Fréttablaðið - 01.08.2020, Blaðsíða 6
Hvar liggur ábyrgð
stjórnvaldsins
– sveitarstjórnarinnar –
þegar upp verður staðið að
lokum?
Ragnar
Aðalsteinsson,
lögmaður Páls
Guðmundssonar á
Húsafelli
DÓMSMÁL „Það er afar sérstakt að
röð af minniháttar mistökum geti
leitt til tugmilljóna tjóns fyrir borg
arann,“ segir Ragnar Aðalsteinsson,
lögmaður Páls Guðmundssonar á
Húsafelli sem dæmdur hefur verið
til að fjarlægja legsteinasafn af lóð
sinni.
Eins og fram hefur komið dæmdi
Héraðsdómur Vesturlands Pál á
Húsafelli til að fjarlægja byggingu
yfir legsteinasafn, sem verið hefur
í smíðum á síðustu árum. Var það
gert að kröfu Sæmundar Ásgeirs
sonar, sem á Gamla bæinn svokall
aða og rekur þar gistiþjónustu.
„Málið er auðvitað afar sérstakt,“
segir Ragnar. „Páll byggði sam
kvæmt byggingarleyfi stjórnvalds,
hann byggði aldrei í leyfisleysi:
þetta er ekki óleyfisframkvæmd
eins og stundum er talað um.“
Ragnar segir að rekja megi málið
til mistaka við birtingu auglýsinga
sem varði þetta svæði. Það hafi ekki
verið hlutverk Páls að annast þær
auglýsingar, heldur Borgarbyggðar.
Nágranni sem sé ekki sáttur við
Pál vegna sameiginlegs bílastæðis
þeirra hafi áttað sig á þessu og hrint
málinu af stað.
„Og það leiðir til þessarar niður
stöðu, að þrátt fyrir byggingarleyfi,
þá eigi byggingarleyfið sér ekki
næga stoð í réttilega auglýstu skipu
lagi. Þetta hefur ekkert með efni
máls að gera, þetta er bara eintómt
form. Þannig að formið trompar öll
réttindi,“ útskýrir Ragnar.
Aðspurður hvort til standi að rífa
legsteinasafnið, eins og dómurinn
kveður á um, segir Ragnar málið allt
í athugun hjá aðilum málsins. „Það
er enn nægur tími til þess áfrýja,“
segir Ragnar, sem kveðst ekki vita
hvort f lötur sé á sáttum í málinu.
Spyr um ábyrgð sveitarfélags í
málinu um legsteinasafn Páls
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Páls Guðmundssonar á Húsafelli segir Pál hafa reist umdeilt legsteina-
safn með byggingarleyfi frá sveitarfélaginu og beri ekki ábyrgð á formgöllum í auglýsingum á skipulagi.
Páll var dæmdur til að rífa safnið fyrir miðjan september. Byggðaráð Borgarbyggðar harmar stöðuna.
Legsteinasafnið, sem 14. júlí síðastliðinn var dæmt til niðurrifs innan tveggja mánaða, er til hægri.
„Svo er það spurning: hvar liggur
ábyrgð stjórnvaldsins – sveitar
stjórnarinnar – þegar upp verður
staðið að lokum?“ spyr Ragnar.
Málið allt mun leggjast þungt
á sveitarstjórnarmenn í Borgar
byggð. Á síðasta fundi sínum kvaðst
byggðarráð harma þá stöðu sem
komin sé upp varðandi fyrirkomu
lag bygginga á Húsafelli. Ráðið
sagðist um leið árétta þá stefnu sem
miði að því að á Húsafelli verði veitt
fjölbreytt þjónusta. „Mikilvægt er
að eigendur lands og fasteigna komi
sér saman um fyrirkomulag bygg
inga og tengdrar aðstöðu, með gerð
deiliskipulags og hvetur byggðaráð
þá til að láta á það reyna áður en
núverandi fyrirkomulagi mann
virkja er breytt. Sveitarfélagið hefur
boðist til að hafa frumkvæði að
gerð deiliskipulagsins og það stend
ur enn til boða,“ segir byggðarráðið.
gar@frettabladid.is
Fauci sat fyrir svörum
Dr. Anthony Fauci og aðrir heilbrigðissérfræðingar sátu fyrir svörum í bandaríska þinginu í gær, en þeir voru kvaddir fyrir sérnefnd sem hefur við-
brögð ríkisstjórnar Donalds Trump við heimsfaraldri kórónaveirunnar til rannsóknar. Fauci fjallaði um mikilvægi þess að vísindaleg þekking um
veiruna og gæði greininga verði bætt. Hann er hóf lega bjartsýnn á að öruggt bóluefni við COVID-19 verði til reiðu fyrir lok þessa árs. MYND/GETTY
HONG KONG Stjórn völd í sjálfs
stjórn ar héraðinu Hong Kong hafa
frestað þing kosn ing um, sem áttu
að fara fram í sept em ber, um eitt ár.
Yfir hundrað smit á dag hafa greinst
í Hong Kong undanfarna tíu daga.
„Þetta er erfiðasta ákvörðun
sem ég hef tekið undanfarna sjö
mánuði,“ sagði Carrie Lam, leiðtogi
heimastjórnarinnar.
Stjórnarandstaðan sakar yfirvöld
um að nota kórónaveirufaraldurinn
sem afsökun til að koma í veg fyrir
að almenningur fái að kjósa. – bþ
Kosningunum
frestað um ár
Carrie Lam, leiðtogi heimastjórnar
Hong Kong, sætir harðri gagnrýni.
SPÁNN Heilbrigðisyfirvöld á Spáni
hafa varað við því að nú sé verið að
leggja yngra fólk inn á gjörgæslu
vegna bráðatilfella af COVID19, en
ekki aðeins eldri sjúklinga.
El País vitnar til viðvörunar frá
Fernando Simón hjá heilbrigðis
ráðuneyti Spánar, sem biðlar til
ungmenna að fara varlega. Þau séu
álitin kærulausari gagnvart því að
gæta sín og samskipti þeirra séu
uppspretta aukningar í smiti.
Meðalaldur kvenna sem greinast
með COVID19 á Spáni er 41 ár og
karla 45 ár. „En sé eingöngu litið til
gagna frá síðustu þremur vikum er
meðalaldurinn mun lægri eða 38
ár hjá konum og 36 ár hjá körlum. Í
mars og apríl hafi meðalaldur sjúkl
inga verið yfir 60 ár. – gar
Lækkandi aldur
sjúkra á Spáni
EVRÓPA Evrópusambandið hefur
ákveðið að draga til baka styrki til
sex bæja í Póllandi, sem höfðu gefið
út opinberar yfirlýsingar um að þeir
væru LGBTfrísvæði, það er svæði
sem væru laus við samkynhneigða
og kynleiðrétta einstaklinga.
Styrkirnir voru vegna fyrirætlana
um vinabæjasamskipti pólsku bæj
anna við aðra evrópska bæi. Helena
Dalli, framkvæmdastjóri jafnréttis
mála hjá Evrópusambandinu, segir
að grunngildi og réttindi verði að
virða og því hefði ákvörðunin verði
tekin.
Alþjóðlega mannréttindavaktin
(International Observatory of
Human Rights) upplýsti í mars að
þriðjungur pólskra bæja hefði skil
greint sig sem LGBTfrísvæði síðan
2019.
Í byrjun þessa mánaðar ákvað
borgin Nieuwegein í Hollandi að
slíta vinabæjartengslum sínum
við pólsku borgina Pulawy, því að
stjórnvöld þar ákváðu að lýsa því
yfir að borgin væri LGBTfrísvæði.
– bþ
Hætt við styrki
til pólskra bæja
Helena Dalli, framkvæmdastjóri
jafnréttismála ESB.
1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð