Fréttablaðið - 01.08.2020, Side 38

Fréttablaðið - 01.08.2020, Side 38
„Hvaða litarugl er þetta nú eiginlega,“ sagði Kata önug. „Þetta hringsnýst allt svo það er ekki hægt að horfa á þessa litahringi án þess að fá höfuðverk,“ bætti hún við og ranghvolfdi í sér augunum. Lísaloppa las leiðbeiningarnar. „Hér stendur, hvaða tveir af hálfu hringjunum, ef þeir eru lagðir saman, eru eins og heili hringurinn efst?“ Þær horfðu á hringina dágóða stund. „Nei,“ sagði Kata. „Þetta er bara ein lita hringavitleysa Konráð á ferð og ugi og félagar 414 Sérð þú hvaða tveir helmingar lagðir saman eru eins og heili hringurinn?? ? ? ? 1 5 2 6 3 7 4 8 fyrir mér, þú mátt reyna að leysa þessa þraut, ég gefst upp.“ „Gefst upp?“ sagði Lísaloppa glottandi. „Allt í lagi“, sagði Kata og dæsti. „Reynum þá að ‡nna eitthvað vitrænt út úr þessari þraut.“ Hún var ekki tilbúin að láta það fréttast að hún hefði ge‡st upp svona léttilega við að leysa einhverja þraut. Héraðsbúinn Björg Gunnlaugs- dóttir var nýorðin 14 ára þegar hún varð tvöfaldur Íslandsmeistari í hlaupum  14 ára stúlkna snemma í júlí, setti mótsmet og var einum sentimetra frá meistaratitli í lang- stökki. Hvað varstu gömul þegar þú byrj- aðir að æfa hlaup?  Ég var fimm ára. Er góð aðstaða á Egilsstöðum fyrir æfingar? Já, það er  gott að æfa  á Vilhjálmsvelli á sumrin. Hingað til  höfum við  frjálsíþróttafólkið þurft að æfa í íþróttahúsinu á vet- urna en nú er að koma upp fimleika- hús og þar er hlaupabraut og lang- stökksgryfja. Það verður örugglega byrjað að nota það núna bráðum. Ertu aðallega í stökkum og hlaup- um? Já, og fótbolta líka. Ég er að æfa með liðinu Austurlandi, sem er Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir. Í hvaða f lokki? Ég er í þriðja flokki en ætti að vera í fjórða. Ég spilaði einn meistaraflokksleik í júní, viku áður en ég varð fjórtán ára. Það gekk fínt. Við kepptum við Fram og unnum. Ég gaf tvær stoðsendingar. Ertu með góða þjálfara? Já, þjálf- arinn minn í frjálsum heitir Lovísa Hreinsdóttir. Það er haldið vel utan um mig. Systir mín, Erla, er mikið að þjálfa mig líka. Ég á þrjár eldri systur og þær hafa allar komist í úrvalshópa í íþróttum. Þetta er eitt- hvað í genunum. Eru foreldrar  ykkar afreksfólk í íþróttum? Nei, þau eru aðallega afreksfólk í að hvetja okkur áfram. Ertu að æfa alla daga? Ég er líka í unglingavinnu  en fer beint úr vinnunni á æfingar. En núna er ég í sumarfríi á ferðalagi með fjölskyld- unni. Við komum 18. júlí í Borgar- nes því þar var ég að spila, síðan fórum við á Rey/Cup og ég spilaði þar og við höfum farið á fótbolta- leiki hjá systur minni. Fríið snýst meira og minna um fótboltann núna. Svo ætlum við að Stakkhamri á Snæfellsnesi og hitta ættingja okkar núna um helgina. Þar verður örugglega fótboltakeppni líka. Við ætluðum á unglingalandsmótið en það fellur niður þetta ár. Er það ekki spælandi? Jú, ég er búin að fara á öll unglingalandsmót síðan ég fæddist. Ég var sex vikna þegar ég fór fyrst. Fór á fyrsta unglingalandsmót sex vikna Lestrarhestur vikunnar Olivia Slazner Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Bókabeitan efna til sumarlesturs fyrir krakka. Verið velkomin í bókasafnið í ykkar hverfi og takið þátt í lestrarleiknum. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók að gjöf og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur. Lausn á gátunniÞað eru hálfhringirnir númer fimm og sjö? Björg Gunnlaugsdóttir varð tvöfaldur Íslandsmeistari í hlaupum nýlega. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR SYSTIR MÍN, ERLA, ER MIKIÐ AÐ ÞJÁLFA MIG LÍKA. ÉG Á ÞRJÁR ELDRI SYSTUR OG ÞÆR HAFA ALLAR KOMIST Í ÚRVALSHÓPA Í ÍÞRÓTTUM. ÞETTA ER EITTHVAÐ Í GEN- UNUM. Hvernig bækur þykja þér skemmtilegastar, Olivia? Ævintýrabækur. Hvaða bók lastu síðast og um hvað var hún? Ég las bók sem heitir Eragon og er ennþá með hana. Hún er um strák sem fann stein og út úr honum klekst dreki sem er alveg eins á litinn og steinninn var. Hvaða bók ætlarðu að lesa næst? Sossa sólskinsbarn eftir Magneu frá Kleifum. Ef þú myndir skrifa bók, um hvað væri hún? Hún væri um stelpu sem lendir í alls konar ævintýrum. Ef þú mættir velja þér persónu úr bók til að ferðast um Ísland með, hver væri hún? Frodo, bagginn úr bókinni Lord of the Rings. Hvernig munduð þið ferðast? Við mundum ferðast gangandi eins og í bókinni. Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi hjá þér? Ég held að það hafi verið The book thief. Ferðu oft á bókasafnið? Já, eiginlega á hverjum degi, nema um helgar. Hver eru þín helstu áhugamál? Brasilískt Jiujitsu og klassískur gítar. Í hvaða skóla ertu? Ég er í Ölduselsskóla og á laugar- dögum í Fellaskóla. 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.