Fréttablaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 2
Veður
Austlæg átt í dag, 8-15 og rigning
SA-lands, en annars víða skúrir. Hiti
9 til 17 stig, svalast og hvassast á
Vestfjörðum. SJÁ SÍÐU 28
Grímulaus ruglingur
Eftir töluverðan rugling um sóttvarnareglur í strætó tilkynnti Strætó síðdegis í gær að farþegum yrði ekki skylt að bera grímur í strætó. Mælst var
hins vegar til þess að farþegar hefðu grímu á sér til að nota á þeim tímum þegar fjölmennast er í vögnum. Tilkynningin dugði þó ekki til að sefa
ágreining um grímunotkun og hefur málinu verið skotið til almannavarna. Gert verður út um deiluefnið á upplýsingafundi í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FERÐALÖG „Þessi hugmynd hefur
blundað í mér í smá tíma en síðustu
sumur hafa mögulegir ferðafélagar
aldrei verið lausir á sama tíma. Út
af faraldrinum voru allir klárir í ár
og þess vegna ákváðum við að kýla
á þetta,“ segir Geir Gunnarsson
meðlimur Geirfuglanna, sem luku
á dögunum því afreki að hjóla yfir
allt Ísland, horn í horn.
„Við byrjuðum á Reykjanestánni
og hjóluðum síðan á ská yfir allt
landið og enduðum yst á Langanesi.
Ég veit ekki hvort að þetta hafi verið
gert áður á hjóli og það væri áhuga
vert ef einhver getur leiðrétt okkur
með það,“ segir Geir. Ásamt honum
hjóluðu tveir bræður hans, Magnús
og Pétur Már Gunnarssynir, með
honum, sem og vinur hans Krist
ján Guðni Bjarnason sem slóst með
með í för.
„Við erum vanir hjólamenn og
höfum talsverða reynslu af útivist
og fjallgöngum. Þannig að við höfð
um góðan grunn og höfðum einnig
undirbúið okkur vel,“ segir Geir.
Alls tók leiðangurinn tólf daga
og reyndi töluvert á, eins og gefur
að skilja, enda einsettu leiðangurs
menn sér að hjóla sem minnst á til
búnum vegum, heldur frekar um
fjöll og firnindi. „Það kom okkur í
opna skjöldu að fyrsta dagleiðin á
Reykjanesinu var ein sú erfiðasta.
Við lentum í miklu roki og vorum
ansi framlágir eftir þann dag. En á
móti vorum við heppnir með veður
á hálendinu. Fyrir fram hafði maður
mestar áhyggjur af nokkrum dag
leiðum þar,“ segir Geir.
Eftir fyrsta daginn gistu þeir
heima hjá sér á höfuðborgarsvæð
inu, en það sem eftir var ferðarinnar
fylgdi þeim trússbíll. „Það var mik
ill lúxus. Bjarni Sighvatsson, faðir
Kristjáns Guðna, keyrði bílinn og
þar var nóg af vistum og búnaði
auk þess sem við gátum tekið tjöld
með.“
Ferðin gekk að mestu stóráfalla
laust þó að einstaka fall eða aumir
vöðvar og liðir hafi stundum valdið
tímabundnum vandræðum fyrir
einstaka Geirfugla. Fjórmenning
arnir luku því allir leiðangrinum
erfiða.
„ Maður var f urðu góður í
skrokknum á meðan á þessu stóð.
Þetta er gríðarlegt álag og brennsla,
en það er eins og líkaminn venjist
því f ljótt eða slökkvi á sársauka
skynjurunum,“ segir Geir. Hann
segist helst hafa fundið fyrir
verkjum í rassinum, enda talsvert
álagssvæði í langri hjólaferð, en
skellurinn hafi eiginlega komið
þegar púlinu var lokið.
„Daginn eftir, þegar ég vaknaði
upp í heitu rúmi þá var ég alveg
ónýtur. Skrokkurinn er bara f lak.
En ég vona að það jafni sig f ljótt og
vel,“ segir Geir og hlær.
bjornth@frettabladid.is
Geirfuglarnir hjóluðu
þvert yfir allt Ísland
Fjórir félagar, sem nefna sig Geirfuglana, unnu það afrek á dögunum að hjóla
þvert yfir Ísland, frá Reykjanestá og yst út á Langanes. Ferðin tók tólf daga og
gekk að mestu stórslysalaust enda vanir hjóla- og útivistarmenn á ferðinni.
Geirfuglarnir við upphaf leiðangursins á Reykjanestánni. MYND/AÐSEND
Daginn eftir, þegar
ég vaknaði upp í
heitu rúmi þá var ég alveg
ónýtur.
SAMFÉLAG Forseti Íslands, herra
Guðni Th. Jóhannesson verður
settur í embætti í annað sinn í dag,
en samkvæmt stjórnarskrá hefst
kjörtímabil forseta 1. ágúst og endar
31. júlí að fjórum árum liðnum.
Athöfnin fer fram á Alþingi
venju samkvæmt, en verður minni
í sniðum að þessu sinni en venjulega
vegna sóttvarnaráðstafana.
Þess er einnig minnst í dag að
40 ár eru liðin frá því að frú Vigdís
Finnbogadóttir var sett í embætti í
fyrsta sinn árið 1980. – aá
Forseti settur
í embætti í dag
Forsetahjónin voru hyllt á Austur-
velli árið 2016. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Akstur undir áhrifum vímuefna er
aldrei réttlætanlegur. Ökum allsgáð.
Minningarsjóður Lovísu Hrundar | lovisahrund.is
SAMFÉLAG Óvissa ríkir um örlög
Reykjavíkurmaraþonsins sem
fara átti fram 22. ágúst. Fyrir helgi
stóð enn til að hlaupið færi fram
þrátt fyrir heimsfaraldurinn, en
með breyttu sniði í samráði við
almannavarnir. Til greina hefur
meðal annars komið að skipta þátt
takendum í hópa.
Í ljósi þeirra takmarkana á sam
komum sem tóku gildi í gær, gæti
þurft að endurskoða ákvörðun
um að halda hlaupið. Samkvæmt
upplýsingum frá Íþróttabandalagi
Reykjavíkur sem heldur utan um
hlaupið, hefur verið boðað til fund
ar með helstu forsvarsmönnum
þess á þriðjudaginn.
Fjölmörg góðgerðafélög njóta
góðs af hlaupinu og verði því aflýst
mun það hafa áhrif á fjárhag þeirra
vegna styrkja sem komið hafa í
gegnum áheit á hlaupara. – aá
Örlög hlaupsins
rædd eftir helgi
Maraþonið fer fram í ágúst á ári
hverju. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
UMFERÐ Umferð á Suðurlands
vegi var tæplega þriðjungi minni í
gær en í upphafi verslunarmanna
helgarinnar á síðasta ári. „Ég sá hjá
Vega gerðinni í gær að það óku um 19
þúsund bílar um Geit háls í fyrra en
þeir eru um níu þúsund það sem af
er degi núna,“ segir Aðal steinn Guð
munds son, varð stjóri hjá um ferðar
deild lög reglunnar, síðdegis í gær.
Umferðin út úr bænum gekk
vel að hans sögn, ökumenn stilltu
hraða í hóf og fáir fengu sektir. – aá
Minni umferð
en á síðasta ári
1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð