Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Page 37
SAKAMÁL 376. mars 2020
Mann tókst að hafa upp á George sem
sagðist hafa lagt á flótta því stjúpmóðir
hans hefði myrt systkin hans með saltsýru
og hefði reynt slíkt hið sama með hann.
Lík barnanna grafin upp
Það olli þónokkrum vandræðum við rann-
sókn málsins hve langur tími hafði liðið frá
dauða Annie og systkina hennar. Að auki
gátu læknar ekki með fullri vissu sagt til
um áhrif þess að bera saltsýru á hálskirtla.
En það vakti aftur á móti athygli Mann
að Martha hafði keypt mikið magn af salt-
sýru á þeim tíma er börnin voru veik, en
ekkert síðan síðasta barnið dó.
Þessi staðreynd þótti gefa tilefni til að
grafa upp lík barnanna þriggja og var það
gert 3. júlí, 1909. Viti menn, enn, eftir allan
þennan tíma, var að finna leyfar saltsýru í
vefjarsýnum sem tekin voru úr hálsi barn-
anna þriggja.
Thomas sýknaður
Martha Rendell var ákærð fyrir morð og
reyndar Thomas líka. Martha hélt statt og
stöðugt fram sakleysi sínu; sagðist ein-
göngu hafa reynt að lækna börnin af
barnaveiki.
Harry Mann sagði að: „hún hefði haft
unun af því að sjá fórnarlömb sín engjast af
sársauka og fengið af því kynferðislega full-
nægingu“.
Thomas var síðar sýknaður, þrátt fyrir
að hann hefði einnig komið að kaupunum
á saltsýrunni. Talið var að hann hefði ekki
vitað um glæpi Mörthu fyrr en síðar.
Kviðdómur var þó allur af vilja gerður
til að sakfella Thomas, þó ekki væri nema
fyrir að hafa verið í vitorði með Mörthu, en
hafði sitt ekki í gegn.
Bersyndug, vond stjúpa
Martha Rendell var dæmd til dauða og
almenningi blöskraði glæpir hennar. Í
fjölmiðlum var hún kölluð „bersyndug“
kona og fékk einnig hið sígilda viðurnefni
„vonda stjúpan“.
Þann 6. október, 1909, fór Martha
Rendell til fundar við skapara sinn þegar
hún var hengd í Freemantle-fangelsinu.
Hún var grafin í Freemantle-kirkjugarði
og yfir hálfri öld síðar var raðmorðingja að
nafni Eric Edgar Cooke holað niður í sömu
gröf.
Martha var síðasta konan sem tekin var
af lífi í Vestur-Ástralíu. n
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
VARMENNSKA STJÚPUNNAR VONDU
n Martha Rendell tók saman við fjögurra barna föður n Innan skamms fór börnunum fækkandi n Loks var eftir eitt „Sem fyrr
var Martha
boðin og búin að
huga að eymsl-
unum og bar á
hálskirtlana salt-
sýruna góðu
„Vonda stjúpan“ Martha reyndist
börnunum vægast sagt illa.
Grafreitur
númer 409
Hálfri öld eft-
ir aftökuna
fékk Martha
félagsskap.