Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Page 22
Menning & viðburðir 06. mars 2020KYNNINGARBLAÐ
ÚT VIÐ HIMINBLÁU SUNDIN:
Tímaferðalag í gegnum
tónlist í Salnum 14. mars
Djúsí dægurlagaperlur eins og Hvítu mávar, Segðu ekki nei, Út við himinbláu sundin,
Jón er kominn heim, Nótt í Atlavík,
Við arineld, Tvö ein í tangó, Bjössi
á hól og margar fleiri munu hljóma
á glæsilegum tónleikum í Salnum,
Kópavogi, þann 14. mars. Hefjast
tónleikarnir kl. 20.30.
Hulda Jónasar er sú sem hóf
ferlið að ná saman því úrvalsliði
sem prýða tónleikadagskrá Út við
himinbláu sundin. „Tónleikarnir
eru óður til söngkvennanna okkar
sem greyptu þessi fallegu og
skemmtilegu lög í minni þjóðarinnar
á árunum árunum 1954–1974.“
Söngkonur eins og Svanhildur
Jakobs, Erla Þorsteins (1933-), Erla
Stefáns (1935–2015), Hallbjörg
Bjarna (1915–1997), Adda Örnólfs
(1935-), Soffía Karls, Helena Eyjólfs
og Mjöll Hólm.
„Aðalástæða þess að ég ákvað
að fara af stað með þessa tónleika
er einfaldlega sú að mér finnst þessi
gömlu góð lög ekki heyrast nóg í dag.
Svo eigum við þessar dásamlegu
söngkonur sem margar hverjar er
ennþá í fullu fjöri. Þrjár af þeim taka
þátt í tónleikunum, þær Svanhildur,
Helena og Mjöll. Þær eru gífurlega
hæfileikaríkar og það hefur heyrst
allt of lítið í þeim undanfarin ár.“
Einnig munu koma fram þær
Hreindís Ylva Garðarsdóttir
Holm, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir
og Sigurlaug Vordís sem allar
eru bráðefnilegar og hafa vakið
verðskuldaða athygli.
„Við erum með fimm manna
eðalband undir stjórn Rögnvalds
Valbergssonar sem er kirkjuorganisti
á Sauðárkróki. Aðrir í hljómsveitinni
eru Hugrún Sif, sem spilar á flautur,
Jonni, á bassa, Fúsi Ben, á gítar og
Siggi, á trommur.“
Fer á kostum sem sögumaður
Að sjálfsögðu fylgja söngkonunum
og lögunum gríðarskemmtilegar
sögur og því mun hin óviðjafnanlega
Valgerður Erlingsdóttir rifja upp
tíðarandann og fara gjörsamlega
á kostum sem sögumaður á
tónleikunum. Við lofum eintómri
gleði og dásamlegri tónlist og svo
mörgum skemmtilegum sögum.
„Við vorum með tónleika í
Sæluviku Skagfirðinga og í Hofi
á Akureyri. Á báðum stöðum var
troðfullt hús og mikil stemning.
Einnig vorum við með tónleika í
Salnum í Kópavogi í haust og þá
komust færri að en vildu. Því var
ákveðið að endurtaka leikinn núna
og bjóða upp á aðra tónleika.“
Hér eru nokkrar umsagnir gesta
um tónleikana:
„Komin heim úr Hofi 12 himinlifandi
heldriborgarar eftir tónleikana …
Óslitin skemmtun og ekki skemmdi
að fyrir utan Helenu og Mjöll Hólm
voru þessir frábæru listamenn
Skagfirðingar! Sannkallaður
fagnaðarfundur og kom
skemmtilega á óvart.“ – Þórdís
Hjálmarsdóttir.
„Það sem þær syngja fallega,
Sigurlaug Vordís og Hreindís Ylva.“
– Helga Þorsteinsdóttir.
„Frábært, þið eruð hver annarri
betri, flottar.“ – Hallgerður
Gunnarsdóttir
„Þið voruð yndisleg öll.“ – Lilja
Bóthildur Alfreðsdóttir.
„Takk fyrir skemmtunina.“ – Sigríður
Sigurðardóttir
Tryggðu þér miða í síma 441-7500
eða í miðasölu Salarins í Kópavogi.
Opnunartími er á milli 12–16 á
þriðjudögum til föstudaga og 1
klukkustund fyrir tónleika.
Tölvupóstur: salurinn@salurinn.is
Fylgstu með viðburðinum á
Facebook: Gná tónleikar.
Hér er sönghópurinn samankominn ásamt
Þuríði Sigurðar söngkonu. Frá vinstri:
Valgerður, Sigurlaug, Hreindís, Hugrún,
Mjöll, Þuríður, Helena og Svanhildur.