Fréttablaðið - 01.07.2020, Qupperneq 38
Lúsmýið virðist
dafna best í efri
sveitum en á erfiðara
uppdráttar við sjó þar
sem er vindasamara.
Þéttvaxinn garðagróður
í byggð skapar skjól og
hagstæð lífsskilyrði fyrir
lúsmý.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
B itvargurinn reyndist vera agnarsmátt lúsmý, nánar tiltekið (Culicoides recondi-
tus). Vakti það mikla furðu því alla
jafna var lúsmý hér á landi ekki
þekkt fyrir að sjúga blóð. Mögu-
legt er að breytingar á veðurfari
hafið orðið þess valdandi að
lúsmýið, sem var hér fyrir, hafi náð
yfir ákveðinn þröskuld og aldeilis
komist í feitt.
Flugtími lúsmýsins er frá því
snemma í júní til loka ágúst. Það
er hvergi aufúsugestur, enda skað-
valdur mikill því þessi tiltekna
tegund er blóðsuga á mönnum og
öðrum spendýrum. Samkvæmt
Náttúrufræðistofnun þarf kven-
dýrið blóð til að þroska egg sín en
annars eru lífshættir tegundar-
innar nánast óþekktir.
Bólur og útbrot með tilheyrandi
óbærilegum kláða koma fram
stuttu eftir bit og geta staðið yfir í
nokkra daga. Gott er að kæla bólg-
in svæði í um tíu mínútur. Einnig
getur það dregið úr bólgumyndun
að hafa hærra undir höndum og
fótum ef bit eru þar. Ráðlegt er svo
að bera kælikrem eða þunnt lag
Varnir gegn nýjum skaðvaldi
Í lok júní árið 2015 bar á óvæntum bitvargi í Hvalfjarðarsveit. Fram til þessa voru einu þekktu
blóðsugurnar hér á landi bitmý, flær, hárlús og veggjalýs, en hér var nú mættur nýr skaðvaldur.
Sumir verða illa bitnir af lúsmýinu og einkennin geta varað í nokkra daga.
af sterakremi á húðina, ef kláðinn
er óbærilegur, og jafnvel taka inn
ofnæmislyf.
Þolir ekki rokið
Lúsmýið umrædda hefur verið
viðloðandi suma landshluta
fremur en aðra, og má þar nefna
Suðurlandið og upp í Borgarfjörð
sem og austur í Fljótshlíð. Lúsmýið
virðist dafna best í efri sveitum en
á erfiðara uppdráttar við sjó þar
sem er vindasamara. Þéttvaxinn
garðagróður í byggð skapar skjól
og hagstæð lífsskilyrði fyrir lúsmý.
Hvað er til ráða?
Lúsmý leggst helst á fólk í svefni
og sækir inn um opna glugga á
kvöldin og nóttunni. Þá skynjar
f lugan koltvísýring frá útöndun
fólks og staðsetur þannig blóð-
gjafa sinn. Líkamshlutar sem
standa berir út undan sængum
gefa sóknarfæri og því er ráðlegt að
sofa í náttfötum og sokkum. Bux-
urnar eru þá girtar ofan í sokkana
og skyrtan ofan í buxnastrenginn.
Best er ef ermarnar eru þröngar.
Skordýravörn sem sett er á húð
og föt getur hjálpað. Vörn sem
inniheldur 50 prósent DEET (diet-
hyltoluamide) er áhrifaríkust.
Fyrir börn má skordýravörn þó
ekki innihalda meira en 10 prósent
af DEET.
Til að verjast lúsmýi enn frekar
er ráðlegt að hafa glugga lokaða.
Einnig má líma mjög fínriðið
gardínuefni fyrir opnanleg fög á
f lugtíma mýsins. Vifta sem heldur
lofti á hreyfingu í svefnherbergi
kann að hjálpa sem og vifta sem
blæs út á móti opnum gluggum.
Þegar það eru góðir sumardag-ar langar mann oft í eitthvað létt og sumarlegt. Hér koma
nokkrar hugmyndir. Þetta eru
hollir réttir sem flestir geta gert á
f ljótlegan hátt.
Salat frá
Mið-Austurlöndum
Þetta salat á ættir að rekja til Mið-
Austurlanda og kallast Fattoush-
salat en agúrka og radísur setja
svip sinn á það. Salatið þykir mjög
gott með grillmat en uppskriftin
miðast við tvo. Það eru fáar
hitaeiningar í þessu salati og þess
vegna er óhætt að borða vel af því.
100 g romain-salat
50 g fetaostur
5 litlar agúrkur
5 radísur
5 kirsuberjatómatar
½ rauðlaukur
1 tortilla-kaka
Dressing
2 msk. ólífuolía
2 msk. granateplasafi
Safi úr hálfri sítrónu
2 stór hvítlauksrif
1 msk. fersk minta, smátt skorin
1 tsk. sumac-krydd
Salt og pipar
Hitið ofninn í 180°C og klippið
tortilla-kökuna niður í litla þrí-
hyrninga. Leggið á bökunarpappír
á ofnplötu og penslið bitana með
olíu. Bakið í ofni í 4-5 mínútur eða
þar til bitarnir verða stökkir.
Setjið salatið á disk, skerið niður
tómatana, laukinn og radísur.
Sáldrið fetaostinum yfir. Þá er tor-
tilla-bitunum dreift yfir.
Blandið vel öllu því sem á að fara
í dressinguna og hellið yfir salatið.
Hollusta á diskinn
Fattoush-salat
á ættir sínar að
rekja til Mið-
Austurlanda.
Hollt kartöflusalat
Það þarf ekki að vera majónes
í kartöflusalati. Hér er hollt og
gott kartöflusalat sem passar vel
bæði með grilluðum mat eða bara
soðnum eða steiktum fiski. Upp-
skriftin ætti að duga fyrir fjóra.
½ kg nýjar soðnar kartöflur
1 poki klettasalat
1 pakki kirsuberjatómatar
1 búnt radísur
3 vorlaukar
Dressing
3 skalottlaukar, smátt skornir
1 búnt vorlaukar, smátt skornir
3 msk. ólífuolía
2 msk. vatn
1 msk. sítrónusafi
Salt og pipar
Sjóðið kartöflur í léttsöltuðu vatni.
Kælið. Skerið allt grænmetið niður
og setjið í skál ásamt kartöflunum.
Hrærið allt varlega saman. Blandið
dressingunni saman við.
Taco með grænmeti
Væri ekki ágætt að taka sér kjöt-
lausan dag og borða taco eingöngu
með grænmeti? Hér er uppskrift að
góðum rétti.
2 sætar kartöflur
2 msk. Fivespice-krydd
2 vel þroskaðar lárperur
1 límóna, safinn
1 búnt ferskt kóríander
1 þroskað mangó
1 granatepli
1 rauður chilli-pipar
Jómfrúarolía
12 litlar tortilla-kökur
Skrælið sætu kartöflurnar og
skerið í litla bita. Kryddið þá með
Fivespice-kryddinu og steikið í
olíu þar til þær verða mjúkar.
Lárperumauk
Búið til lárperumauk með því að
mauka lárperurnar með límónu-
safa og setja smávegis kóríander
með og klípu af salti.
Mangó-salsa
Skerið mangó í litla bita og setjið í
skál. Setjið granateplafræin saman
við ásamt chilli-pipar og jómfrúar-
olíu. Restin af kóríander fer síðan
saman við.
Ristið tortilla-kökurnar á þurri
pönnu. Á hverja köku er sett lár-
perumauk, sætar kartöflur og
mangó-salsa. Það er gott að setja
sultaðan rauðlauk með og smá-
vegis af sýrðum rjóma. Hafið salt og
límónubita til hliðar. Hver og einn
getur þá fengið sér eftir smekk.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R