Fréttablaðið - 01.07.2020, Síða 22

Fréttablaðið - 01.07.2020, Síða 22
MARKAÐURINN ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is Tvö d ót t u r f élö g A r c t ic Adventures munu sækja um greiðsluskjól hjá Héraðs- dómi Reykjavíkur í dag. Það er í samræmi við lög um tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endur- skipulagningar, sem Alþingi sam- þykkti um miðjan júní. Þetta staðfestir Styrmir Þór Bragason, forstjóri Arctic Adventures, í sam- tali við Markaðinn. Um er að ræða rekstrarfélagið Straumhvarf og Adventures Hotel Hof, sem rekur gistingu í Öræfum. „Við hyggjumst sækja um þessi úrræði í ljósi algers tekjufalls vegna COVID-19,“ segir Styrmir Þór. „Þetta úrræði ríkisstjórnar- innar gefur okkur færi á að end- urskipuleggja reksturinn í takt við nýjan raunveruleika. Eins og allir þekkja hefur ferðaþjónustan og f leiri atvinnugreinar þurft að horfa upp á algert tekjuleysi eftir að kórónaveiran blossaði upp. Blessunarlega hefur staðan í ferða- mennsku farið batnandi á undan- förnum vikum. Við munum nota greiðsluskjólið til að semja við kröfuhafa og leigusala. Auk þess þarf að ræða við lánastofnanir og hluthafa um hver fjárþörf félag- anna verður á næstu misserum,“ segir hann. Aðspurður hvort um sé að ræða háar fjárhæðir í greiðsluskjólinu, segir Styrmir Þór að félögin séu „tiltölulega skuldlétt,“ miðað við umfang. Vaxtaberandi skuldir Straumhvarfs séu um sjö hundruð milljónir króna, en bókfært virði fastafjármuna um 2,5 milljarðar króna. „Við erum að glíma við sjóðstreymisvanda, en ekki eigin- fjárvanda,“ segir hann. Styrmir Þór segir að móður- félagið hafi ekki nýtt sér úrræðið, því það sé skuldlaust. Arctic Adventures eigi f leiri dótturfélög sem hafi ekki nýtt sér greiðslu- skjól. Má þar nefna til dæmis Into the Glacier, sem býður upp á ferðir inn í ísgöngin í Langjökli. Þá á fyrirtækið eignarhlut í Lava Tunnel, sem býður upp á ferðir inn í Raufarhólshelli. Icelandic Tourism Fund, sem er í rekstri Landsbréfa, er stærsti hluthafi Arctic Adventures, með ríf lega tuttugu prósenta hlut. Félagið Wings Capital, sem er meðal annars í eigu Davíðs Más- sonar og Halldórs Hafsteinssonar, er næststærsti hluthafinn, með 17,5 prósenta hlut og framtaks- sjóðurinn Freyja, sem er í rekstri Kviku, sá þriðji stærsti með 15,8 prósent. Sjóðurinn keypti hlutinn við upphaf árs. Bakkagrandi, félag Styrmis Þórs, á tíu prósenta hlut í ferðaþjónustufyrirtækinu. – hvj Félög Arctic Adventures sækja um greiðsluskjól Styrmir Þór Bragason, for- stjóri Arctic Adventures – MEÐ ÞÉR Í SUMAR Þú getur ávallt lesið blað dagsins á frettabladid.is og í Fréttablaðsappinu, hvar sem þú ert í sumar FRÉTTABLAÐIÐ MEÐ Í FERÐALAGIÐ! Æðstu stjórnendur Kviku banka og TM hafa á undan-förnum vikum átt í v iðræðum um mögulega sameiningu félaganna, samkvæmt öruggum heimildum Markaðarins. Rætt hefur verið um helstu skilmála slíkra viðskipta, nú síðast um liðna helgi, en ekki hefur enn náðst samkomulag um undir- ritun viljayfirlýsingar um að hefja formlegar sameiningarviðræður. Samanlagt markaðsvirði félaganna, sem eru bæði skráð í Kauphöllina, er í dag um 45 milljarðar króna. Eru viðræðurnar, sem eiga sér nokkurn aðdraganda, sagðar vera tímabundið á ís eins og sakir standa, að sögn þeirra sem þekkja vel til stöðu mála. Á meðal þess sem þær hafa einkum strandað á fram til þessa, eru ólíkar hugmyndir um á hvaða verði félögin yrðu metin við sameiningu. Markaðsvirði Kviku banka er um 19 milljarðar, á meðan TM er nú metið á liðlega 26 milljarða króna. Í viðræðunum hefur verið lagt upp með, verði af sameiningu félaganna, að viðskiptin færu fram með skiptum á hlutabréfum, frekar en greiðslu reiðufjár, samkvæmt heimildum Markaðarins. Stjórnendur TM og Kviku hafa í viðræðunum horft til þess að sam- legðaráhrifin af mögulegri sam- einingu yrðu meðal annars þau, að hægt væri að skjóta breiðari stoðum undir tekjugrunn félaganna. Með stærra og öflugra sameinuðu félagi, sem fjárfestar kynnu að verðmeta á hærra verði á markaði, stæðu einn- ig líkur til þess að hægt yrði að ná fram lækkun fjármagnskostnaðar með betri vaxtakjörum, og sömu- leiðis væri ljóst að sparnaður fengist í rekstrarkostnaði. Starfsemi félaganna er um margt talsvert ólík. Kvika banki, sem hefur orðið til úr sameiningu fjölmargra fjármálafyrirtækja á undanförnum árum, skilgreinir sig sem sérhæfðan fjárfestingabanka, sem leggi áherslu á eignastýringu fjárfestingastarf- semi. Með kaupum TM á eignaleigu- fyrirtækinu Lykli, sem gengu í gegn í janúar á þessu ári, bættist þriðja stoðin undir starfsemi trygginga- félagsins, ásamt vátryggingarstarf- semi og fjárfestingum. Samkvæmt viðmælendum Mark- aðarins, sem þekkja vel til viðræðna félaganna að undanförnu, er ljóst að stjórnendur TM horfa einkum til þeirrar samlegðar sem myndi fást, með því að renna Lykli saman við þá bankastarfsemi sem er fyrir hendi innan Kviku banka. Yfirlýst áform TM hingað til hafa verið að sækj- ast eftir viðskiptabankaleyfi fyrir Lykil, þannig að félagið, sem hefur að stærstum hluta verið að bjóða upp á fjármögnun bíla og atvinnu- tækja, geti farið að byrja að bjóða upp á innlán. Stærstu hluthafar TM eru fjár- festingafélagið Stoðir, Lífeyrissjóður verslunarmanna, Gildi lífeyrissjóð- ur, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis- ins (LSR) og félög í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu, aðal- eigenda Ísfélagsins í Vestmanna- eyjum, en hlutur hennar er einkum í gegnum framvirka samninga hjá Íslandsbanka. Lífeyrissjóður versl- unarmanna og LSR eru sömuleiðis á meðal umsvifamestu hluthafa í Kviku banka, en stærsti einkafjár- festirinn í eigendahópi bankans, með tæplega 6,8 prósenta hlut, er eignarhaldsfélagið SNV í eigu Svan- hildar Nönnu Vigfúsdóttur, en hún var um árabil einn stærsti hluthafi og stjórnarformaður VÍS. Náin tengsl eru á milli margra stjórnenda og helstu hluthafa félag- anna. Þannig eru Stoðir, stærsti hluthafi TM með 11,7 prósenta hlut, hluthafar í breska fasteigna- lánafélaginu Ortus Secured Fin- ance ásamt Kviku banka. Stoðir eru meðal annars í eigu félaga á vegum Jóns Sigurðssonar, stjórnar- formanns Stoða, Einars Arnar Ólafssonar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs og stjórnarmanns í TM, og Örvars Kjærnested, fjárfestis og stjórnarformanns TM. Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, og Ármann Þorvaldsson, aðstoðar- bankastjóri Kviku banka, sögðust ekki geta tjáð sig um málið í samtali við Markaðinn. Hagnaður TM á árinu 2019 nam 1.866 milljónum króna eftir skatta. Afkoman var drifin áfram af fjár- festingatekjum upp á 2.945 millj- ónir króna, sem jafngilti rúmlega 10 prósenta ávöxtun á eignasafn félags- ins, á meðan framlegð af vátrygg- ingastarfsemi var neikvæð um 308 milljónir á árinu. Hagnaður Kviku banka, sem var með heildareignir í stýringu að fjárhæð 426 milljarða króna í árslok 2019, var hins vegar 2.660 milljónir eftir skatta í fyrra og var arðsemi bankans á eigin á fé um 21 prósent. hordur@frettabladid.is Stjórnendur TM og Kviku ræða sameiningu  Ekki hefur enn náðst samkomulag um helstu skilmála, en stjórnendur félag- anna hafa á síðustu vikum reynt að ná saman um sameiningu. Viðræðurnar eru núna sagðar vera á ís tímabundið. Telja að hægt yrði ná fram töluverðri samlegð.    Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, en tryggingafélagið gekk frá kaupum á eignaleigufyrirtækinu Lykli í byrjun þessa árs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 45 milljarðar er samanlagt markaðsvirði TM og Kviku í Félagið Stakksberg, sem heldur utan um rekstur kísilmálm-verksmiðjunnar United Silicon, tapaði samtals tæplega 37 millj- ónum evra á síðasta ári, jafnvirði um 5,7 milljarða íslenskra króna, borið saman við 5,4 milljóna evra tap á árinu 2018. Bókfært eigið fé félagsins, sem er í eigu Arion banka, var neikvætt um rúmlega 39 milljónir evra í árslok 2019, að því er fram kemur í nýjum ársreikningi sem var samþykktur á aðalfundi Stakksbergs í júní. Tap félagsins kemur til vegna niðurfærslu á varanlegum fastafjármunum – fast- eignum, lóðum, vélum og tækjum – að fjárhæð samtals um 29 milljónum evra. Verksmiðjan var fyrst ræst haustið 2016, en Umhverfisstofnun stöðvaði starfsemina um ári síðar, sökum mengunar. Fram hefur komið að talið sé að endurbætur á verksmiðjunni muni kosta um 4,5 milljarða. Viðskiptamódel Stakksbergs byggir á því að verksmiðja félagsins verði starfhæf á fjórða ársfjórðungi 2022. Veruleg óvissa sé hins vegar um framtíðarhorfur og fjármögnun vegna verksmiðjunnar. Miðað við samning sem félagið gerði við Landsvirkjun í júní 2018, um kaup á raforku til reksturs ljós- bogaofns, áttu föst raforkukaup að hefjast þann 1. október 2020. Til tryggingar skuldbindingum sínum er Stakksberg með bankatrygg- ingu frá Arion banka, að fjárhæð 9 milljónir Bandaríkjadala. Í raforku- samningnum er kveðið á um heimild á tilteknu tímabili til að kaupa sig frá samningnum. Fram kemur í skýringu með árs- reikningnum, að félagið hafi frá fyrra hluta árs 2019 átt í viðræðum við Landsvirkjun um breytingar á raforkusamningnum, vegna endur- skoðaðrar áætlunar um hvenær starf- semin geti hafist að nýju eftir endur- bætur. Fyrir liggi drög að uppfærðum raforkusamningi og er stefnt að því að ljúka honum á seinni hluta þessa árs. – hae Stakksberg tapaði um 6 milljörðum  39 milljónum evra, nemur nei- kvætt eigið fé félagsins. 700 milljónum króna, nema vaxtaberandi skuldir Straumhvarfs, dótturfélags ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures. 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.