Fréttablaðið - 01.07.2020, Qupperneq 37
Tækin gefa öll frá
sér viðvörun í
formi blikkljóss og
titrings. Blikkljósin eru
mismunandi á litinn
eftir því hvaða hljóðið
kemur.
Jenile-tækin virka þannig að til dæmis þegar gestur kemur í heimsókn og ýtir á dyrabjöllu
– þá sendir dyrabjallan strax við-
vörun í blikkljósakubbinn, blikk-
ljósainnstunguna, titrarapúðann
og/eða vasasnertititrara-tækið.
Eins senda tækin frá sér blikkljós
og/eða titring ef þau nema barns-
grát, þegar síminn hringir eða
reykskynjarinn vælir, svo dæmi
séu nefnd.
„Það er ekki hægt að velta öllu
á heyrnartækin sjálf, eðlileg við-
vörun til fólks sem ekki heyrir í
einhverju er ljós og titringur,“ segir
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
starfsmaður Leó ehf. sem er með
umboð fyrir Jenile á Íslandi.
„Sumir segja að heyrnartækin
séu svar við öllu og hjálpi notend-
unum að heyra allt, en það kemur
sú stund að þá langar til að fá hvíld
frá heyrnartækjum heima við. Þá
eru Jenile-tækin góð. Þau eru líka
góð til að friðhelgi einstaklings
með heyrnarskerðingu sé virt.
Hann hefur tæknina til þess að
„heyra“ á sínum forsendum.“
Dæmi um það sem notandinn
vill heyra í:
n Dyrabjalla
n Vekjaraklukka
n Reykskynjari
n Barn að gráta/kalla
n Þegar fjölskyldumeðlimur kallar
n Símhringing
n Sms-skilaboð
n Tilkynning frá samfélagsmiðli
Til að geta vitað hvenær þessi
tæki gefa frá sér hljóð þarf notand-
inn að hafa:
n Tæki til að nema hljóð frá dyra-
símahátalara inni í íbúðinni
n Dyrabjöllu við hurðina á gang-
inum/sérinngangi (vatnsheld)
n Vekjaraklukkupakkann (hægt að
nota til að ferðast með og hafa
heima)
n Grænan titrarapúða
n Reykskynjara
n Trúðinn til að nema barnsgrát
n Kalla kallhnapp (fyrir fjölskyldu-
meðlim til að kalla á þann
heyrnarskerta)
n Símatækið – SMS blikkara
n Blikkljósainnstungu
n Blikkljóskubbinn
n Vasasnertititrara og hleðslutæki
n Hleðsluinnstungu fyrir tvö tæki
Sigurlín Margrét segir að öll
tækin séu þráðlaus og láti lítið
fyrir sér fara í íbúðinni.
Tækin senda frá sér
mismunandi lituð ljós
„Þegar sá sem á við heyrnarmein
að etja er með barn á heimilinu er
trúðurinn staðsettur hjá barninu.
Oft er hann hengdur upp við
rúmið eða festur við rúmgaflinn.
Trúðurinn nemur barnsgrát og
sendir viðvörun til tækjanna. Til
dæmis til vasasnertititrarans,
í blikkljósinnstunguna, eða í
titrarapúðann. Þegar foreldrarnir
sofa titrar púðinn ef barnið grætur
og þau vakna við það,“ útskýrir
Sigurlín Margrét.
„Seinna þegar barnið eldist þá
venst það þessu og fer sjálfkrafa að
fatta hvað trúðurinn gerir. Þá getur
barnið um 1-2 ára aldur farið sjálft
að ýta á trúðinn og mamma, pabbi,
barnapössunin eða systkini sem
ekki heyra koma til þess.“
Jenile-aðgengistækin eru líka
hönnuð með það í huga að börn
sem eiga við hvers konar heyrnar-
skerðingu að etja geti fylgst með
Aðgengi að hljóði með Jenile
Heyrnarskerðing er lítið mál með Jenile-aðgengistækjum að hljóði. Tækjunum er ætlað að veita
fólki sem á við heyrnarmein að etja aðgengi að hljóðinu í nánasta umhverfi sínu dagsdaglega.
Jenile-tækin eru ný á Íslandi en þau senda viðvörun til notenda í formi blikkljósa eða titrings.
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir og Magnús Sverrisson eigandi Leó ehf. Á milli þeirra sést Jenile-blikkljósainnstungan blikka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hefðbundinn Jenile-heimilispakki og reykskynjari að auki.
Barnavaktarpakkinn, heimilispakkinn auk einstakra aðgengistækja.
þeim hljóðum sem almennt heyr-
ast á heimili þess og látið heyrandi
fjölskyldumeðlimi vita af þeim.
„Döff börn eiga fullan rétt á að
vita af þessum „heimilishljóðum“.
það ýtir undir sjálfstæði þeirra
og þau finna fyrir öryggistilfinn-
ingu á heimilinu,“ segir Sigurlín
Margrét.
„Tækin gefa öll frá sér viðvörun í
formi blikkljóss og titrings. Blikk-
ljósin eru mismunandi á litinn
eftir því hvaðan hljóðið kemur.
Grænt er fyrir dyrabjöllu. Blátt er
fyrir barnsgrát, kallhnappinn og
hreyfiskynjarann, rautt er fyrir
reykskynjarann og fjólublátt
fyrir sms-blikkarann sem gefur
viðvörun þegar síminn hringir
eða þegar skilaboð frá samfélags-
miðlum berast í símann.“
Tækin hafa bjargað
mannslífum
„Það hefur komið fyrir að Kalli
kallhnappurinn hafi bjargað
mannslífum. Það er ekki mjög
langt síðan frönsk hjón sem bæði
heyra illa og ekkert án heyrnar-
tækja voru sofandi. Konan vaknar
um nótt og þarf á baðherbergið
sem er niðri. Það vill svo illa til að
hún misstígur sig í þrepunum og
fellur niður stigann. Hún gat ekki
með neinu móti látið vita af sér en
þau voru ein í húsinu. Ef hún hefði
haft kallhnappinn á sér þá hefði
maðurinn hennar strax vaknað og
náð í hjálp. En í þessu tilfelli beið
konan lengi eftir hjálp á gólfinu
með lærbrot,“ segir Sigurlín Mar-
grét.
„Kalli-kallhnappurinn gefur
öryggi innan heimilisins. Þegar
notandi er með kallhnapp eða
bregst við viðvörun frá kallhnappi
er hann meðvitaður um sína
ábyrgð sem sjálfstæður einstakl-
ingur og er ekki upp á aðra kominn
með að hjálpa honum að heyra.
Það er pirrandi fyrir fólk sem ekki
heyrir að vera sífellt minnt á að
heyra ekki – Jenile-aðgengistækin
gera fólki með heyrnarskerðingu
eða þeim sem eiga við heyrnar-
mein að etja kleift að standa sína
plikt og gera það á sínum for-
sendum.“
Fólk með heyrnarmein getur
snúið sér til Heyrnar- og talmeina-
stöðvar Íslands vegna kaupa á
hjálparbúnaði eins og til dæmis
Jenile. Þeim sem eiga rétt á niður-
greiðslu eða vilja kanna rétt sinn er
bent á að hafa samband við starfs-
fólk Heyrnar- og talmeinastöðvar
Íslands í gegnum netfangið hti@
hti.is.
Nánari upplýsingar um Jenile-
tækin má finna á vefsíðunni
jenile. is, á Instagram undir nafn-
inu jenile_island og á Facebook
undir Jenile Ísland. Einnig má
senda póst á info@jenile.is.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 M I ÐV I KU DAG U R 1 . J Ú L Í 2 0 2 0