Fréttablaðið - 01.07.2020, Blaðsíða 26
Það gæti komið til
kostnaðarhagræði
vegna minni eiginfjárbind-
ingar eða hagkvæmari
fjármögnunar, en það er
ekki í hendi eins og staðan
er í dag.
Jón Guðni
Ómarsson, fram-
kvæmdastjóri
fjármálasviðs
Íslandsbanka
Græn fjármögnun
er ekki endilega á
hagstæðari kjörum en líkleg
til að opna á aðgengi að
nýjum fjár-
festum.
Benedikt Gísla-
son, bankastjóri
Arion banka
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Haustpróf í
verðbréfa
viðskiptum 2020
Prófnefnd verðbréfaviðskipta stendur fyrir haustprófum í verðbréfavið-
skiptum sem hér segir:
Próf úr I. hluta
24. ágúst 2020 Íslensk réttarskipun og Evrópuréttur, fræðikerfi
lögfræðinnar. Ágrip úr réttarfari.
25. ágúst 2020 Viðfangsefni úr fjármunarétti, félagaréttur, ábyrgðir.
26. ágúst 2020 Viðskiptabréfareglur, veðréttindi, þinglýsingar.
Próf úr II. hluta
31. ágúst 2020 Grunnatriði í fjármálafræðum.
1. september 2020 Grunnatriði í þjóðhagfræði.
2. september 2020 Greining ársreikninga.
Próf úr III. hluta
7. september 2020 Lög og reglur á fjármálamarkaði.
8. september 2020 Viðskiptahættir.
9. september 2020 Verðbréf, afleiður og gjaldeyrir.
10. september 2020 Fjárfestingarferli.
Próftími er fjórar klukkustundir og hefst hvert próf kl: 16:00.
Prófsefni er tilgreint í prófsefnislýsingu prófnefndar verðbréfavið-
skipta. Í henni er jafnframt útlistað hvaða hjálpargögn eru leyfileg í
einstaka prófum. Prófsefnislýsinguna má nálgast á vefsíðu prófnefndar
verðbréfaviðskipta:
https://
www.stjornarradid.is/raduneyti/nefndir/profnefnd-verdbrefavidskipta/
Um prófin fer samkvæmt reglugerð um próf í verðbréfaviðskiptum,
nr. 633/2003, með síðari breytingum.
Einkunnir í einstökum prófum eru gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0
til 10. Til þess að standast verðbréfaviðskiptapróf þarf próftaki að hljóta
a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn úr þeim prófum sem hann hefur þreytt. Próf-
taki telst ekki hafa staðist einstök próf hljóti hann lægri einkunn en 5,0.
Skráning í haustprófin fer fram á vefsíðu Opna háskólans í HR:
http://www.ru.is/opnihaskolinn/prof-i-verdbrefavidskiptum/
Prófgjald er kr. 23.000 fyrir hvert próf. Vakin er athygli á að prófin
verða haldin, í þetta skiptið, óháð þátttöku. Prófin fara fram í húsa-
kynnum Háskólans í Reykjavík, framkvæmdaraðila verðbréfaviðskipta-
prófs veturinn 2019-2020. Próftakar verða að hafa skráð sig og greitt
prófgjald minnst tíu dögum fyrir sérhvert próf.
Næsta vetur mun ganga í gildi nýtt fyrirkomulag prófs í verðbréfavið-
skiptum. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu prófnefndar verð-
bréfaviðskipta.
Reykjavík, 1. júlí 2020.
Prófnefnd verðbréfaviðskipta
Arion banki og Íslands-banki vinna að því að auka hlut grænna lána í lánasöfnum sínum, bæði með nýjum lánum og með
því að endurfjármagna lán sem nú
þegar uppfylla alþjóðlega staðla um
græn lán. Frumúttekt Arion banka
sýnir að hátt í 30 prósent af núver-
andi lánum til stærri fyrirtækja geti
f lokkast sem græn lán. Þau gætu
komið til lækkunar á eiginfjárauk-
um bankanna ef hugmyndir þess
efnis ná fram að ganga innan Evr-
ópusambandsins og opnað aðgengi
að nýjum fjárfestum.
„Það gæti komið til kostnaðar-
hagræðis vegna minni eiginfjár-
bindingar eða hagkvæmari fjár-
mögnunar, en það er ekki í hendi
eins og staðan er í dag,“ segir Jón
Guðni Ómarsson, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs Íslandsbanka.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur haft til skoðunar um
nokkurt skeið að slaka á eiginfjár-
kröfum sem eru gerðar til banka í
því skyni að hvetja til grænna fjár-
festinga í Evrópu. Unnur Gunnars-
dóttir, varaseðlabankastjóri fjár-
málaeftirlits Seðlabanka Íslands,
kom inn á þessi áform í nýlegu
viðtali við Markaðinn þar sem hún
sagði að í framtíðinni væri áætlað
að umhverfis- og samfélagsþættir
yrðu hafðir til hliðsjónar í árlegu
innra mati á eiginfjárþörf fjármála-
fyrirtækja.
Ergo, bílafjármögnun Íslands-
banka, tilkynnti um sérkjör við
fjármögnun vistvænna bifreiða
um miðjan júní en gefinn er 0,75
Bankarnir byggja upp græn lánasöfn
Íslenskir bankar vinna að því að byggja upp græn lánasöfn. Gæti komið til lækkunar á eiginfjáraukum í framtíðinni og opnað að
gengi að nýjum fjárfestum. Frumúttekt Arion banka sýnir að hátt í 30 prósent af lánum til stærri fyrirtækja geti flokkast sem græn.
Bankar gætu umpakkað núverandi lánum til íslenskra orkufyrirtækja þannig að þau verði græn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
prósentustiga afsláttur frá gildandi
verðskrá. Fram kom í tilkynning-
unni að það væri „eindreginn vilji
að auka hlut slíkrar fjármögnunar
í lánasafninu“.
Jón Guðni segir að bankinn sé að
móta heildstæða stefnu í grænni og
sjálf bærri fjármögnun í samræmi
við sjálf bærnistefnu bankans sem
var samþykkt í lok síðasta árs.
Grænu lán Ergo séu eitt af fyrstu
skrefunum og líklegt sé að bankinn
muni kynna f leiri sjálf bærar fjár-
málaafurðir á þessu ári.
„Við erum að kortleggja hversu
stór hluti af núverandi lánum telst
vera sjálfbær og hvernig við munum
halda utan um slík lán. Það getur
verið kerfislega f lókið enda þarf
að setja ákveðin skilyrði og hafa
eftirlit með að þau séu uppfyllt til
þess að lánin falli í þennan flokk. Í
framhaldinu getum við sett okkur
markmið um hlutdeild sjálf bærra
lána í safninu,“ segir Jón Guðni.
Bilið breikkar
Íslandsbanki stefnir að því að fjár-
magna sig með grænni fjármögnun
til lengri tíma og horfir meðal ann-
ars til grænna skuldabréfa á erlend-
um mörkuðum og grænna innlána.
Jón Guðni segir að Íslands-
banki sé ekki að bjóða betri kjör á
grænum bílalánum vegna þess að
þeim fylgi kostnaðarhagræði fyrir
bankann heldur telji stjórnendur
bankans það vera mikilvægan hluta
af sjálf bærnivegferð hans.
„Það á síðan eftir að skýrast
hvort f leiri tækifæri muni fylgja
þessu. Annars vegar hvort það
verði lægri kostnaður við eigið fé
og hins vegar hvort við fáum betri
kjör með grænni fjármögnun,“ segir
Jón Guðni. Munurinn á kjörum á
grænni fjármögnun og venjulegri
fjármögnun hafi verið lítill hingað
til, um 10 til 20 punktar, en fari
vaxandi í takt við aukinn áhuga
fjárfesta.
Fasteignalán helsta álitaefnið
Arion banki horfir einnig til þess að
auka hlut grænna lánveitinga í sínu
lánasafni og sækja sér græna fjár-
mögnun. Arion varð í síðustu viku
fyrstur íslenskra banka til þess að
bjóða viðskiptavinum að leggja
sparnað sinn inn á græna innláns-
reikninga en til að byrja með verður
innlánunum miðlað í lán til kaupa
á bílum sem nýta umhverfisvæna
orkugjafa.
„Markmiðið er að auka hlut
grænna verkefna í lánasafni bank-
ans, en fyrst þarf að skilgreina
hvað telst grænt og hvað ekki. Það
er vinna sem við höfum lokið hvað
varðar lánasafn bankans til stærri
fyrirtækja,“ segir Benedikt Gísla-
son, bankastjóri Arion banka.
Það er f lóknara verkefni en ætla
mætti í fyrstu, að sögn Benedikts,
þar sem ólíkar skoðanir eru á því
hvað telst raunverulega grænt.
Víða erlendis er hins vegar hægt að
finna ramma eða umgjarðir um lán-
veitingar, fjármögnun og atvinnu-
starfsemi sem hægt er að styðjast
við þegar meta á hve græn tiltekin
verkefni eða starfsemi er.
Evrópusambandið hefur til að
mynda unnið skilgreiningar fyrir
ólíka atvinnustarfsemi þar sem
útlistuð eru skilyrði fyrir því hvað
getur talist grænt. Þó hefur ýmis
atvinnustarfsemi enn ekki verið
skilgreind, til dæmis sjávarútvegur,
sem hefur töluvert vægi hérlendis.
„Frumúttekt okkar á lánasafni
bankans til stærri fyrirtækja sýnir
að að minnsta kosti 20-30 prósent
af því lánasafni flokkast græn. Þessi
úttekt var unnin með helstu sér-
fræðingum í grænni fjármögnun,“
segir Benedikt en helsta álitaefnið
snýr að fasteignafjármögnun sem
er mjög stór hluti lánasafns Arion
banka. Hann segir að þar sé ein-
faldlega skortur á upplýsingum og
viðmiðum hér á landi.
„Við gætum horft til þess að
íslenskar fasteignir eru nánast
undantekningarlaust hitaðar á
umhverfisvænan máta og einangr-
aðar til að spara orku, en við viljum
sjá hvert leiðin liggur í setningu
markmiða og viðmiða,“ segir Bene-
dikt.
Tjalda ekki til einnar nætur
Arion banki hefur ekki sett sér
markmið varðandi hlutfall grænna
lána í lánasafni sínu en það er næsta
skref. Þá segir Benedikt að bankinn
muni sækja sér græna fjármögnun
þegar aðstæður eru réttar og grein-
ing á lánasafninu sé mikilvæg for-
senda þess.
„Það þarf að liggja fyrir hvað skal
fjármagna grænt, hvort sem það eru
ný verkefni eða endurfjármögnun
eldri verkefna sem eru þegar hluti af
lánasafni okkar. Græn fjármögnun
er ekki endilega á hagstæðari kjör-
um en líkleg til að opna á aðgengi að
nýjum fjárfestum sem vilja fjárfesta
í grænum verkefnum og það er eitt
af því sem gerir hana eftirsóknar-
verða,“ segir Benedikt.
Spurður um fjárhagslega ávinn-
inginn fyrir Arion banka segist
Benedikt hafa trú á því að lang-
tímaávinningur af grænum lánum
og grænni fjármögnun muni skila
sér smám saman.
„Við erum þarna ekki að tjalda til
einnar nætur heldur horfa til fram-
tíðar. Þá tel ég að græn verkefni séu
almennt góð fjárfesting og séu alla
jafna áhættuminni þegar til lengri
tíma er litið,“ segir hann.
„Það væri vissulega jákvætt skref
ef, í framtíðinni, grænar lánveiting-
ar leiddu til lægri eiginfjárkrafna en
það er í raun ekki það sem drífur
okkur áfram. Við teljum þetta
rétt skref að taka og sjáum einn-
ig tækifæri í því að laða að okkur
nýja viðskiptavini sem er annt um
umhverfið.“
1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN