Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Side 26
Menning & viðburðir 06. mars 2020KYNNINGARBLAÐ
LISTASAFN AKUREYRAR:
Lagðar línur, litríkir
skúlptúrar og nýtt kaffihús
Listasafnið á Akureyri er eitt af metnaðarfyllstu listasöfnum á landinu og býður upp á
fjölbreyttar listasýningar sem heilla
jafnt unga sem aldna áhorfendur.
„Við erum með afar ólíkar sýningar
í gangi núna og fjöldann allan af
ólíkum listamönnum sem taka
þátt. Það verður opið hjá okkur alla
páskana ef fólk er að leita sér að
einhverju skemmtilegu til þess að
gera í páskafríinu. Nýverið opnaði
Auður B. Ólafsdóttir kaffihúsið Kaffi
& list í anddyri safnsins þar sem
fæst ýmislegt heimagert góðgæti,
pönnukökur og gæðakaffi frá
Te & kaffi,“ segir Hlynur Hallsson
safnstjóri.
Sýningin Línur er stærsta
sýningin á safninu um þessar
mundir og stendur til 3. maí. „Þetta
er fjölþjóðleg samsýning átta
listamanna frá sex löndum og fjórum
heimsálfum. Það er virkilega gaman
að fá hingað svona alþjóðlega
sýningu með listamönnum sem
ekki margir á Íslandi þekkja.
Listamennirnir eru þau Almuth
Baumfalk (Þýskaland), Armando
Gomez (Mexíkó), Hiro Egami (Japan),
Rym Karoui (Túnis), Miyuki Kido
(Japan), Kristine Schnappenburg
(Þýskaland), Saulius Valius
(Litháen) og Lap Yip (Hong Kong).
Sýningarstjóri er Mireya Samper.
Sýningin er fjölbreytt, hrífandi og
björt. Verkin eru unnin í ólíka miðla.
Titillinn Línur vísar til tenginga milli
landa, listforma, listamanna og
við samfélagið. Línur eru dregnar
bæði í huglægri og bókstaflegri
merkingu. Efnistökin eru frumleg,
s.s. skúlptúrverk eftir Saulius Valius
sem er flugvélarvængur gerður úr
rauðum þráðum sem teygir sig yfir
sýningasalinn og í verki Hiro Egami
svífa steinar um rýmið og skapa
dáleiðandi áhrif.
„Sjö af þeim átta listamönnum
sem taka þátt komu hingað
og dvöldu í gestavinnustofum
Listasafnsins á Akureyri í hátt í
tvær vikur, settu upp verkin sín
og skoðuðu náttúru Norðurlands.
Gestavinnustofurnar erum við með
til umráða fyrir listamenn sem sýna
hjá okkar, en við leigjum einnig út
til listamanna sem vilja dvelja hér í
lengri eða skemmri tíma.“
Sýning Hrafnhildar Arnardóttur –
Shoplifter var opnuð í ágúst 2019 og
stendur fram til 9. ágúst. „Við erum
afar lukkuleg að hafa sýninguna
hennar Hrafnhildar hjá okkur í heilt
ár, en hún hefur heldur betur slegið
í gegn. Sýningin nefnist Faðmar og
samanstendur af litríkum loðnum
verkum. Það er ekki oft sem gestir
fá að snerta verk á söfnum, en hér
eru gestir jafnvel hvattir til að knúsa
verkin.“
Sjöunda sýningin undir heitinu
Sköpun bernskunnar verður opnuð
laugardaginn 7. mars og stendur
til 5. maí. „Þetta er árleg sýning og
í ár vinna fimm ára leikskólabörn
listaverk undir leiðsögn tveggja
starfandi myndlistarkvenna, þeirra
Jonnu – Jónborgar Sigurðardóttur
– og Gunnhildar Helgadóttur, sem
á jafnframt verk á sýningunni.
Aðrir þátttakendur eru Hrafnkell
Sigurðsson myndlistarmaður,
Brekkuskóli, Lundarskóli og
Naustaskóli og leikskólinn Hólmasól.
Einnig verða til sýnis verk eftir
kanadísku listamennina Natalie
Lavoie og Steve Nicoll. Þema
sýningarinnar að þessu sinni er
hús, heimili, skjól með áherslu á
hamfarahlýnun af mannavöldum og
áhrif hennar á búsetuskilyrði.“
Eiríkur Arnar Magnússon er
þekktur fyrir bókverk sín og hér
leitast hann við að upphefja gamalt
handbragð og gefa því nýjan tilgang.
„Turnar, eftir Eirík fær að standa á
svölunum á Listasafninu á Akureyri
fram til 9. ágúst. Um er að ræða
tvo bókaturna sem eru klæddir
timbri úr húsum sem átti að jafna
við jörðu. Timbrið ver viðkvæma
bókaskúlptúrana gegn veðri og
vindum. Á kvöldin er verkið upplýst
að innan með gulum nostalgískum
ljósbjarma sem sést m.a. frá
Akureyrarkirkju.“
Elín Pjet Bjarnason er ein
af huldukonum íslenskrar
myndlistarsögu. „Þegar hún lést
árið 2009 gáfu systursynir hennar
Listasafni ASÍ 550 verk eftir hana.
Við sýnum brot af þeim verkum hjá
okkur á sýningunni Handanbirta
/ Andansbirta sem Aðalsteinn
Ingólfsson setti saman. Verkin á
sýningunni eru portrettmyndir
og abstraktmyndir og er raðað
þannig að andlitin, sem sum
hver eru ógnvekjandi og annars-
heims, eru á einum vegg, á meðan
abstraktverkin eru á veggnum beint
á móti og sýna e.t.v. eitthvað sem
finna má í hugskotum þeirra sem á
portrettmyndunum eru.“ Sýningunni
lýkur 17. maí 2020.
Sýningarnar Frá Kaupfélagsgili
til Listagils, Úrval og Vídeovinda eru
yfirstandandi fram eftir árinu eða
lengur. Sú fyrstnefnda er unnin í
samstarfi við Minjasafnið á Akureyri.
„Ljósmyndir og textar kynna fyrir
áhorfendum fortíð Gilsins áður en
hér var Listagil, en Gilið á mikilvægan
þátt í atvinnusögu Akureyrar. Fólk
hefur gaman af því að sjá hvernig
húsin litu út hér áður fyrr og fræðast
um starfsemina sem þar var í gangi.“
Úrval er sýning á völdum verkum
úr safneign Listasafnsins á Akureyri.
„Listamennirnir eiga flestir rætur að
rekja til Akureyrar eða Eyjafjarðar.
Listasafnið á yfir 700 verk en við
val á verkunum á þessa sýningu var
fjölbreytni og kynjajöfnun höfð að
leiðarljósi.“
Vídeóvinda er vídeóverk úr smiðju
Haraldar Karlssonar. Verkið er byggt
á vídeóverkinu Warp eftir íslensku
listakonuna og frumkvöðulinn Steinu
Vasulku. „Verkið sýnir áhorfandann
í spéspegli, líkt og í speglasal í tívolí.
Börn jafnt og fullorðnir skemmta
sér vel við að skoða þetta verk, sem
breytist eftir hreyfingum áhorfenda
og því hvaða sýning er í gangi
hverju sinni. Verkin frá Hrafnhildi
Arnardóttur / Shoplifter búa til
litríkan bakgrunn fyrir gesti safnsins
til að spegla sig í.
Að lokum vil ég segja að
ég er virkilega spenntur fyrir
sumarsýningunum okkar sem
eru fjórar einkasýningar, þeirra
Snorra Ásmundssonar, Brynju
Baldursdóttur, Heimis Björgúlfssonar
og Jónu Hlífar Halldórsdóttur,
auk norrænar textílsýningar sem
Anna Gunnarsdóttir setur saman.
Á Akureyrarvöku í lok ágúst verður
svo opnuð yfirlitssýning á verkum
Þorvaldar Þorsteinssonar. Það
verður opið hjá okkur yfir alla
páskana og ég hvet fólk til að koma
og kynna sér fjölbreytileikann í 12
sýningarýmum.“
Listasafnið á Akureyri
Kaupvangsstræti 8–12, 600
Akureyri.
Sími: 461-2610.
Tölvupóstur: listak@listak.is
www.listak.is
Opnunartími: Alla daga kl. 12–17
Opnunartími: Kaffi og list: Alla
daga kl. 11.30–18. Frá 1. maí–30.
september alla daga kl. 10–20