Fréttablaðið - 01.07.2020, Side 19
Bio-Kult Mind
NÝTTNý vara með áherslu á hugræna virkni.Rannsóknir hafa sýnt að tenging á milli heila og
meltingarvegs (gut-brain-axis) er mikil og að
þarmaflóran gegni þar lykilhlutverki.
Bio Kult – stendur vörð um þína heilsu
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Áttu erfitt með að
halda einbeitingu
– ert stundum utan við þig?
Skapið jafnara og hitakófin hurfu
Femarelle-vörurnar eru náttúruleg lausn fyrir konur sem finna fyrir einkennum vegna hormóna-
breytinga. Rannsóknir sýna að þær geta slegið á einkennin og unnið gegn beinþynningu.
Valgerður Kummer Erlingsdóttir segir Femarelle hafa hjálpað sér ótrúlega mikið og bjargað líðan sinni.
Ég er svo ánægð
með Femarelle að
ég mæli með því við allar
mínar vinkonur og ég
veit að nokkrar eru að
nota það líka. Femarelle
hefur hjálpað mér alveg
ótrúlega mikið.
Breytingaskeiðið er eitthvað sem engin kona sleppur við. Einkennin geta verið afar
mismunandi en sumar konur
sleppa nokkuð vel og finna lítið
fyrir breytingunum.
Hvað er breytingaskeið?
Breytingaskeiðið hefst þegar
eggjastokkar konunnar draga úr
framleiðslu á kvenhormónum og
hætta því að lokum. Þetta hefst
oftast þegar konur eru á bilinu
45-52 ára en þó eru mörg dæmi
þess að þetta ferli byrji fyrr og
jafnvel síðar. Á þessu skeiði kemst
ójafnvægi á hormónana, sem getur
lýst sér á margvíslegan máta, en
þetta eru einkenni eins og:
n Fyrirtíðaspenna
n Óreglulegar blæðingar
n Hitakóf og nætursviti
n Svefntruflanir
n Skapsveiflur
n Þurr húð og minni teygjanleiki
n Minni orka, þreyta og slen
n Pirringur
n Aukinn hjartsláttur
n Höfuðverkur
n Minni kynlöngun
n Kvíði og sorgartilfinning
Líður svo miklu betur!
Valgerður Kummer Erlingsdóttir
er ein af fjölmörgum konum sem
nota Femarelle og hennar saga er
svona: „Það var þannig hjá mér
að ég var farin að svitna mikið
yfir daginn og var oft með skap-
sveiflur, jafnvel að ástæðulausu.
Ég var ekki sátt við þessa þróun og
fékk hormónatöflur hjá lækn-
inum, en var aldrei róleg yfir að
nota þær. Ég ákvað því að prófa að
skipta þeim út fyrir Femarelle og
mér líður svo miklu betur en áður
og jafnvel betur en þegar ég notaði
hormónana. Ég er svo ánægð með
Femarelle að ég mæli með því við
allar mínar vinkonur og ég veit
að nokkrar eru að nota það líka.
Femarelle hefur hjálpað mér alveg
ótrúlega mikið og bjargað líðan
minni.“
Hormónar og beinþynning
Beinþynning í tengslum við
tíðahvörf leiða í mörgum til-
fellum af sér beinbrot og er það
talin alvarleg ógn í vestrænum
þjóðfélögum þar sem meðalaldur
fer sífellt hækkandi. Fyrstu tvo
áratugi ævinnar byggjum við upp
beinin okkar og upp úr 30 ára
aldri fer smám saman að draga úr
beinþéttninni. Vegna minnkandi
estrogenframleiðslu hjá konum,
eru þær mun útsettari fyrir bein-
þynningu heldur en karlar. Helsta
innihaldsefnið í Femarelle kallast
DT56a en þetta er efnasamband
unnið úr óerfðabreyttu soja og
viðurkenndar rannsóknir sýna
að það örvar estrógennema í
staðbundnum vef, slær á einkenni
tíðahvarfa og eykur beinþéttni,
án þess að hafa nokkur nei-
kvæð áhrif á vef í móðurlífi eða
brjóstum.
Fyrir konur frá 30 ára aldri
Femarelle hefur aðstoðað margar
konur sem finna fyrir einkennum
breytingaskeiðs. Flestar eru sam-
mála því að þær finna minna fyrir
hitakófum, hafi jafnara skap, fái
betri svefn ásamt því að finna mun
á húð og hári.
Femarelle-vörurnar eru fáan-
legar í þremur gerðum sem henta
konum á mismunandi stigum
tíðahvarfa, en þau hefjast yfirleitt
upp úr þrítugu þó svo að einkenna
verði ekki vart strax.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 1 . J Ú L Í 2 0 2 0