Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Síða 32
Menning & viðburðir 06. mars 2020KYNNINGARBLAÐ
KOMDU Í ÁSKRIFT HJÁ HYDRA FLOT SPA:
Nýtt í ár! Hljóðrituð hugleiðsla
Hydra Flot Spa býður upp á spennandi nýjungar á nýju ári. Frá og með 1. apríl mun
heilsulindin bjóða upp á hugleiðslu
með hljóði á íslensku og ensku
sem verður hægt að hlusta á á
meðan maður flýtur. „Við munum
ekki rukka aukalega fyrir þessa
þjónustu og hægt er að velja á milli
mismunandi hljóðheima sem eru þá
15, 30, 45 og 60 mínútur að lengd.
Náttúruhljóð, bakgrunnstónlist,
hugleiðsla og hvatningarorð
frá þekktum jógakennurum og
heilsusérfræðingum til þess að örva
sköpunargáfu, bæta einbeitingu
eða svefn. Þetta er sérstaklega
gott fyrir þá sem vilja ekki slökkva
á öllum skynfærunum og fljóta í
algeru myrkri og þögn,“ segir Ryan
Kevinson, annar eigenda Hydra Flot
Spa.
Án hugleiðsluhljóðanna býður
flottankurinn upp á fullkomna
hugræna og líkamlega slökun. Hægt
er að vera án nokkurs sjónræns eða
hljóðræns áreitis, sem býður upp á
enn dýpri slökun. Tankar af þessu
tagi hafa meðal annars verið notaðir
af NASA og bandaríska hernum
til að rannsaka mannshugann.
„Fólk líkir þessu oft við að öðlast
góðan nætursvefn á eingöngu einni
klukkustund.“
Jóga shaman á vinnustaðinn þinn
Fríða Rakel Kaaber, annar eigenda
Hydra Flot Spa og jógakennari
að mennt, mun að auki bjóða upp
á sérstök vinnustaðanámskeið
þar sem hún kennir hugleiðslu-
og jógaaðferðir til þess að vinna
á móti stressi í hversdeginum
og ná betra jafnvægi og
grunnsamræmi. Kennsluaðferðir
Fríðu eru byggðar á náttúru
shamanisma sem hún stundaði í
Perú og Amasonfrumskóginum árið
2019 og samtvinnar við þekktar
jógameðferðarleiðir. „Fríða er
jafnframt í hópi þeirra sem leiða
hljóðritaða hugleiðslu í flottönkunum
okkar.“ Hefur þú áhuga á að fá Fríðu
inn á vinnustaðinn? Hafðu samband
í tölvupósti frida@hydraspa.is eða
info@hydraspa.is.
Flotið verður sívinsælla
með hverjum degi hjá öllum
aldurshópum, afreksfólki í íþróttum,
kaupsýslumönnum og hinum
venjulega meðaljóni. Óléttar konur
hrósa einnig Hydra Flot í hástert.
„Fólk er síþreytt og orkulaust, á
erfitt með að einbeita sér og kann
ekki að slaka á. Flotið veitir hámarks
afslöppun í fullkomlega hönnuðu
umhverfi.“ Það þarf ekki að koma
með neitt með sér til þess að njóta
sín í Hydra Flot Spa. Hver og einn er
í sínu herbergi og allir fylgihlutir, eins
og handklæði og fleira, eru til staðar
inni í herberginu.
Draumkennt þyngdarleysi
Hjónin Ryan og Fríða Rakel Kaaber
opnuðu heilsulindina 2018. „Flotið
hefur góð og slakandi áhrif á
bæði líkama og huga einstaklings.
Magnesíumsöltin sem við notum
eru þau sömu og eru notuð
af íþróttameðferðaraðilum í
vöðvabaðmeðferðum. Magnesíum
hefur þekkt jákvæð áhrif á
líkamann og vinnur meðal annars
gegn svefnleysi, kvíða, orkuleysi
og einbeitingarskorti, verkjum,
þunglyndi og jafnvel fíkn. Að auki
eru 500–600 kíló af Epsom-salti
leyst upp í hverjum tanki fyrir sig og
hitastig er það sama og húðarinnar
svo að einstaklingurinn upplifir sig í
draumkenndu þyngdarleysi líkt og í
Dauðahafinu.“
Andlitsmeðferðir og lúxus
nuddstóll
„Nýlega fjárfestum við í þýskum,
hágæðanuddstól sem gestum er
boðið að setjast í fyrir eða eftir
flottíma. Teygjanlegur stóllinn er
útbúinn loftpúðum og innbyggðum
sætishitara, fjögurra vídda baknuddi
og hallast þannig að manni finnst
maður svífa um í þyngdarleysi.
Í Cryo-air-andlitsmeðferðinni
eru engin skaðleg efni notuð
eins og nitur í vökvaformi, heldur
eingöngu tandurhreint íslenskt loft.
Meðferðin er áhrifarík fyrir húðina
og taugakerfið og stuðlar að bættu
og heilbrigðu útliti. Í öllum okkar
meðferðum notum við eingöngu
náttúrulegar og skaðlausar
aðferðir sem við mögnum upp
nútímamanninum í hag og áhrifin
eru augljós.“
Komdu í flot í hverri viku
Hydra Flot Spa hefur nýlega bætt
þjónustu sína til þess að koma til
móts við innlenda viðskiptavini. Nú
er hægt að komast í áskrift að floti
mánaðarlega. Hægt er að velja um
eitt, tvö eða fjögur skipti á mánuði.
„Vinsælasti áskriftarmöguleikinn er
að fara tvisvar í flot á mánuði fyrir
9.900 kr. Hverjum flottíma fylgir
svo frí afnot af nuddstólnum okkar.
Fyrir áskriftarhafa kostar hver auka
tími í flot einungis 5.900 kr. Einnig
fá áskriftarhafar góðan afslátt í
cryo-andlitsmeðferðir.“ Skoðaðu
áskriftarmöguleika undir „Aðild“ á
vefsíðunni hydraflot.is.
Viltu gjafabréf í Hydra Flot?
Hydra Flot býður lesendum DV upp
á sérstaka aðildargjöf. „Þeir lesendur
DV sem skrá sig í áskrift að floti hjá
Hydra Flot hljóta að gjöf gjafabréf
fyrir einn í flot, sem þeir geta notað
sjálfir eða gefið öðrum. Gjafabréfið
gildir í eitt ár frá aðildarskráningu.
Hægt er að skrá sig á netinu eða hjá
okkur að Rauðarárstíg 1.“ Áskriftin er
endurnýjuð sjálfkrafa mánaðarlega.
Hvern flotáskriftartíma er hægt
að nota innan 45 daga svo að þú
missir ekki af flottíma í annasömum
mánuðum. Þá er hægt að deila
flottíma með maka. Svo er hægt að
segja upp skráningu hvenær sem er
eftir fyrstu tvo mánuðina.
„Fór út fyrir þægindarammann
í dag og skellti mér í flot, var bæði
mjög spennt að prófa e-ð nýtt en
líka kvíðin og stressuð þar sem ég
fæ stundum innilokunarkennd. En
þetta var „out of this world“ upplifun!
… Þetta var algjör unaður, bæði
náði ég betri slökun en ég hef áður
upplifað og saltið í vatninu gerði húð
og hár silkimjúkt. Ég mun að öllum
líkindum verða fastakúnni hér og get
100% mælt með þessu. Takk fyrir
mig.“ Sylvía Rut.
Sjá nánar á vefsíðunni hydraflot.is
og Facebook-síðunni: hydraflot.
Fyrir nánari upplýsingar má senda
póst á cryo@hydraflot.is
Hydra Flot Spa er staðsett að
Rauðarárstíg 1, á Hlemmtorgi.