Fréttablaðið - 01.08.2020, Side 16

Fréttablaðið - 01.08.2020, Side 16
Í RAUN OG VERU ER ÉG BÚINN AÐ FÁ 24 ÁRA FANG- ELSISDÓM FYRIR OFBELD- ISLAUSA GLÆPI FRÁ ALDAMÓTUM. Þetta eru sextán ár sem ég er búinn að vera í fang-elsiskerfinu og í raun og veru er ég búinn að fá 24 ára fangelsisdóm fyrir of beldislausa glæpi frá aldamótum,“ segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, sem losnar úr ökkla- bandi í dag og tekur sín fyrstu skref sem frjáls maður, eftir að hafa eytt drjúgum hluta síðustu tuttugu ára í fangelsi. Guðmundur Ingi var stórtækur í fíkniefnasmygli til og frá landinu en er í seinni tíð þekktastur sem formaður Afstöðu, félags fanga, sem hann hefur sinnt um árabil af eftir- tektarverðri einurð og festu. „Ég held að það sé voðalega lítið að fara að breytast hjá mér þannig lagað. Ég er náttúrlega giftur þann- ig að ég er alveg undir jafn miklu eftirliti,“ hlær frjálsi maðurinn sem þakkar þrepaskiptri afplánun að lífið haldi bara áfram, ef svo má að orði komast. Draumur frjálsa fangans Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, losnar úr ökklabandi í dag og verður þar með frjáls maður eftir að hafa frá aldamótum verið sextán ár í fangelsi. Hann íhugar þingframboð ef löggjafinn fer ekki bráðum að taka hressilega við sér í fangelsismálum. Guðmundur Ingi Þóroddsson er frelsinu feginn eftir að hafa afplánað meira eða minna frá aldamótum og ætlar hamingjusamur að halda baráttunni með Afstöðu áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR „Ég er náttúrlega í raun og veru búinn að vera að vinna utan fang- elsis í þrjú og hálft ár í þessari þrepaskiptingu sem fangelsisafpl- ánun er í dag,“ segir Guðmundur, sem er búinn að vera í ökklabandi í eitt ár eftir að hafa verið sextán mánuði á áfangaheimilinu Vernd. „Þetta er auðvitað of boðslega f lott þrepaskipting. Þetta hefur náttúrlega breyst á síðustu árum og er mjög gott þótt það vanti enn hinn helminginn af kerfinu. Það er að segja að fangavistin hafi inni- hald og menn fari í endurhæfingu á meðan þeir eru í afplánun. Þetta er ekki að virka af því að við erum ekki með heildarkerfi í raun og veru,“ segir Guðmundur Ingi, sem stofnaði Afstöðu ásamt fleirum 2005. Óbreytt afstaða „Ég er mjög hamingjusamur í dag. Ég er giftur og ég ætla að halda áfram í Afstöðu. Við erum með fullt af verkefnum og ég vil sjá ákveðna drauma sem við erum með rætast,“ segir Guðmundur Ingi sem ætlar að halda réttindabaráttu fanga áfram sem frjáls maður. „Þetta er það sem ég vil gera og starfa við. Ég þarf reyndar að finna mér eitthvað hobbí og einbeita mér að því að slaka á,“ segir Guðmundur Ingi sem er og hefur verið vakinn og sofinn á fangavaktinni. Draumur fangans Hann segist þó aðspurður reyna að hlífa eiginmanni sínum við áreitinu og þótt málefni fanga brenni á honum komist f leira að í huga hans. „Ég tala aldrei um þetta heima vegna þess að hann er í raun og veru ekkert alveg sammála mér í Þórarinn Þórarinsson thorarinn@frettabladid.is 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.