Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Side 14
14 6. mars 2020FRÉTTIR
„Ég er hvítur, þú segir
mér ekki fyrir verkum“
n Teddy varð fyrir hópárás íslenskra unglinga fyrir 19 árum
n Segir kynþáttafordóma enn vera staðreynd á Íslandi
O
lufela Teddy Owolabi seg-
ist hafa orðið fyrir hópárás
af hálfu íslenskra ung-
lingspilta fyrir rúmlega 19
árum og í kjölfarið mátt þola kyn-
þáttafordóma og ofbeldi af hálfu
lögreglu. Hann segir ástandið
nákvæmlega ekkert hafa batnað
síðan þá: kynþáttafordómar séu
staðreynd á Íslandi og það megi
ekki stinga höfðinu í sandinn.
Olufela, eða Teddy eins og
hann er kallaður, er íslenskur
ríkis borgari og hefur verið bú-
settur hér á landi í 22 ár. Hann er í
dag orðinn fimm barna faðir. „Ég
kynntist þáverandi kærustunni
minni í Nígeríu, en hún er íslensk.
Hún bauð mér í heimsókn til Ís-
lands og ég hef verið hér síðan.“
Hann hefur meðal annars
unnið sem plötusnúður og tón-
listarmaður og gefið út fimm
plötur. Árið 2003 tók hann þátt í
vinsælli sýningu á Broadway þar
sem Motown-tónlist var í aðal-
hlutverki. Þá hefur hann unnið
með mörgum af þekktustu tónlist-
armönnum Íslands; Páli Óskari,
Ragnheiði Gröndal, Friðriki
Ómari og hljómsveitinni Jagúar.
Hann rekur eigið útgáfufyrirtæki
og vonast til að opna veitinga-
stað hér á landi í nánustu framtíð.
Teddy segir að það sé ekkert ann-
að í stöðunni en að skapa sér sín
eigin tækifæri og koma sjálfum
sér á framfæri: hér á landi bjóð-
ast útlendingum nær eingöngu
láglaunastörf, svo sem uppvask,
þrif eða af-
greiðslu-
störf.
Sagt að „fara aftur til Afríku“
„Fyrir nokkrum árum var ég yfir-
maður á veitingastað. Inn kom
drukkinn maður og ég reyndi að
biðja hann um að yfirgefa stað-
inn. Það fyrsta sem hann sagði
var: „Ég er hvítur, þú segir mér
ekki fyrir verkum“,“ segir Teddy
þegar hann rifjar upp eitt af þeim
fjölmörgu skiptum sem hann
hefur orðið fyrir aðkasti vegna
húðlitar síns. Honum er sérstak-
lega minnistætt eitt atvik frá því í
ágúst 2001.
„Ég var að koma úr vinnunni,
ég var plötusnúður á bar í mið-
bænum. Ég var staddur með sex
vinkonum mínum fyrir utan
Þjóðleikhúsið þegar hópur af
ungum strákum á aldrinum
18–19 ára nálgaðist. Einn
þeirra byrjaði að áreita eina
vinkonu mína og kallaði að
henni alls kyns ókvæðis-
orðum. Þegar ég reyndi að
koma henni til varnar þá
kom einn úr hópnum upp að
mér og kýldi mig.“
Teddy segir strákahópinn
hafa ráðist á hann í kjölfarið og
upphófust mikil slagsmál. Teddy
bætir við að hann sé alinn upp
„á götunni“, og hann sé því ekki
óvanur því að þurfa að verja sig.
„Ég var svo heppin að nokkrir
vinir mínir frá Nígeríu voru ekki
langt frá og þeir komu mér til
hjálpar. Ein af vinkonum mínum
hringdi á lögregluna.“
Teddy segir að þegar lögreglan
mætti á staðinn hefðu hann og
vinir hans verið handjárnaðir og
síðan ekið með þá niður á lög-
reglustöð þar sem þeir þurftu að
dúsa í fangageymslu í dágóðan
tíma. Íslensku piltarnir hafi verið
látnir algjörlega í friði. „Þeir sögðu
okkur að fara aftur til Afríku, eða
hvaðan sem við komum.“
Teddy ræddi við Fréttablaðið
nokkrum dögum eftir árásina og
sagði fordóma og ofbeldi hafa
aukist á Íslandi.
„Ég fer ekki lengur einn í
bæinn af ótta við hvað kunni að
gerast,“ sagði Teddy og bætti við
á öðrum stað:
„Hlutirnir eru stöðugt að
versna og slagsmál eru orðin mun
tíðari en áður. En eins og lög-
reglan meðhöndlar hlutina gefur
það fólki til kynna að það sé allt í
lagi að stofna til slagsmála við fólk
af öðrum kynþætti því afleiðingin
sé sama og engin. Mér finnst sem
lífi mínu sé ógnað og er kominn á
það stig að vilja ekki hringja í lög-
regluna því það hefur hingað til
ekki komið mér til hjálpar. Ég kýs
frekar að kalla vini mína til að-
stoðar og þegar málin eru komin
á það stig getur það leitt til óeirða
milli hópa af mismunandi kyn-
þáttum.“
Þá sagði Teddy að vandinn
færi stigvaxandi, enda væri ekki
haldið rétt á málunum og að-
gerðum ekki stjórnað og ef ekkert
yrði að gert ætti ofbeldið eftir að
fara úr böndunum og að endingu
mundi einhver láta lífið í átök-
unum. „Ég get ekki ímyndað
mér að þetta sé það sem íslenska
þjóðin vill og því verður að grípa
í taumana strax. Ísland á að vera
fyrirmynd annarra þjóða þar sem
allir eiga að geta lifað saman í sátt
og samlyndi. Ég græt innra með
mér þegar ég hugsa til strákanna
minna því ég vil ekki að þeir séu
að lenda í því sama og ég.“
Íslendingar fljótir að fara í vörn
Teddy á þrjá syni, 21 árs, 19 ára
og 4 ára, sem allir búa á Íslandi.
Hann segir dapurlegt að þurfa að
horfa upp á yngsta soninn alast
upp í umhverfi þar sem hann á
stöðugt á hættu að verða fyrir for-
dómum og aðkasti.
„Eins og bara á seinasta ári,
þávarð ég vitni að því þegar for-
eldrar íslenskrar stelpu bönnuðu
henni að spila fótbolta við 10 ára
son minn. „Ekki tala við svona
fólk,“ sögðu þau, beint fyrir fram-
an mig. Það er ofboðslega dapur-
legt að þetta sé ennþá svona í
dag. Þetta er veruleikinn sem fólk
af mínum uppruna þarf að lifa
við. Fólk þarf að hætta að vera
í afneitun. Það þarf að horfast í
augu við það, að það er rasismi
á Íslandi. Það þarf að opna um-
ræðuna. Íslendingar eru svo
fljótir að fara í vörn og reyna að
réttlæta fordóma. Það er ekki
heldur hægt að fara fram á að
þeir útlendingar sem flytja hing-
að afneiti sínum uppruna, en að
sjálfsögðu á að fara fram á þeir
virði lögin, virði menninguna og
geri sitt besta til að aðlagast sam-
félaginu. Útlendingum er ekkert
að fara að fækka á Íslandi, eftir 20
ár verða þeir orðnir jafnvel enn
stærri hluti af íbúafjöldanum.
Þess vegna er svo nauðsynlegt að
taka á þessum málum núna.“
Teddy bætir því við að það sé
heldur ekki sama hvaðan maður
kemur. Svartur maður frá Nígeríu
fái til að mynda óblíðari viðtökur
en svartur maður frá Bandaríkj-
unum.
„Mér er umhugað um þá
sem hafa ekkert bakland, engan
stuðning. Hvernig ætlum við að
vernda þá? Hvað með þá krakka
sem eru blandaðir (biracial) og
eru fæddir og aldir upp á Íslandi?
Þetta er eini staðurinn, eina um-
hverfið sem þau þekkja og þau
passa ekki inn í það og eru ekki
samþykkt. Hver er þá tilgangur-
inn með því að lifa?“ n
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Olufela Teddy Owolabi.
Viðtal Frétta
blaðsins frá
2001. Þar sagðist
Teddy ekki lengur
þora að láta sjá
sig í miðbænum
af ótta við að
verða fyrir að
kasti. Ljósmynd/
Tímarit.is