Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Page 30
30 10. janúar 2020STJÖRNUSPÁ S ævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, hefur barist ötullega fyrir bættri vitund landsmanna um loftslagsvána, en smá bakslag kom í bar- áttuna um helgina þegar að hann var sakað- ur um að birta villandi tölfræði um kjötát. DV ákvað því að lesa í tarotspil Stjörnu-Sævars og athuga hvað framtíðin ber í skauti sér. Lesendum DV er bent á að þeir geta sjálfir dregið spil á dv.is. Breytingar í einkalífinu Fyrsta spilið sem kemur upp er Stafa- gosi. Það táknar persónu sem stend- ur Sævari nærri. Hér er á ferðinni lífleg manneskja sem færir honum skemmtilegar stundir og ekki síður spennu. Persónan sem um ræðir er mjög glaðleg og nýtur þess að spjalla. Hugsanlega er þetta maki, en þessi manneskja mun færa Sævari góðar fréttir innan tíðar. Þess- ar fréttir gætu þýtt miklar breytingar í lífi Sævars og ný tækifæri gætu skapast. Þá er Sævar nýbyrjaður á verkefni sem á eftir að takast virkilega vel og fyllist hann orku og metnaði við vinnslu þess. Veigamikil viðurkenning Næst er það Stjarnan. Það umlykur Sævar mikill friður og vellíðan. Hann hefur fullkomna stjórn á tilveru sinni og kann upp á tíu þá list að miðla málum. Hann er að ganga inn í mjög jákvætt tímabil sem einkennist af velgengni. Hann á að hafa arm- inn opinn fyrir tækifærum og mun hann senn fá veigamikla viðurkenningu, eitthvað sem hann hef- ur dreymt um. Virkjar draumana Þá er það Töframaðurinn. Sævar sækir andlegan og líkamlegan mátt ómeðvitað til æðri máttarvalda og á sama tíma úr umhverfi sínu. Sjálfsöryggi, skipulag og agi einkennir hann og mun hann virkja drauma sína innan tíðar. Það eru ekki síst vitsmunir hans og hæfileikar í mannlegum samskipt- um sem munu koma honum á áfanga- stað. Sævari er ráðlagt að nota alla sína góðu kosti til að koma hugs- unum sínum í verk sem fyrst. n stjörnurnar Spáð í Naut - 20. apríl–20. maí Fiskur - 19. febrúar–20. mars Vatnsberi - 20. janúar–18. febrúar Steingeit - 22. desember–19. janúar Bogmaður - 22. nóvember–21. desember Sporðdreki - 23. október–21. nóvember Vog - 23. sept.–22. október Meyja - 23. ágúst–22 .sept. Ljón - 23. júlí–22. ágúst Krabbi - 22. júní–22. júlí Tvíburi - 21. maí–21. júní Stjörnuspá vikunnar Gildir 12. – 18. janúar Alls kyns sambönd í þínu lífi eru í for- grunni í þessari viku, hvort sem það eru ástarsambönd, vinasambönd eða sam- bönd við vinnufélaga. Þú virðist vera að reyna ofboðslega mikið að láta öllum líka vel við þig á öllum vígvöllum. Hættu því. Það er því miður ekki hægt að láta öllum líka vel við sig og það er bara allt í lagi. Það eru veigamiklar breytingar framund- an í þínu lífi og þú kvíðir fyrir þeim. Þú hef- ur samt tíma til að sætta þig við þær og ég mæli með því að þú gerir það. Þessar breytingar eiga eftir að verða til góðs, þú bara sérð það ekki alveg strax. Traustur vinur verður enn traustari í þessari viku þegar hann býður fram aðstoða sína í erfiðu verkefni. Annaðhvort verður þú fyrir barnaláni eða einhver nákominn þér, jafnvel einhver sem hefur átt í erfiðleikum með að geta barn. Þetta eru allavega mikil gleðitíðindi og munu lita vikuna af hamingju og bjart- sýni. Þar af leiðandi gengur þér óskaplega vel í vinnunni. Þú svífur um á bleiku skýi og nennir ekki að velta þér upp úr öllu fólkinu sem gerir ekki nóg að þínu mati. Ég mæli með því að þú takir þér síma- lausa tíma yfir daginn þar sem tækin eru gjörsamlega að ná yfirhöndinni í þínu lífi. Styttu skjátímann og reyndu að taka frá einn til tvo klukkutíma á dag þar sem þú leggur símann alveg frá þér. Þú munt finna fyrir miklum mun, bæði í vinnu og einkalífi. Það er einhver svakalega spennandi vinnuferð í kortunum hjá þér, sem á svo sannarlega eftir að létta þér lundina. Þetta er blanda af vinnu og skemmtun og þú kynnist svo mörgu skemmtilegu fólki sem veitir þér mikinn innblástur. Þessi ferð kennir þér einnig mikið um samskipti og hvað þú getur náð miklum árangri og liðið betur ef þú hefur hreinskilin samskipti við fólk. Nú þarftu að passa þig á vinnufélögum þínum, elsku meyja. Það er einhver að reyna að svíkja þig og þú skalt hafa varann á í öllum viðskiptum. Ekki láta tala þig inn á einhverja vitleysu og fylgdu hjartanu – alltaf. Ástarlíf hjá lofuðum meyjum er svo afskaplega gott og verður aldeilis líf og fjör í svefnherberginu – meira en venjulega. Þetta er vika sköpunargáfunnar. Þú þarft að vera í góðum samskiptum við undirmenn þína í vinnunni því einhverjir þeirra hafa áhyggjur af framhaldinu, eftir miklar breytingar á vinnustaðnum. Þú ert manneskjan sem verður að veita fólki innblástur og reyna að ná því besta úr því. Ef það gengur ekki, þá verður bara að hafa það. Vogir sem eru að spá í að breyta um vinnu fá frábært tækifæri í vikunni sem er ekki hægt að sleppa. Einhleypir sporðdrekar hafa engan tíma fyrir ástarlíf og það finnst þeim miður. Það er svo svakalega mikið að gera í vinnunni og þú verður að finna leið til að minnka vinnuálagið og einbeita þér að fjölskyldu, vinum og tilvonandi elskhug- um. Lofaðir sporðdrekar eru hins vegar mjög ákveðnir í að styrkja sambandið og það gengur mjög vel. Númer 1, 2 og 3 þá gerist eitthvað stórkostlegt í ástarlífinu. Ertu að spá í að fara að búa? Eignast barn? Gifta þig? Við erum að tala um svoleiðis stórviðburð sem bankar á dyr í vikunni. Þvílík spenna! Svo finnurðu nýtt áhugamál sem þú trúir eiginlega ekki hvað gefur þér mikið. Ég er að segja þér það – þetta er þín vika! Ertu í fasteignahugleiðingum? Það er eins og þig langi að flytja þig um set og þú dettur niður á hina fullkomnu fasteign á næstu dögum – og ég er ekkert viss um að þessi fasteign sé á Íslandi. Þetta er auðvitað eitthvað sem þarf að hugleiða vel og því boðar þú til fjölskyldufundar til að taka ákvarðanir sem henta allri fjölskyldunni. Þú ert að spá í að fara aftur í nám og ákveður að skrá þig á námskeið til að athuga hvort langt og krefjandi nám sé eitthvað sem henti þér akkúrat núna. Þig langar að færa þig meira inn í skapandi geira sem ég held að þú eigir vel heima í eftir mörg ár af kassalagaðri vinnu. Þú þarft að passa fjármálin aðeins. Þetta er ekkert alvarlegt, en vertu aðeins vakandi fyrir því hvernig þú ráðstafar peningunum þínum, svo þú lendir ekki í vanda. Einkalífið er í forgrunni í þessari viku. Góð samskipti eru gulls ígildi og þú nærð að létta mörgum áhyggjum af þér varðandi góðan vin sem hefur aðeins traðkað á þér að þínu mati. Hrútur - 21. mars–19. apríl Afmælisbörn vikunnar Lesið í tarot Stjörnu-Sævars Nýbakaðir foreldrar – Svona eiga þau saman F jölmiðlakonan Helga Arnardóttir og kvik- myndagerðarmaðurinn Bragi Þór Hinriks- son eignuðust nýverið dreng, sitt fyrsta barn saman. DV ákvað að lesa í stjörnumerki þeirra og athuga hvernig þau eiga saman. Bæði eru þau tvíburar, Bragi fæddur 8. júní og Helga níu dögum síðar, á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Það er líf og fjör í þessu sambandi því það er líkt og fjórar manneskjur komi saman, ekki aðeins tvær. Þessi tvö verða fljótt leið á einhverju og þurfa mikla andlega örvun. Þau virka vel saman þar sem þau geta hent hugmyndum á milli, kenningum og krefjandi verkefnum. Tvíburinn þráir frelsi og alls kyns tjáningar og því geta Helga og Bragi náð sínum hæstu markmiðum saman, því þau eru svo sterk saman. Þau eru vel menntuð og gáfuð. Þá eru þau einnig afar góð í selskap og eru yfirleitt hrókar alls fagnaðar. Ef þau ná að forðast að fara í samkeppni við hvort annað og frekar vinna saman þá verður þetta ástarsamband afar langlíft og farsælt. Bragi Fæddur: 8. júní 1974 Tvíburi n með góða aðlögunarhæfni n skapandi n fljótur að læra n blíður n óákveðinn n stressaður Helga Fædd: 17. júní 1979 Tvíburi n húmoristi n mannvinur n forvitin n ástúðleg n stressuð n ekki samkvæm sjálfri sér Fréttirnar sem öllu breyta n 12. janúar Silja Hauksdóttir leikstjóri, 44 ára n 13. janúar Sylvía Rut Sigfúsdóttir blaðakona, 33 ára n 14. janúar Teitur Þórðarson knattspyrnustjóri, 68 ára n 15. janúar Karitas Harpa Davíðsdóttir söngkona, 29 ára n 16. janúar Margrét Hrafnsdóttir framleiðandi, 50 ára n 17. janúar Hallur Karlsson ljósmyndari, 37 ára n 18. janúar Helgi Seljan fjölmiðlamaður, 41 árs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.