Fréttablaðið - 01.07.2020, Qupperneq 4
Veður
Breytileg átt 3-8 m/s, en norð-
austan 5-10 við suðaustur-
ströndina og norðvestantil fram
eftir degi. Skýjað að mestu um
landið sunnanvert og lítilsháttar
súld suðvestanlands. SJÁ SÍÐU 18
Heyskapur á Suðurlandi
Bændur eru víða byrjaðir í heyskap og þjóta nú vinnuvélar um túnin líkt og á þessu túni á Suðurlandi. Víða þarf að vinna upp tún vegna kals.
Vinnudagar geta verið langir, en það veltur mest á veðrinu. Ekki er búist við úrkomu á landinu fyrr en á föstudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SAMFÉLAG „Það er mikil tilhlökkun í
hópnum. Við erum búin að vera æfa
á fullu og láta fólk ganga sig í form.
Það er ekkert gaman af þessu öðru-
vísi en að fólk ráði við þetta,“ segir
Kristinn Halldór Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Blindrafélagsins, sem
ætlar ásamt hópi félagsmanna að
ganga Laugaveginn um miðjan júlí.
Um er að ræða ferð sem er sam-
starfsverkefni Ferðafélagsins og Helj-
armennafélags Blindrafélagsins, sem
er útivistar- og ferðaklúbbur fyrir
félaga, aðstandendur þeirra og vini.
Gönguhópurinn telur alls 22 og er
helmingurinn annaðhvort blindur
eða mjög sjónskertur. Fólk verður
parað saman, þannig að einn sjáandi
hefur auga með einhverjum blindum
eða sjónskertum.
„Við tilteknar aðstæður þurfum
við aðstoð. Þeir sem eru sjáandi eru
yfirleitt í sjálflýsandi vestum og sá
sjónskerti gengur fyrir aftan. Það
er mjög algengt hjá okkur að við
sjáum ekki stígana. Maður á það til
að villast út af þeim og þá er gott að
hafa eitthvað skært fyrir framan sig,“
segir Kristinn Halldór.
Ferðin hefst þann 15. júlí og mun
hópurinn keyra inn í Landmanna-
laugar, þar sem gengið verður upp
í Hrafntinnusker. Á öðrum degi
verður gengið í Álftavatn og á þeim
þriðja í Emstrur. Þaðan verður svo
gengið inn í Þórsmörk.
„Við erum að enda gönguna okkar
sama dag og Laugavegshlaupið er,
þannig að það verður örugglega
mikil stemning á gönguleiðinni.“
Vegna fárra ferðamanna þetta
sumarið, gefst hópnum tækifæri til
að ganga þessa vinsælu leið í meira
næði en venjulega. Kristinn Halldór
segir að það muni hjálpa hópnum.
„Svo er það bara þannig þegar
maður er uppi á fjöllum, að það tekur
dálítið frá manni upplifunina ef það
er stöðugur straumur af fólki á leið-
inni. Upplifunin er miklu sterkari ef
maður sér sig einan í víðáttunni.“
Sjálfur er Kristinn Halldór vanur
göngumaður og hefur gengið mikið
bæði hérlendis og erlendis. Hann
hefur þó aldrei áður gengið allan
Laugaveginn, heldur aðeins hluta
hans. Hópurinn hefur að undan-
förnu undirbúið sig með því að
ganga á Esjuna, Skálafell, Helgafell,
í Búrfellsgjá og Heiðmörk.
„Sumir í hópnum eru byrjendur í
svona göngu. Fólk þarf að kynnast
því hversu mikill munur það er að
ganga á svona grófu yfirborði og á
malarstígum, eða góðum skógar-
stígum, svo ég tali nú ekki um á mal-
biki.“
Það sé þannig mjög algengt að fólk
sparki í steina eða stígi upp á stein og
misstígi sig. „Við þurfum að reikna
með svona 25 til 30 prósenta lengri
tíma almennt. Mesti munurinn
liggur í því þegar við förum niður,
þar sem er sæmilega bratt eða gróft
undirlag. Þá förum við mjög varlega.“
Kristinn Halldór fékk nýlega
leiðsöguhundinn Vísi sem mun að
sjálfsögðu fylgja eiganda sínum á
göngunni.
„Hann er líka búinn að vera í þjálf-
un, en við höfum verið að ganga
tölu vert saman á fjöllum. Hann
þræl virkar og eykur gönguhraðann
umtals vert á sléttlendi og svigar svo
með mig milli steina og hindrana.
Við förum bara saman í þetta ævin-
týri.“ sighvatur@frettabladid.is
Heljarmenni ætla að
ganga Laugaveginn
Hópur göngu- og útivistarfólks í Blindrafélaginu sem kallar sig Heljarmenna-
félagið undirbýr nú Laugavegsgöngu. Framkvæmdastjóri félagsins segir mikla
tilhlökkun í hópnum en leiðsöguhundurinn Vísir fylgir honum á göngunni.
Hluti hópsins í æfingagöngu á dögunum. MYND/KRISTINN HALLDÓR EINARSSON
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
PREN
TU
N
.IS
NÝBAKAÐ
BRAUÐ
ALLA DAGA
.......................................
www.bjornsbakari.is
Upplifunin er
miklu sterkari ef
maður sér sig einan í víðátt-
unni.
Kristinn Halldór Einarsson
SAMFÉLAG Ísland er í efsta sæti Evr-
ópuþjóða yfir virkni á samfélags-
miðlum, en alls nota 92 prósent
þjóðarinnar að minnsta kosti einn
samfélagsmiðil. Hefur hlutfallið
hækkað um 1 prósent frá árinu 2019
samkvæmt Eurostat, tölfræðistofnun
Evrópusambandsins.
Norðmenn koma næstir á eftir
Íslendingum með 86 prósenta virkni
og Danir í þriðja sæti. En neðstu
sætin verma Ítalir og Frakkar, með
aðeins 42 prósent.
Nær öll íslensk ungmenni, á aldr-
inum 16 til 24 ára, eru á samfélags-
miðlum, eða 98 prósent. Þetta er
sama hlutfall og kemur fram hjá
öðrum þjóðum, til dæmis Bretum
og Kýpurbúum.
Það sem hífir Ísland upp í stóra
samhenginu er notkun eldri borgara,
65 ára til 74 ára. Í þeim aldurshópi er
Ísland í sérflokki, með 74 prósenta
virkni, en í öðru sæti koma Norð-
menn með 56 prósent. Meðaltal
þessa aldurshóps í allri álfunni er
aðeins um 20 prósent.
Þá er Ísland einnig í efsta sæti í
öllum aldurshópum, á milli 24 og 65
ára, en munurinn er ekki jafn mikill
og í þeim elsta.
Athygli vekur að íslenskar konur
á miðjum aldri og upp úr eru mun
virkari á samfélagsmiðlum en karlar.
– khg
Íslendingar
í sérflokki
Íslenskir eldri borgarar bera af í Evr-
ópu. MYND/SVERRIR PÁLL ERLENDSSON
Konur á miðjum aldri og
upp úr eru virkari en
karlmenn.
SAMFÉLAG Einar Hermannsson var
kjörinn formaður Samtaka áhuga-
fólks um áfengis- og vímuefna-
vandann á á aðalfundi samtakanna
í gærkvöldi. Hafði hann betur en
Þórarinn Tyrfingsson, fyrrverandi
formaður SÁÁ. Arnþór Jóns son, frá-
farandi formaður, sóttist ekki eft ir
end ur kjöri.
Alls greiddu 490 manns atkvæði á
fundinum á Hilton Reykjavík Nor-
dica í gær, hlaut Einar 280 atkvæði.
Þá var sextán manna listi Einars
kjörinn í stjórn SÁÁ.
Átök hafa verið í kringum for-
mannskjörið og höfðu 57 starfs-
menn samtakanna lýst yfir stuðn-
ingi við Einar. – ab
Einar kjörinn
formaður SÁÁ
Einar Hermanns-
son, formaður
SÁÁ
1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð