Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Qupperneq 20
20 6. mars 2020 Á síðustu árum hefur sprottið upp mikill fjöldi svonefndra líkams­ ræktarstöðva, og fyrir skömmu var haldin hér á landi sýning á því fólki sem náð hafði langt í að byggja upp mik­ il vöðvabúnt. En ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti þeirrar þjálfunar sem þarna fer fram þó flestir séu sammála um að aukin líkamsrækt sé bæði nauðsynleg og æskileg. Í fjölmiðlum undanfarna daga hefur kom­ ið fram gagnrýni á að ekki sé staðið að þjálfuninni í lík­ amsræktarstöðvunum eins og æskilegt væri og þá eink­ um að ekki sé þar sérþjálfað starfsfólk til leiðbeiningar. Þá hefur einnig verið bent á að fólk hafi ofreynt sig og slazast vegna rangrar þjálf­ unar. Þannig hófst frétt sem birtist í DV í febr­ úar árið 1982. Á níunda áratugnum rann heilmikið líkamsræktaræði á Íslendinga. Fram að því voru það nær aðallega kraft­ lyftingamenn og keppendur í íþróttum sem stunduðu það að lyfta lóðum. Lík­ amsræktarstöðvar spruttu upp eins og gorkúlur víða um land á næstu árum og samhliða því jukust vinsældir vaxtarrækt­ ar og þolfimi. „Hingað koma menn alls staðar að. Úr atvinnulífinu, rannsóknarlögreglumenn jafnt sem bifvélavirkjar. Við fengum meira að segja heilt sprautuverkstæði úr Kópa­ voginum,“ sagði athafnamaðurinn Svein­ björn Guðjohnsen í samtali við blaða­ mann DV í september 1980. Nokkrum mánuðum áður hafði hann ásamt Viðari bróður sínum stofnað Orkubót, fyrstu ís­ lensku líkamsræktarstöðina. Í frétt DV var að vísu talað um „líkamsræktarstofu“. „Jú, við gerum það sem kallað er að pumpa járn,“ segir Sveinbjörn. ,,Þeir, sem koma til okkar, eru aðeins að halda líkam­ anum í formi. Aðrir til að fá á sig vöðva. Erlendis er það fyrirbæri nefnt body­ building og við höfum fengið flest þau tæki, sem menn þurfa til að gera sjálfa sig að vöðvaknippum.“ Sveinbjörn tjáði blaðamanni að „lík­ amsræktarstofur eins og þessi væru orðnar mjög algengar erlendis.“ Þá sagði hann að honum væri aðeins kunnugt um eina slíka stofu á Íslandi, Heilsuræktarstofu Eddu, en sú stofa hafði verið lögð niður nokkrum árum áður. Árið 1980 var opnuð önnur líkamsræktar stöð í Reykjavík. Bar stöðin nafnið Heba og þótti það nokkur nýbreytni að þar var eingöngu boðið upp á kvenna­ tíma. Í grein DV í september 1980 segir: „Þar er boðið upp á alhliða leik­ fimi, gufubað, ljós. Þá er gigtarlampi á staðnum. Konunum er síðan boðið upp á kaffi á eftir tímunum og þær fá sérstaka matarlista, að sögn Svövu Svavarsdóttur, annars af eigendunum. Hún sagði, að með leikfiminni væri reynt að ná til allra vöðvanna.“ „Þeir Viðar og Sveinbjörn í Orkubót eru ekki einir um hituna því neðar í Brautar­ holtinu hefur heilsuræktin Apollo aðsetur. Hún er minni um sig en ágætlega búin nýj­ ustu tækjum. Þar ráða þeir ríkjum Birgir Viðar og Heimir Jensson og sjá um hand­ leiðslu allan þann tíma sem menn sækja heilsuræktina. Þar er meiri áhersla lögð á hæga en markvissa þjálfun hinna ýmsu lík­ amshluta en hjá Orkubót og þeir sem vilja pumpa mikinn og lyfta miklum þyngdum í ró og næði eru sennilega betur komn­ ir hjá þeim Viðari og Sveinbirni.“ sagði í grein Vikunnar í desember 1981. Nokkrum mánuðum áður ræddi Birgir Viðar Hall­ dórsson, annar eigenda Apollo við blaða­ mann DV og sagði að konur væru helmingi fleiri en karlmenn. Hann sagði að honum virtist sem þær hugsuðu betur um líkama sinn, en í fyrstu hafi þetta verið feimnis­ mál, því þær héldu að þær fengju vöðva. Þá sagði Viðar Guðjohnsen hjá Orkubót að hjá þeim væru konur heldur fleiri en karlar, og tók hann í sama streng og Birgir um fordóma kvenna gagnvart líkamsrækt. Hann sagði að konur hefðu hins vegar öðru vísi hormónastarfsemi, þannig að vöðvar þeirra ættu erfiðara með að stækka. „Við höfum ekki haft undan við að svara fyrirspurnum undanfarna daga, það hafa jafnvel heilu saumaklúbbarnir sýnt áhuga á að koma,“ sagði Guðmundur Svansson í samtali við DV árið 1982, en hann var þá einn af eigendum líkamsræktarstöðvar­ innar Pallas á Akureyri. Meðal annars kom fram að æfingakerfi stöðvarinnar væri að amerískri fyrirmynd. Sagði sum tækin vera stórhættuleg Það voru þó ekki allir sáttir við þetta nýja æði og jafnvel komu upp hugmyndir um að taka upp eftirlit með líkamsræktar­ stöðvum. Menn gagnrýndu að ekki væri fagfólk við störf inni á stöðvunum. „Ég hef ekki getað kynnt mér þessar stöðvar nema lítillega, en ég veit að sum tækin sem þar eru notuð eru stórhættu­ leg,“ sagði Kristín E. Guðmundsdóttir, for­ maður Félags íslenskra sjúkraþjálfara, í samtali við DV á sínum tíma. „Þessar stöðvar taka á sig mikla ábyrgð með því að hafa ekki fagfólk við störf. Við svona tækjaþjálfun þarf geysilegt eftirlit og flestir byrja á of þungum æfingum vegna vankunnáttu. Það er númer eitt að fagfólk sé til leiðbeiningar og starfsemi þessara stöðva er beint inn á verksviði íþrótta­ kennara.“ Þá sagði Skúli Johnsen borgarlæknir að það væri út í hött að ætla að setja starf­ semi líkamsræktarstöðvanna undir sér­ stakt eftir lit. Sagðist hann ekki hafa kannað starfsemi þessara stöðva nákvæmlega, en hann vissi þó til að þar væru gefnar ein­ hverjar upplýsingar um mataræði, en það væri ekki í lækningaskyni. „Ef svo væri myndi það; varða við lög sem skottulækningar. En þarna væri um að ræða upplýsingar sem væru jafnsjálfsagðar og að „segja íþróttamönnum að reykja ekki og að temja sér hollustu í mataræði.“ n Gamla auglýsingin Vikan. 27. 12. 1984Tímavélin Þegar Íslendingar kynntust líkamsrækt n Líkamsræktaræðið grípur um sig n Líkamsræktarstöðvar spruttu upp eins og gorkúlur „Jú, við gerum það sem kallað er að pumpa járn. Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.