Fréttablaðið - 21.07.2020, Blaðsíða 44
Genesis® II E-415 GBS
Verð: 208.500 kr.
Síðasta laugardagskvöld fóru fram útgáfutónleikar Emmsjé Gauta fyrir nýj-ustu plötu hans, Bleikt ský. Mögnuð stemning mynd-aðist en Gauti hafði staðið
lengi að undirbúningi tónleikanna
og breytt sviðinu í Gamla bíói til að
hafa umgjörðina sem glæsilegasta.
Gauti fékk nokkra af vinsælustu
tónlistarmönnum landsins með
sér upp á sviðið, þá Birni, Aron Can,
Króla og Flóna, en upphitunin var í
höndum þess síðastnefnda.
„Kvöldið gekk framar vonum.
Það er auðvitað smá prufutími í
gangi með að halda stóra tónleika
„post COVID“. En ég gæti ekki verið
sáttari. Ég var með svakalegt teymi
sem setti upp giggið með mér, það
þýðir ekkert að spara þegar maður
er að halda tónleika fyrir sjálfan sig,“
segir Gauti.
Næst á dagskrá hjá honum eru
tónleikar á Egilsstöðum um versl-
unarmannahelgina. „Svo er það
Innipúkinn og eftir það fer ég
norður með útgáfutónleikana. Ég
verð með þá þann 22. ágúst á Græna
hattinum,“ segir Gauti.
Miða á þá er hægt að nálgast á
tix.is.
Emmsjé Gauti
fagnaði útgáfu
Á laugardaginn fóru fram útgáfutónleikar
Emmsjé Gauta vegna nýjustu plötu kapp-
ans, sem ber nafnið Bleikt ský. Gamla bíó
troðfylltist af aðdáendum tónlistarmanns-
ins og myndaðist gríðarleg stemning.
Eitt vinsælasta lag síðasta árs, Malbik, fékk svo góðar
viðtökur að Gauti spilaði það tvisvar.
Gauti segir mikla vinnu hafa farið í að gera tónleikana
sem flottasta. MYNDIR/ÓMAR SVERRISSON
Rapp-
arinn segir
að kvöldið hafi
gengið vonum
framar.
Einstaklega
góð stemning
myndaðist á tón-
leikunum en Gauti
hafði breytt sviðinu í
Gamla bíói til að gera
tónleikana sem
flottasta.
Platan
Bleikt ský
kom út í byrjun
mánaðar og hefur
fengið góðar
viðtökur.
Þann 22.
ágúst fer
Gauti svo með
útgáfutónleika
sína norður á
Akureyri.
Tónlistar-
maðurinn Birnir
var meðal þeirra
sem steig á svið
á laugardaginn.
MYND/BERGLAUG
PETRA
2 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ