Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.08.2020, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 01.08.2020, Qupperneq 22
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Auðvitað var þetta skellur,“ segir Á rsæll Aða lbergsson, t a ls-maður Skógarmanna KFUM sem þurfti að aflýsa Sæludögum. „Við vorum klár, fullt af mat komið á stað- inn og búið að setja upp hoppkastala og slíkt. Þó vorum við tvístígandi. Á mið- vikudagskvöld var róðurinn að þyngj- ast og á fimmtudagsmorgun vorum við sannfærð um að ekkert yrði af hátíðinni. Það kom á daginn.“ Ársæll segir marga gesti hafa mætt á miðvikudeginum. Þegar við opnuðum svæðið var biðröð út að Hótel Glym. Fólk lagði hjólhýsum og fellihýsum og reisti tjöld en mátti ekki gista þá nótt. Það mætti svo daginn eftir til að taka allt niður og setning dagsins var: Svona fór um sjóferð þá. Það þýðir ekkert að pirra sig en ég er svekktur fyrir hönd barnanna sem voru búin að hlakka til í marga mánuði og undirbúa skemmtiat- riði. Allir skilja aðstæðurnar, þetta eru varúðarráðstafanir.“ – gun Svona fór um sjóferð þá var setning dagsins Ársæll finnur til með krökkunum. Það er viss sorg hjá unga fólkinu að þurfa að sleppa Sæludögum en  aðstæðurnar eru óvenju-legar,“ segir Dagný Bjarna-dóttir. Fjölskyldan var búin að tjalda í Vatnaskógi  eins og margir f leiri þegar Sæludögum var aflýst eins og öðrum viðburðum helgarinnar. „Það var búið að versla, pakka niður og reisa tjaldbúðir,“ lýsir Dagný og segir svæðið hafa verið opnað á miðvikudeg- inum. „Við vorum með tvö tjöld, tví- burasysturnar voru með nýtt tjald og settu það auðvitað upp sjálfar. Samkom- an byrjar alltaf á fimmtudegi klukkan 19 og stelpurnar langaði að vera eina nótt einar, við hin ætluðum að koma á föstu- deginum.“ Á miðvikudeginum kveðst Dagný hafa séð á svip starfsfólks að eitthvað lá í loftinu. „En við héldum að gestafjöldinn yrði innan settra marka. Svo horfði ég á fundinn á fimmtudeginum og strax á eftir kom tilkynning um að Sæludögum væri aflýst þetta árið.“ Dagný segir Sæludaga hafa verið fastan punkt í tilverunni hjá f jöl- skyldunni  frá því dæturnar, sem nú eru sautján ára, voru pínulitlar. „Hjá stelpunum byrjar árið eftir Sæludaga og endar á Sæludögum, því um leið og þeim lýkur eru þær farnar að hlakka til þeirra næstu. Strákurinn okkar var líka spenntur. Þetta er svo fjölskylduvæn samkoma, góður félagsskapur, frábær dagskrá  og öruggt umhverfi – það er hugsað fyrir öllu. Veðrið átti að vera best á þessu svæði en við erum öllu vön, eigum góð tjöld og aðstaðan inni er góð. Þetta hefði orðið mjög gaman.“ Gestir Sæludaga tóku tjaldbúðirnar niður á fimmtudaginn hægt og rólega. Við leyfðum krökkunum að vera allan daginn og hitta fólk í góða veðrinu. Keyptum svo mat af mótshöldurum svo það verða litlir sæludagar heima um helgina, læri og hamborgarar og grillaðir sykurpúðar úti í garði.“ gun@frettabladid.is Sælan breyttist í sorg Sæludagar í Vatnaskógi hafa verið árvissir um verslunarmannahelgi, en sú hefð var rofin nú vegna COVID-19. Margir voru mættir með viðleguútbúnað og allt var til reiðu. Alice og Ásta ansi svekktar yfir að þurfa að taka niður nýja tjaldið sitt strax. Ásta Kent, Freyja Traustadóttir, Alice Kent, Dagný Bjarnadóttir, Sólrún Steinsdóttir, Daníel Kent og Trausti Jónsson í Vatnaskógi. Hjá stelpunum byrjar árið eftir Sæludaga og endar á Sæludög- um, því um leið og þeim lýkur eru þær strax farnar að hlakka til þeirra næstu. Merkisatburðir 1874 Ný stjórnarskrá fyrir Ísland gengur í gildi og sérstakt stjórnarráð fyrir Ísland er stofnað í Kaupmannahöfn. 1897 Oddfellowreglan á Íslandi er stofnuð með áherslu á bræðralag og sam- hjálp. 1904 Embætti amt- manna eru lögð niður á Íslandi. 1981 Bandaríska sjónvarpsstöðin MTV byrjar útsendingar. 1984 Fjölbrauta- skólinn í Garðabæ er stofnaður. 1994 Mikið eyði- leggst af sögu- legum skjölum þegar bókasafn Norwich brennur. 1996 Menntaskólinn Hraðbraut er stofn- aður. 1998 Eitt dýrasta frímerki heims, Gul tre skilling banco frá 1855, er selt fyrir 14 milljón sænskar krónur. 2016 Guðni Th. Jóhannesson tekur við embætti forseta Íslands, sama mánaðardag og allir fyrirrennarar hans. 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.