Íþróttablaðið - 01.03.1948, Síða 16

Íþróttablaðið - 01.03.1948, Síða 16
6 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Alb ert Gnðmnndsson Frægasti knattspyrnnmaðnr Islands Efnilegur íþróttamaður. Þegar á barnaskólaárum Alberts iruðmundssonar, kom það í lj;\'\ að iíonum voru meðfæddir frábærir eig- inleikar til iðkunnar hverskonar í- þrótta, Var því nær sama hvað hann lagði fyrir sig, allsstaðar komu liinir einstöku hæfileikar skýlaust fram. ■— „Það var engu líkara, en að hann hefði ekkert fyrir hinum erfiðustu viðfangs- efnum, hinna ýmsu íþrótta.“ Leik- bræður hans sem og aðrir, er honum voru kunnugir, voru þvi nær allir sammála um það, að ef Albert veldi einhverja vissa íþróttagrein, sem liann svo helgaði krafta sina, — þá liði eigi á löngu, þar til hann yrði sér- stakur í sinni röð. Fimleikar urðu Albert kærir. ,Á þjessum árum varð' Albert svo heppinn að njóta kennslu hins ágæta og stranga fimleikakennara Vignis Andréssonar. Og einmitt á þeim tima stofnaði Vignir, drengja fimleikaflokk, og varð Albert einn meðal hinna út- völdu meðlima flokksins. Albert fylgdi svo flokknum sem sagt sleitulaust, fram til hinna síðari ára, og var meira að segja virkur meðlimur í honum, þótt flokkurinn gengi í K. R. En sem kunnugt er, er uppruna hins nafn- togaða fimleikaflokks K. R. að finna í framangreindum drengja úrvalsflokk Vignis Andréssonar. Er ekki nokkur vafi á þvi að á- rangur sá, er Albert náði i fimleika- flokki Vignis Andréssonar á mikil- vægan þátt i gengi Alherts á knatt- spyrnuvellinum. Alli í Val. Það fór þó svo, að knattspyrnan, iþrótt sú, er eigi enn hefir verið tekin upp meðal skólaíþrótta, þótt dáð sé af meginþorra landsmanna, jafnt ung- um sem gömlum, varð sú iþróttagrein, er Albert fékk mestar mætur á. Eftir Á. Á. Þaö eru eigi nema rösk Jtrjú ár síðan Albert byrjaði aö leika knattspyrnu er- lendis, en þó er hann í dag í hópi hinna frœgustu núlifandi fslcndinga. Hann er elskaður og dáöur af milljónum manna í MiÖ-Evrópu, og af mörgum tekinn í dýrlingatölu. Hér verður í stórum drátt- um fylgt knattspyrnuferli Alberts, sem er ein óslitin frœgöarbraut. Albert valdi knattspyrnufélagið Val, og byrjaði þegar á 4. fl. aldri að leika með því félagi, og lék síðan með Val allt til þess er hann fór utan og gerði knattspyrnuna að atvinnugrein sinni. Murdo og AIli. Sumrin 1937 og 1939 starfaði skozk- ur maður, að nafni Murdo McDougall, sem knattspyrnuþjálfari hjá Val. Mur- do, sem þá var mjög frægur knatt- spyrnumaðiir, og leikið hafði við hinn bezta orðstír, ineð hinu fræga skozka atvinnuliði Glansgow Rangers, sýndi strax i starfi sínu að knattspyrnan var hans „annað líf“, og lagði liann frá byrjun sérstaka áherzlu á að innræta hið rétta eðli knattspyrnunnar, hjá hinum yngri meðlimum félagsins. Al- bert Guðmundsson varð einn þeirra drengja, sem Murdo McDougall lagði mikla rækt við og urðu þeir þegar mjög samrýmdir Albert eigi sterkur fyrir liðið í heild: Albert Guðmundsson byrjaði eins og áður er sagt að leika, með félagi sínu „Val“, er hann var í 4. aldursflokki. Síðan eftir því, sem árin liðu lék Al- bert í 3., 2. og 1. flokki, þar til að lokum að hann varð fastur meistaraflokks- maður. Mörg þessara ára lék Albert með tveimur og þremur aldursflokk- um yfir sumartímann Þótt Albert hafi, eftir þvi sem árin liðu, betur og betur sýnt það í leik sín- um, að hann liafði yfir að ráða hinum beztu eiginleikum, sem einn knatt- spyrnumaður getur haft, er það þó langt frá því að vera rétt hermt, ef sagt yrði, að hann hafi ávallt verið talinn bera höfuð og herðar yfir meðleiksmenn sína. — Sannleikurinn er sá að Alli var alla tíð mjög umdeildur knattspyrnu- maður, og ekki hvað sizt af mörgum ineðleiksmönnum sínum. Aðalgalli Al- berts var talinn vera sá að hann sýndi of mikinn „egoisma" í leik sínum, sem

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.