Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Page 46
46 6. mars 2020STJÖRNUSPÁ
stjörnurnar
Spáð í
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 8. – 14. mars
Það er einhver valdabarátta á vinnustað
þínum á milli þín og annarrar manneskju
og þú ætlar sko ekki að láta undan, sama
hvað það kostar. Mundu samt að sýna
skynsemi því oft vægir sá er vitið hefur
meira. Það er auðvelt að binda enda á
þessa baráttu ef þið hættið að metast og
vinnið frekar saman.
Þú þarft að vera sérstaklega vel vakandi
fyrir smáatriðum þessa vikuna, kæra
naut. Einfaldlega vegna þess að ef þú
missir sjónar á mikilvægu máli þá getur
það blásið upp og sprungið í andlitið á
þér. Þá er líkaminn einnig að reyna að
segja þér eitthvað og þú skalt hlusta vel á
alls kyns verki og eymsli.
Það er mikill losti innra með þér og þú
þarft að fá útrás fyrir hann. Þú skalt samt
fara varlega í að treysta hverjum sem er
til að losa um spennu með ef þú ert ein
hleyp/ur. Það sama á við ef þú ert að
spá í fjárfestingar. Ekki treysta hverjum
sem er og kafaðu vel ofan í málin áður en
þú lætur slag standa.
Þú ætlar að demba þér út úr þæginda
rammanum og kanna villtu hliðina þína.
Eitt skaltu þó hafa hugfast, þótt það sé
alltaf gaman að ögra sjálfum sér – hugs
aðu aðeins út í afleiðingar gjörða þinna
og hvernig þær koma við þína nánustu.
Auðvitað ert þú í fyrsta sæti, en það er
ekki gott að særa aðra með framhleypni.
Þú ert örlát/ur að eðlisfari og þar verður
engin breyting á þessa vikuna. Örlæti
er ekki alltaf fólgið í peningum og þú
gefur svo mikið af þér tilfinningalega að
það kemur niður á tilfinningalífi þínu. Þú
hefur verið óviss um ákveðna manneskju
sem stendur þér nærri um nokkurn tíma
og færð grunsemdir þínar staðfestar í
vikunni.
Þú færð nýjan kraft í vikunni og það var
fyrir löngu kominn tími til. Þú hefur verið
að vanmeta sjálfa/n þig og tala niður til
þín um nokkra hríð. Nú einsetur þú þér
hins vegar að fá aftur trú á þér sjálfri/
sjálfum og einbeita þér að því að gera
það sem veitir þér gleði. Út með stress og
leiðindi – inn með hamingjuna!
Það er auðvelt að kenna öðrum um þína
eigin óhamingju en erfiðara er að horfast
í augu við að þú eigir hlut að máli. Þú
hefur loksins fundið beintengingu í þínar
eigin tilfinningar og gerir upp ýmislegt
í fortíðinni sem er nauðsynlegt að gera
upp. Dökkt ský hefur umlukið þig, en nú
hverfur það á braut, smátt og smátt.
Þú þarft að forgangsraða því þú getur
ekki verið allt í öllu. Þetta gífurlega álag
mun einungis koma illa niður á þér fyrr
en síðar og það er mikilvægt að þú takir
nokkur skref aftur á bak og ákveðir hvað
skiptir mestu máli. Þú þarft í raun bara
að svara einni spurningu: Hvað veitir þér
mesta lífshamingju?
Þú þarft hugsanlega að taka stóra
ákvörðun fyrri hluta vikunnar sem tengist
miklum peningum. Þú skalt því fara vel
yfir fjármál þín og virkilega íhuga hvort
þú getir séð af svo miklu fé og hvort það
muni borga sig. Þetta er ákvörðun sem þú
ein/n getur tekið, en gott er að leita ráða
hjá fjármálalæsum vinum.
Þú þarft að setja ákveðnum ættingja skýr
mörk og ekki láta vaða yfir þig eða segja
eitthvað sem þú meinar ekki eða vilt ekki.
Þessi ættingi hefur gengið á þig og látið
þig heyra um öll heimsins vandamál. Nú
þarft þú að grípa í taumana og koma
þessum ættingja til þartilgerðra ráðgjafa.
Þú átt í einhverjum samskiptaörðugleik
um við nágranna, vini eða samstarfs
félaga. Þú þarft að passa þig á að vera
ekki dregin/n inn í aðstæður sem varða
þig ekki. Það getur reynst þér dýrkeypt
að skipta þér af þessum málum sem geta
auðveldlega breyst í hatramma deilu.
Þú ákveður að brjóta odd af oflæti þínu
og grafa stríðsöxina í máli sem hefur
reynt mikið á þig. Þannig endurheimtir
þú kæran vin sem þú hefur saknað, ó, svo
mikið. Þetta mál situr samt sem áður í þér
og þú gleymir ekki alveg strax en kemst
að því að vináttan var dýrmætari en
þetta þvaður.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Afmælisbörn vikunnar
n 8. mars Siggi Hlö útvarpsmaður, 52 ára
n 10. mars Ágúst Ólafur Ágústsson stjórnmálamaður, 43 ára
n 11. mars Helena Sverrisdóttir körfuknattleikskona, 32 ára
n 12. mars Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins, 45 ára
n 13. mars Jón Þór Ólafsson stjórnmálamaður, 43 ára
n 14. mars Guðbjörg Matthíasdóttir útgerðarkona, 68 ára
n 14. mars Helga Vala Helgadóttir stjórnmálakona, 48 ára
Lesið í tarot Rannveigar Rist
Listabarn væntanlegt -
Svona eiga foreldrarnir saman
Ekki hlaupa af stað
R
annveig Rist, for stjóri ISAL í Straums vík, til-
kynnti fyrir stuttu að hún væri farin í veik-
indaleyfi fram á haust að ráði hjartalæknis.
DV ákvað því að lesa í tarotspil Rannveigar,
en lesendum er bent á að þeir geta dregið sín eigin
tarotspil á vef DV.
Mikil sköpun
Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Rannveigu er Sólin.
Það er bjart yfir Rannveigu eftir að hún tók þá stóru
ákvörðun að hvíla sig í nokkra mánuði. Í einka-
lífi hennar ríkir mikil gleði vegna þessa. Það góða
við Rannveigu er að hún kann að hlusta á sjálfið
og hefur ávallt hugað vel að jafnvægi sínu. Hún er
mjög meðvituð um að heimilislífið hryn-
ur, sem og samband við vini, ef hún
hugsar ekki vel um sig. Í fríinu nær
hún að endurheimta orkuna og
einkennir mikil sköpun þetta
veikindaleyfi. Hún endurnýj-
ar kynni við áhugamál sín
og lætur drauma verða að
veruleika.
Kraftmikil manneskja
Næst er það Sverðkon-
ungur. Hann táknar
manneskju í lífi Rann-
veigar sem er vel gefin og
nýtur þess að stjórna.
Þessi manneskja er
líka sjálfstæð, upp-
finningasöm og nýj-
ungagjörn. Hún er
afar metnað-
arfull og
vegnar
vel í því
starfi sem hún er í. Þessi manneskja er náin Rann-
veigu og mun reynast henni vel í veikindaleyfinu og
býr yfir miklum krafti og hjálpar Rannveigu í nýju
viðskiptatækifæri.
Njóttu kyrrðarinnar
Loks er það Myntriddarinn. Hér eru á ferð skilaboð
til Rannveigar. Mjög mikilvæg skilaboð. Þótt henni
finnist hún ekkert hafa að gera í leyfinu þá hefur
hún samt í nægu að snúast við að slaka á og virkja
sína innri líðan. Njóta kyrrðarinnar. Þótt hugurinn
leiti í ný verkefni með Sverðkonunginum þá verður
hún að staldra við og bíða með allar stórar ákvarð-
anir. Árangurinn sem hún sækist eftir næst á end-
anum. Fyrst þarf henni að líða vel og temja sér
þolinmæði. n
L
eik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðar-
dóttir og trommuleikarinn Hallgrímur Jón
Hallgrímsson eiga von á sínu fyrsta barni
saman, en fyrir á Hallgrímur einn uppkom-
inn son. DV ákvað því að lesa í stjörnumerkin og
athuga hvernig þau Katrín og Hallgrímur eiga
saman.
Katrín Halldóra er krabbi en Hallgrímur er tví-
buri. Samband þessara tveggja merkja getur orðið
afar áhugavert. Krabbinn er mjög viðkvæmur og
tilfinninganæmur og á stundum erfitt með að eiga
samskipti á skýran máta. Það er hins vegar ekki
vandamál hjá tvíburum sem segja nákvæmlega
það sem þeir hugsa. Það hvetur krabbann til að
koma út úr skelinni og getur hann haft róandi áhrif
á æstan tvíburann.
Krabbinn og tvíburinn horfa á heiminn á ger-
ólíkan hátt. Ef virðing þeirra er gagnkvæm ná þau
að skilja hvort annað á mjög djúpan og einstakan
hátt.
Heimakæri krabbinn dekrar við tvíburann. Þá er
krabbinn með mikið og gott innsæi en þarf mikla
ást og umhyggju frá maka sínum. Ef tvíburinn veit-
ir krabbanum ekki þá hlýju geta vandamál skapast
í sambandinu. Mestu skiptir þó að krabbinn nái að
tjá tilfinningar sínar, því tvíburinn á það til að verða
afbrýðisamur og lesa of mikið í aðstæður.
Katrín Halldóra
Fædd: 4. júlí 1989
Krabbi
n uppátækjasöm
n hlý
n traust
n tilfinninganæm
n skapstór
n óörugg
Hallgrímur
Fæddur: 20. júní 1976
Tvíburi
n forvitinn
n með mikla aðlögunarhæfni
n fljótur að læra
n skipulagður
n taugaóstyrkur
n ákvarðanafælinn