Íþróttablaðið - 01.10.1966, Qupperneq 6
Kosningar á
íþróttaþingi
Forseti:
Gísli Halldórsson.
Framkvæmdast jórn:
Guðjón Einarsson,
Gunnlaugur J. Briem,
Sveinn Björnsson,
Þorvarður Árnason.
Varastjórn:
Gunnar Vagnsson,
Hannes Þ. Sigurðsson,
Atli Steinarsson,
Gunnar Hjaltason,
Böðvar Pétursson.
Endurskoðendur:
Þórarinn Magnússon,
Árni Bjarnason.
Varaendurskoðendur:
Stefán G. Björnsson,
Gunnar Eggertsson.
Tilnefning í sambandsráð:
Vesturland.
Óðinn Geirdal,
varam. Jón F. Hjartar.
Vestfirðir.
Sigurður Jóhannsson,
varam. Þór Hagalín.
Norðurland vestra.
Guðjón Ingimundarson,
varam. Ingvar Jónsson.
Norðurland eystra.
Ármann Dalmannsson,
varam. Þóroddur Jöhannsson.
Austfirðir.
Þórarinn Sveinsson,
varam. Björn Magnússon.
Suðurland.
Þórir Þorgeirsson,
varam. Stefán Runólfsson.
Reykjanes.
Yngvi R. Baldvinsson,
varam. Jón M. Guðmundsson.
Reykjavík.
Jens Guðbjörnsson,
varam. Baldur Möller.
Björgvin Sighvatsson, forseti bæjar-
stjórnar Isafjarðar, flytur ávarp sitt
við setningu íþróttaþings.
Í.S.Í. fyrir árin 1967 og 1968 og til-
lögur fjárhagsnefndar.
Fyrir áliti fjárhagsnefndar mæltu
þeir Hermann Sigtryggsson, Björgvin
Schram og Gunnlaugur J. Briem.
Urðu talsverðar umræður um bæði
fjárhagsáætlunina og einstakar til-
lögur. Einkum mætti mótspyrnu til-
laga nefndarinnar um hækkun
skatts sambandsfélaga til I.S.I., og
fór svo, að tillaga frá forseta I.S.I.
um, að skatturinn skyldi óbreyttur
haldast næstu 2 ár, var samþykkt
samhljóða.
Við þessar umræður kom það fram,
að óhagræði væri að því, að fjár-
hagsáætlun skyldi taka fyrir og sam-
þykkja, áður en þingnefndir skiluðu
álitum og tillögum, sem hugsanlegt
væri, að hefðu í för með sér útgjöld
fyrir I.S.Í., ef samþykktar yrðu. Væri
illmögulegt að fjalla um og sam-
þykkja slíkar tillögur, eftir að bund-
ið hefði verið fyrir pyngju fram-
kvæmdastjórnarinnar með sam-
þykktri fjárhagsáætlun.
Var samþykkt tillaga Kristjáns
Ingólfssonar þess efnis, að þingfor-
seti leitaði afbrigða frá þingsköp-
um og frestaði afgreiðslu fjárhags-
áætlunar, unz afgreidd væru önnur
nefndarálit.
Þegar f jallað hafði verið um aðrar
tillögur frá fjárhagsnefnd og þær
samþykktar að mestu óbreyttar,
hafði Sigurgeir Guðmannsson fram-
sögu fyrir áliti laganefndar þings-
ins, en sú laganefnd hafði fjallað
um tillögur laganefndar l.S.I. til
þingsins og gert á þeim „smávægi-
legar orðalagsbreytingar", svo sem
þeir nefndu það í nefndaráliti sínu.
I laganefnd l.S.I. áttu þessir menn
sæti: Brynjólfur Ingólfsson, Þor-
steinn Einarsson, Sigurgeir Guð-
mannsson og Hermann Guðmundsson.
Fór svo, að allar þær lagabreyt-
ingar, sem lagt hafði verið til, að
samþykktar yrðu, flugu í gegn, þó
ekki án þess, að enn yrði gerð ,„smá-
vægileg orðalagsbreyting".
Var það klausan um, að íþrótta-
félag skuli bera nafn, sem samrým-
ist íslenzku „málkerfi", sem fór í
taugarnar á nokkrum þingfulltrúum,
þeirra á meðal undirrituðum.
Urðu um þetta eina orð nokkrar
orðahnippingar og tillögugerðir, en að
lokum urðu menn á það sáttir, að
tilganginum yrði náð, ef félag bæri
nafn, sem samrýmdist íslenzku
,,máli“.
Því get ég um þetta atriði, sem
virðast má smávægilegt, að mér virt-
ist mjög einkennandi, hvað þing-
fulltrúar allir voru um það sam-
hentir, að vandað væri til málfars
á því efni, sem frá þinginu skyldi
fara.
Þá var auk þess samþýkkt laga-
breyting samkvæmt tillögu Kristjáns
Ingólfssonar, en sú var breytingin á
14. grein, hvað snertir fyrirtökuröð
mála á iþróttaþingi, og er því þing-
sköpum þannig breytt, að þingnefnd-
ir skulu í framtiðinni skila störfum,
áður en fjallað verður um fjárhags-
áætlun, sbr. það, sem hér að fram-
an er um það mál rætt.
Lagabreytingarnar í heild, eins og
þær voru samþykktar á þinginu, svo
og allar samþykktir þingsins, eru
birtar sérstaklega hér í blaðinu, og
er því ekki ástæða til að rekja þær
nánar í þessari frásögn.
Að loknum lagabreytingum var
gert hlé á þingstörfum samkvæmt
dagskrá, enda var senn liðið að há-
degi. Þorsteinn Einarsson, íþrótta-
fulltrúi, flutti nú snjallt erindi um
þróun æskulýðsstarfs á Islandi. Rakti
hann að nokkru sögu þeirra ýmsu
félaga, sem haft hafa að stefnuskrár-
málum að beina áhuga æskunnar að
heilbrigðum verkefnum, en flestum
hefur verið það sameiginlegt, að
fjárskortur hefur staðið þeim fyrir
þrifum. Var erindi hans ærið fróð-
174