Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Page 29
PRESSAN 2910. janúar 2020 land varð til. Þá tilheyrði þorp- ið Austurríki. Þá blossuðu fjöl- skyldudeilur upp í tengslum við bandalög tengd trú. Þær enduðu með því að þorpshöfð- ingjanum, sem hallaðist að kaþ- ólskri trú, var rænt. Frændur hans rændu honum og fluttu til bæjarins Schaffhausen í Sviss, sem var mótmælendatrúar, þar sem hann var dæmdur í ævi- langt fangelsi. Hann var þó lát- inn laus eftir sex ár, eftir að Aust- urríkismenn hótuðu að ráðast á Schaffhausen. Nokkrum áratugum síðar seldi Austurríki eigur sína og jarðir í Sviss til kantónunnar Zürich en hélt þó Büsingen am Hochrhein eftir. Íbúar bæjarins eru sagðir hafa þverskallast við að ganga Sviss á hönd og sagt að það myndu þeir aldrei gera. Þegar hluti af aust- urríska keisaradæminu lenti undir þýskri stjórn á nítjándu öld fylgdi Büsingen am Hochrhein með. Svisslendingar reyndu að koma skikki á þessi mál 1919 og blésu til atkvæðagreiðslu meðal þorpsbúa um hvort þeir vildu yfir gefa Þýska- land og ganga Sviss á hönd. Um 96% þeirra samþykktu að segja skilið við Þýskaland. En stjórnvöld í Berlín höfðu engan áhuga á að gefa þorpið upp á bátinn, kannski sérstaklega vegna þess að Sviss bauð ekkert í skiptum fyrir það. Eins ótrúlegt og það virðist þá hélt staða Büsingen am Hochrhein sér óbreytt í gegnum síðari heimsstyrjöldina. Þýskir hermenn, sem voru frá þorpinu, urðu að sýna skotvopn sín og taka skotfæri úr þeim á landamærum Þýskalands og Sviss og hylja ein- kennisbúninginn áður en þeir gátu haldið áfram för sinni þessa 700 metra heim. Að stríði loknu var staða þorpsins öllu flóknari en áður og ferðir á milli þess og Þýskalands kröfðust þolinmæði og mikillar pappírsvinnu. En 1967 komust Þýskaland og Sviss að samkomulagi um að Büsingen am Hochrhein skyldi tilheyra sviss- nesku tollsvæði og þar með var hægt að leggja landamæraeftirlit og tolleftirlit við þorpið niður. Stærsta vandamál samtímans Í dag er stærsta vandamál íbú- anna skattar, sem eru hærri í Þýskalandi en Sviss, og framfær- slukostnaður, sem er hærri í Sviss en Þýskalandi. Íbúarnir eru flest- ir með hærri laun en samland- ar þeirra því þeir starfa í Sviss en vegna þess að þeir greiða skatt til Þýskalands eru ráðstöfunartekj- ur þeirra minni en ráðstöfunar- tekjur Svisslendinga. En það eru líka kostir við að búa í þorpinu því þar er leiguverð mun lægra en í Sviss. Þorpið laðar einnig að sér svissneska eftirlaunaþega því samkvæmt þýskum lögum fá eftirlaunaþegar góðan skatt- afslátt. Þetta hefur þó þær nei- kvæðu afleiðingar að meðalaldur þorpsbúa fer hækkandi, því eldra fólk flytur í þorpið en ungt fólk flytur á brott. n Þýskt yfirráða- svæði, en umluk- ið svissnesku yfirráðasvæði. Mikaelskirkjan frá 11. öld er vin- sæll viðkomustaður í þorpinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.