mars Djúsí dægurlagaperlur eins og Hvítu mávar, Segðu ekki nei, Út við himinbláu sundin, Jón er kominn heim, Nótt í Atlavík, Við arineld, Tvö ein í tangó, Bjössi á hól og margar fleiri munu hljóma á glæsilegum tónleikum í Salnum, Kópavogi, þann 14. mars. Hefjast tónleikarnir kl. 20.30. Hulda Jónasar er sú sem hóf ferlið að ná saman því úrvalsliði sem prýða tónleikadagskrá Út við himinbláu sundin. „Tónleikarnir eru óður til söngkvennanna okkar sem greyptu þessi fallegu og skemmtilegu lög í minni þjóðarinnar á árunum árunum 1954–1974.“ Söngkonur eins og Svanhildur Jakobs, Erla Þorsteins (1933-), Erla Stefáns (1935–2015), Hallbjörg Bjarna (1915–1997), Adda Örnólfs (1935-), Soffía Karls, Helena Eyjólfs og Mjöll Hólm. „Aðalástæða þess að ég ákvað að fara af stað með þessa tónleika er einfaldlega sú að mér finnst þessi gömlu góð lög ekki heyrast nóg í dag. Svo eigum við þessar dásamlegu söngkonur sem margar hverjar er ennþá í fullu fjöri. Þrjár af þeim taka þátt í tónleikunum, þær Svanhildur, Helena og Mjöll. Þær eru gífurlega hæfileikaríkar og það hefur heyrst allt of lítið í þeim undanfarin ár.“ Einnig munu koma fram þær Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Sigurlaug Vordís sem allar eru bráðefnilegar og hafa vakið verðskuldaða athygli. „Við erum með fimm manna eðalband undir stjórn Rögnvalds Valbergssonar sem er kirkjuorganisti á Sauðárkróki. Aðrir í hljómsveitinni eru Hugrún Sif, sem spilar á flautur, Jonni, á bassa, Fúsi Ben, á gítar og Siggi, á trommur.“ Fer á kostum sem sögumaður Að sjálfsögðu fylgja söngkonunum og lögunum gríðarskemmtilegar sögur og því mun hin óviðjafnanlega Valgerður Erlingsdóttir rifja upp tíðarandann og fara gjörsamlega á kostum sem sögumaður á tónleikunum. Við lofum eintómri gleði og dásamlegri tónlist og svo mörgum skemmtilegum sögum. „Við vorum með tónleika í Sæluviku Skagfirðinga og í Hofi á Akureyri. Á báðum stöðum var troðfullt hús og mikil stemning. Einnig vorum við með tónleika í Salnum í Kópavogi í haust og þá komust færri að en vildu. Því var ákveðið að endurtaka leikinn núna og bjóða upp á aðra tónleika.“ Hér eru nokkrar umsagnir gesta um tónleikana: „Komin heim úr Hofi 12 himinlifandi heldriborgarar eftir tónleikana … Óslitin skemmtun og ekki skemmdi að fyrir utan Helenu og Mjöll Hólm voru þessir frábæru listamenn Skagfirðingar! Sannkallaður fagnaðarfundur og kom skemmtilega á óvart.“ – Þórdís Hjálmarsdóttir. „Það sem þær syngja fallega, Sigurlaug Vordís og Hreindís Ylva.“ – Helga Þorsteinsdóttir. „Frábært, þið eruð hver annarri betri, flottar.“ – Hallgerður Gunnarsdóttir „Þið voruð yndisleg öll.“ – Lilja Bóthildur Alfreðsdóttir. „Takk fyrir skemmtunina.“ – Sigríður Sigurðardóttir Tryggðu þér miða í síma 441-7500 eða í miðasölu Salarins í Kópavogi. Opnunartími er á milli 12–16 á þriðjudögum til föstudaga og 1 klukkustund fyrir tónleika. Tölvupóstur: salurinn@salurinn.is Fylgstu með viðburðinum á Facebook: Gná tónleikar. Hér er sönghópurinn samankominn ásamt Þuríði Sigurðar söngkonu. Frá vinstri: Valgerður, Sigurlaug, Hreindís, Hugrún, Mjöll, Þuríður, Helena og Svanhildur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.