Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Qupperneq 30
Menning & viðburðir 06. mars 2020KYNNINGARBLAÐ RITSMIÐJA, LISTASÝNING OG NOTALEG STEMNING Á BÓKASAFNI ÁRBORGAR: „Við erum alltaf með heitt á könnunni“ Bókasafn Árborgar á Selfossi réðst í heilmiklar framkvæmdir í vetur til þess að bæta húsakost og auka enn frekar þægindi gesta sinna. „Hér hefur auðvitað alltaf verið þægilegt andrúmsloft, skemmtilegir gestir og notalegt að dvelja með góða bók, dagblað eða námsefni og sötra rjúkandi kaffi, en lengi má gott bæta. Við bættum við öðrum lesbekk í einn gluggann og erum því með tvö gluggasæti sem gott er að koma sér fyrir í, lesa góða bók og skoða mannlífið fyrir utan. Einnig erum við með notalega lesstofu þar sem gott er að setjast niður og lesa eða læra í ró og næði,“ segir Esther Erla Jónsdóttir bókavörður. Bókasafn Árborgar samanstendur af þremur bókasöfnum, þ.e. á Selfossi, í Blátúni á Eyrarbakka og svo í grunnskólanum á Stokkseyri. „Stærsta safnið er á Selfossi. Þar er jafnframt meiri starfsemi en á hinum söfnunum og opnunartími rýmri. Þess má geta að öllum útlánsbókum safnanna má skila á hvaða safn sem er af þessum þremur söfnum. Ásamt því að hýsa bókasöfn Árborgar höldum við fjölda menningarviðburða á ári. Við erum með tónlistarviðburði, listasýningar, upplestra og margt fleira. Það má alltaf bóka að eitthvað skemmtilegt sé að gerast á bókasöfnunum.“ Börnin elska að koma í bókasafnið Barnabókahornið í bókasafninu er stórskemmtilegur viðkomustaður fyrir börn á öllum aldri. „Barnadeildin okkar er troðfullt af skemmtilegum bókum fyrir yngstu kynslóðina. Þá starfrækjum við m.a. sumarlestrarátak í júní fyrir krakkana í Árborg. Þá skrá börnin sig í sumarlestur og fá lestrarhefti til að halda tölu yfir lesturinn. Svo er haldinn viðburður í hverri viku í júní til þess að hvetja krakkana enn frekar til lestrar. Þá eru ratleikir, upplestrar, fyrirlestrar og fleira skemmtilegt.“ Bókasafn Árborgar var lengi vel eina bókasafnið á landinu sem leigði út kökuform. „Við erum með um 20 kökuform til leigu, allt frá prinsessupilsum og risaeðluformum upp í kransakökuform, sem er jafnframt nýjasta kökuformið okkar. Kökuformaleigan er mjög vinsæl hjá okkur enda er þetta stórsniðugt framtak.“ Bókasafn Árborgar á Selfossi rekur metnaðarfullt sýningastarf. „Í Listagjánni, sýningarsalnum okkar, er ávallt einhver áhugaverð listasýning í gangi. Í augnablikinu sýnir þar Davíð Art Sigurðsson abstrakt- og landslagsmálverk og ber sýningin yfirskriftina Ég vitja þín þegar vorar. Sýningin mun standa út marsmánuð en þá fer upp ný sýning með landslagsljósmyndum eftir Hallgrím P. Helgason, sem er ljósmyndari í Árborg.“ Hvað er á döfinni? Framundan eru skemmtilegir og áhugaverðir viðburðir á vegum bókasafnsins. „Gunna Stella Pálmarsdóttir mun, þann 26. mars kl. 18, halda fyrirlestur um hvernig má einfalda lífið og minnka stress. Við bjóðum alla velkomna á þennan skemmilega viðburð á meðan húsrúm leyfir. Hún Sunna Dís Másdóttir, sem meðal annars hefur birst á sjónvarpsskjáum landsmanna sem gagnrýnandi í Kiljunni, og er jafnframt ein af ljóðakollektívinu Svikaskáld, mun halda ritsmiðju hjá okkur 7. apríl. Um er að ræða fræðandi smiðju þar sem fjallað er um ævisögur, sjálfsævisögur og skáldævisögur sem og gráa svæðið á milli. Þá mun Sunna lesa upp brot úr ævisögum til þess að veita innblástur og svo gera þátttakendur stílæfingar út frá brotunum (Þau gera stílæfingar, en ekki endilega út frá brotunum). Hámarksfjöldi í smiðjuna er fimmtán en skráning er ekki hafin. Smiðjan og fleiri viðburðir verða auglýstir síðar á Facebook-síðu safnsins, Bókasafn Árborgar og við hvetjum lesendur til þess að fylgjast með okkur þar.“ Nánari upplýsingar má nálgast á bokasafn.arborg.is Tölvupóstur: bokasafn@arborg.is Austurvegur 2, Selfossi Sími: 480-1980 Opnunartími yfir vetrartíma: 1. september–31. maí. Virkir dagar: 09.00–19.00 og laugardagar: 10.00–14.00 Eyrarbraut 2, Stokkseyri Sími: 480-3223 Opið er mánudaga og fimmtudaga kl. 16.00–18.00. Þriðjudaga kl. 19.00–21.00 Túngötu 40, Eyrarbakka Sími 480-1991 Opið er mánudaga og fimmtudaga kl. 16.00–18.00. Þriðjudaga kl. 19.00– 21.00 (Þriðjudaga og fimmtudaga 16 –18. Miðvikudaga 19–21)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.