Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2020, Page 6
24. APRÍL 2020 DV
A nna Aurora Waage Óskarsdóttir komst í fréttirnar fyrr í mánuðinum
eftir að hún var handtekin í
Bolungarvík grunuð um að
hafa villt á sér heimildir til
að starfa réttindalaus sem
sjúkraliði í bakvarðasveit
Heilbrigðisstofnunar Vest
fjarða, auk þess sem hún var
sökuð um lyfjastuld. DV hafa
undanfarnar vikur borist hátt
í hundrað ábendingar frá fólki
sem segir Önnu Auroru hafa
leikið tveim skjöldum, logið
til um starfstitla eða menntun
eða boðið fram sérfræðiþjón
ustu á ýmsum sviðum, svosem
lögmannsþjónustu og skatta
ráðgjöf, án þess að hafa til
skilin réttindi.
Úr Mosfellsbænum
Anna Aurora Waage Óskars
dóttir er fædd 7. júlí 1983.
Samkvæmt heimildum DV er
fæðingarnafn hennar Anna
Jóna Óskarsdóttir. Mun hún
hafa notað fæðingarnafn sitt
fram á unglingsaldur en síðan
bætt við eftirnafninu Waage.
Anna Aurora ólst upp í Mos
fellsbæ og er yngst þriggja
systkina.
Samkvæmt heimildum DV
gekk Anna Aurora í Varmár
skóla í Mosfellsbæ. Að loknu
grunnskólaprófi stundaði um
tíma nám við Fjölbrautaskól
ann í Ármúla og Borgarholts
skóla en engar heimildir eru
til staðar um að hún hafi lokið
stúdentsprófi frá íslenskum
eða erlendum skóla.
Sambýlismaður Önnu er
Hreinn Heiðar Oddsson, fædd
ur 24. janúar 1974, og eiga þau
fimm börn á aldrinum 815
ára.
2007-2010
Samkvæmt gögnum sem
DV hefur undir höndum var
einka hlutafélagið LF verk
ehf. stofnað í júní 2007 og
starfsemin flokkuð undir
leigu atvinnuhúsnæðis. Í mars
2009 var fyrirsvarsmönnum
fyrirtækisins, Önnu Auroru
(þá Anna Jóna Óskarsdóttir)
og Hreini Heiðari Oddssyni,
stefnt fyrir dóm af tveimur
verktökum sem störfuðu hjá
fyrirtækinu árið 2007 og
fram í ársbyrjun 2008. Kröfð
ust þeir vangoldinna vinnu
launa, sem dómurinn féllst á
að hluta.
Annar starfsmaðurinn
staðfesti í samtali við DV
að hann hefði á sínum tíma
verið ráðinn í verktakavinnu
fyrir fyrirtækið til að sinna
framkvæmdum á Litlu Fells
öxl í Hvalfjarðarsveit, þar
sem reisa átti sumarbústaði.
LF verk ehf. var úrskurðað
gjaldþrota í janúar 2010. Sam
kvæmt opinberum gögnum
var Anna Jóna Óskarsdóttir
skráður þinglýstur eigandi að
Litlu Fellsöxl 4, ásamt Hreini
Heiðari Oddssyni. Í mars 2011
var eignin auglýst á nauðung
aruppboði.
2012
DV hefur heimildir fyrir að
minnsta kosti tveimur kærum
sem lagðar hafa verið fram á
hendur Önnu Auroru vegna
fjársvika. Sú fyrri var lögð
fram árið 2013 en í samtali
við DV bað kærandinn um
nafnleynd. Hann segir Önnu
Auroru hafa verið kallaða inn
í skýrslutöku vegna málsins á
sínum tíma. Engin ákæra hafi
þó verið gefin út.
„Í kringum 2012 kynnist
ég henni einhvern veginn
á netinu og hún þykist vera
lögfræðingur. Ég átti í hálf
gerðum útistöðum við lög
fræðistofu sem mér fannst
ekki standa sig gagnvart mér.
Hún þóttist geta leyst öll mín
vandamál og ég lagði ein
hvern 40 þúsund plús inn á
hana. Hún tók við persónuupp
lýsingum frá mér og fleirum.
Já, hún ætlaði að sækja eitt
hvert skjal sem kostaði 25.000
minnir mig. Svo þegar ég
fór að ýta á hana þá þóttist
hún vera upptekin við önnur
mál,“ segir kærandinn sem á
þessum tíma bjó í sama bæjar
félagi og Anna Aurora.
„Eftir að ég kærði og gekk á
hana fluttu þau héðan. Ég var í
rauninni í afneitun. Því ég beit
á agnið, lét hana hafa pening
og persónulegar upplýsingar.
Ég vildi ekki trúa því að þetta
væru tómar blekkingar. Þetta
eru vondar minningar að rifja
upp.“
Þess ber að geta að í tölvu
póstsamskiptum Önnu Auroru
og kærandans frá þessum
tíma, sem DV hefur afrit af,
titlar Anna Aurora sig sem
„hdl og löggildan verðbréfa
sala“. Þá titlar hún sig einn
ig sem stjórnarmann í stjórn
Samherja á Íslandi og Sam
skipta ltd.
2013
Árið 2013 var Anna Aurora
búsett í Mosfellsbæ. DV og
fleiri fjölmiðlar greindu frá
því á dögunum að árið 2013
hefði hún sótt um fjárhagsað
stoð úr neyðarsjóði Lágafells
kirkju í Mosfellsbæ en á þeim
tíma þjónaði Skírnir Garðars
son þar sem prestur. Skírnir
grunaði hana um græsku og
spurðist fyrir um gögn þau er
hún lagði fram til stuðnings
umsókninni. Í kjölfarið kærði
Anna Aurora Skírni fyrir
persónuverndarbrot vegna
þessarar eftirgrennslanar og
leiddi það til þess að honum
var sagt upp störfum.
Í febrúar 2013 var Anna
Aur ora, þá Anna J. Waage,
kjörin formaður Barnanna
okkar, samtaka foreldra leik
skólabarna í Reykjavík. Á
heimasíðu samtakanna kom
fram að hlutverk þeirra væri
að „standa vörð um hags
muni og velferð leikskóla
barna á leikskólum Reykja
víkurborgar“. Í tengslum við
það sat Anna meðal annars
fundi í skóla og frístundaráði
Reykjavíkurborgar. Samtökin
voru lögð niður í ágúst sama
ár. Í samtali við RÚV á sínum
HVER ER ANNA AURORA WAAGE?
Anna Aurora var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar til að sinna starfi bakvarðar á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. MYND/ANTON
Hér gefur að líta hluta af ferli Önnu Auroru í
gegnum árin. Þess ber að geta að stuðst er við
opinber gögn og staðfestar heimildir.
Framhald á síðu 8 ➤
Ritstjórn
dv@dv.is
6 FRÉTTIR