Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2020, Qupperneq 30
30 10. janúar 2020STJÖRNUSPÁ
S
ævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, hefur
barist ötullega fyrir bættri vitund landsmanna
um loftslagsvána, en smá bakslag kom í bar-
áttuna um helgina þegar að hann var sakað-
ur um að birta villandi tölfræði um kjötát. DV ákvað
því að lesa í tarotspil Stjörnu-Sævars og athuga hvað
framtíðin ber í skauti sér. Lesendum DV er bent á að
þeir geta sjálfir dregið spil á dv.is.
Breytingar í einkalífinu
Fyrsta spilið sem kemur upp er Stafa-
gosi. Það táknar persónu sem stend-
ur Sævari nærri. Hér er á ferðinni
lífleg manneskja sem færir honum
skemmtilegar stundir og ekki síður
spennu. Persónan sem um ræðir
er mjög glaðleg og nýtur þess að
spjalla. Hugsanlega er þetta maki,
en þessi manneskja mun færa
Sævari góðar fréttir innan tíðar. Þess-
ar fréttir gætu þýtt miklar breytingar í
lífi Sævars og ný tækifæri gætu skapast.
Þá er Sævar nýbyrjaður á verkefni sem
á eftir að takast virkilega vel
og fyllist hann orku og
metnaði við vinnslu
þess.
Veigamikil
viðurkenning
Næst er það
Stjarnan. Það
umlykur Sævar
mikill friður og
vellíðan. Hann
hefur fullkomna
stjórn á tilveru
sinni og kann upp á tíu
þá list að miðla málum.
Hann er að ganga inn
í mjög jákvætt tímabil
sem einkennist af velgengni. Hann á að hafa arm-
inn opinn fyrir tækifærum og mun hann senn fá
veigamikla viðurkenningu, eitthvað sem hann hef-
ur dreymt um.
Virkjar draumana
Þá er það Töframaðurinn. Sævar sækir andlegan og
líkamlegan mátt ómeðvitað til æðri máttarvalda og
á sama tíma úr umhverfi sínu. Sjálfsöryggi, skipulag
og agi einkennir hann og mun hann virkja drauma
sína innan tíðar. Það eru ekki síst vitsmunir
hans og hæfileikar í mannlegum samskipt-
um sem munu koma honum á áfanga-
stað. Sævari er ráðlagt að nota
alla sína góðu kosti
til að koma hugs-
unum sínum
í verk sem
fyrst. n
stjörnurnar
Spáð í
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir 12. – 18. janúar
Alls kyns sambönd í þínu lífi eru í for-
grunni í þessari viku, hvort sem það eru
ástarsambönd, vinasambönd eða sam-
bönd við vinnufélaga. Þú virðist vera að
reyna ofboðslega mikið að láta öllum líka
vel við þig á öllum vígvöllum. Hættu því.
Það er því miður ekki hægt að láta öllum
líka vel við sig og það er bara allt í lagi.
Það eru veigamiklar breytingar framund-
an í þínu lífi og þú kvíðir fyrir þeim. Þú hef-
ur samt tíma til að sætta þig við þær og
ég mæli með því að þú gerir það. Þessar
breytingar eiga eftir að verða til góðs, þú
bara sérð það ekki alveg strax. Traustur
vinur verður enn traustari í þessari viku
þegar hann býður fram aðstoða sína í
erfiðu verkefni.
Annaðhvort verður þú fyrir barnaláni eða
einhver nákominn þér, jafnvel einhver
sem hefur átt í erfiðleikum með að geta
barn. Þetta eru allavega mikil gleðitíðindi
og munu lita vikuna af hamingju og bjart-
sýni. Þar af leiðandi gengur þér óskaplega
vel í vinnunni. Þú svífur um á bleiku skýi
og nennir ekki að velta þér upp úr öllu
fólkinu sem gerir ekki nóg að þínu mati.
Ég mæli með því að þú takir þér síma-
lausa tíma yfir daginn þar sem tækin eru
gjörsamlega að ná yfirhöndinni í þínu
lífi. Styttu skjátímann og reyndu að taka
frá einn til tvo klukkutíma á dag þar sem
þú leggur símann alveg frá þér. Þú munt
finna fyrir miklum mun, bæði í vinnu og
einkalífi.
Það er einhver svakalega spennandi
vinnuferð í kortunum hjá þér, sem á svo
sannarlega eftir að létta þér lundina.
Þetta er blanda af vinnu og skemmtun og
þú kynnist svo mörgu skemmtilegu fólki
sem veitir þér mikinn innblástur. Þessi
ferð kennir þér einnig mikið um samskipti
og hvað þú getur náð miklum árangri
og liðið betur ef þú hefur hreinskilin
samskipti við fólk.
Nú þarftu að passa þig á vinnufélögum
þínum, elsku meyja. Það er einhver að
reyna að svíkja þig og þú skalt hafa
varann á í öllum viðskiptum. Ekki láta
tala þig inn á einhverja vitleysu og fylgdu
hjartanu – alltaf. Ástarlíf hjá lofuðum
meyjum er svo afskaplega gott og verður
aldeilis líf og fjör í svefnherberginu –
meira en venjulega.
Þetta er vika sköpunargáfunnar. Þú
þarft að vera í góðum samskiptum við
undirmenn þína í vinnunni því einhverjir
þeirra hafa áhyggjur af framhaldinu, eftir
miklar breytingar á vinnustaðnum. Þú
ert manneskjan sem verður að veita fólki
innblástur og reyna að ná því besta úr
því. Ef það gengur ekki, þá verður bara að
hafa það. Vogir sem eru að spá í að breyta
um vinnu fá frábært tækifæri í vikunni
sem er ekki hægt að sleppa.
Einhleypir sporðdrekar hafa engan tíma
fyrir ástarlíf og það finnst þeim miður.
Það er svo svakalega mikið að gera í
vinnunni og þú verður að finna leið til að
minnka vinnuálagið og einbeita þér að
fjölskyldu, vinum og tilvonandi elskhug-
um. Lofaðir sporðdrekar eru hins vegar
mjög ákveðnir í að styrkja sambandið og
það gengur mjög vel.
Númer 1, 2 og 3 þá gerist eitthvað
stórkostlegt í ástarlífinu. Ertu að spá í að
fara að búa? Eignast barn? Gifta þig? Við
erum að tala um svoleiðis stórviðburð
sem bankar á dyr í vikunni. Þvílík spenna!
Svo finnurðu nýtt áhugamál sem þú trúir
eiginlega ekki hvað gefur þér mikið. Ég er
að segja þér það – þetta er þín vika!
Ertu í fasteignahugleiðingum? Það er
eins og þig langi að flytja þig um set og þú
dettur niður á hina fullkomnu fasteign á
næstu dögum – og ég er ekkert viss um
að þessi fasteign sé á Íslandi. Þetta er
auðvitað eitthvað sem þarf að hugleiða
vel og því boðar þú til fjölskyldufundar
til að taka ákvarðanir sem henta allri
fjölskyldunni.
Þú ert að spá í að fara aftur í nám og
ákveður að skrá þig á námskeið til að
athuga hvort langt og krefjandi nám sé
eitthvað sem henti þér akkúrat núna. Þig
langar að færa þig meira inn í skapandi
geira sem ég held að þú eigir vel heima í
eftir mörg ár af kassalagaðri vinnu.
Þú þarft að passa fjármálin aðeins.
Þetta er ekkert alvarlegt, en vertu aðeins
vakandi fyrir því hvernig þú ráðstafar
peningunum þínum, svo þú lendir ekki í
vanda. Einkalífið er í forgrunni í þessari
viku. Góð samskipti eru gulls ígildi og þú
nærð að létta mörgum áhyggjum af þér
varðandi góðan vin sem hefur aðeins
traðkað á þér að þínu mati.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Afmælisbörn vikunnar
Lesið í tarot Stjörnu-Sævars
Nýbakaðir foreldrar –
Svona eiga þau saman
F
jölmiðlakonan Helga Arnardóttir og kvik-
myndagerðarmaðurinn Bragi Þór Hinriks-
son eignuðust nýverið dreng, sitt fyrsta barn
saman. DV ákvað að lesa í stjörnumerki þeirra
og athuga hvernig þau eiga saman.
Bæði eru þau tvíburar, Bragi fæddur 8. júní og
Helga níu dögum síðar, á sjálfan þjóðhátíðardaginn.
Það er líf og fjör í þessu sambandi því það er líkt og
fjórar manneskjur komi saman, ekki aðeins tvær.
Þessi tvö verða fljótt leið á einhverju og þurfa
mikla andlega örvun. Þau virka vel saman þar sem
þau geta hent hugmyndum á milli, kenningum og
krefjandi verkefnum. Tvíburinn þráir frelsi og alls
kyns tjáningar og því geta Helga og Bragi náð sínum
hæstu markmiðum saman, því þau eru svo sterk
saman.
Þau eru vel menntuð og gáfuð. Þá eru þau
einnig afar góð í selskap og eru yfirleitt hrókar alls
fagnaðar. Ef þau ná að forðast að fara í samkeppni
við hvort annað og frekar vinna saman þá verður
þetta ástarsamband afar langlíft og farsælt.
Bragi
Fæddur: 8. júní 1974
Tvíburi
n með góða aðlögunarhæfni
n skapandi
n fljótur að læra
n blíður
n óákveðinn
n stressaður
Helga
Fædd: 17. júní 1979
Tvíburi
n húmoristi
n mannvinur
n forvitin
n ástúðleg
n stressuð
n ekki samkvæm sjálfri sér
Fréttirnar sem öllu breyta
n 12. janúar Silja Hauksdóttir leikstjóri, 44 ára
n 13. janúar Sylvía Rut Sigfúsdóttir blaðakona, 33 ára
n 14. janúar Teitur Þórðarson knattspyrnustjóri, 68 ára
n 15. janúar Karitas Harpa Davíðsdóttir söngkona, 29 ára
n 16. janúar Margrét Hrafnsdóttir framleiðandi, 50 ára
n 17. janúar Hallur Karlsson ljósmyndari, 37 ára
n 18. janúar Helgi Seljan fjölmiðlamaður, 41 árs